Fréttablaðið - 02.12.2022, Síða 3
Síðasta áratuginn hafa
flest börn komið frá
Tékklandi, yfir tutt-
ugu að tölu, og vekur
athygli að aðeins eitt
barn hefur komið frá
Kína frá því árið 2016.
2 6 3 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s F Ö S T U D A G U R 2 . D E S E M B E R 2 0 2 2
Ljóðför um
lendur óttans
Sykurlausi
sælkerinn
Menning ➤ 22 Lífið ➤ 28
Laugavegi 174, 105 Rvk. www.hekla.is/idBuzz
Frumsýning á morgun frá kl. 12-16
Nýr rafmagnaður
Möndlubásinn verður á staðnum.
Grýla og Leppalúði, elsta ofurpar Íslands, mættu í Ráðhús Reykjavíkur í gær þegar Jólaskógurinn í Tjarnarsalnum var opnaður með tilheyrandi grenilykt. Leik-
skólabörn mættu til að hlusta á hjúin rausa um syni sína, jólasveinana, auk þess sem boðið var upp á heitt súkkulaði og með því. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Jólablaðið 2022
Jólablaðið
fylgir blaðinu
í dag
JÓL Veglegt jólablað fylgir Frétta-
blaðinu í dag. Þar er að finna
skemmtileg jólaviðtöl, matar- og
bakstursuppskriftir, innlit á jóla-
skreytt heimili og hugmyndir að
jólaskreytingum og föndri.
Lesendur blaðsins ættu því að
geta fundið efni við sitt hæfi því fjöl-
breytileikinn er mikill. n
Mjög hefur dregið úr ætt-
leiðingum til Íslands á síðustu
árum vegna breyttrar fjöl-
skyldustefnu kínverskra
stjórnvalda og ótryggs
ástands í Austur-Evrópu.
ser@frettabladid.is
SAMFÉLAG Ekkert barn hefur verið
ættleitt frá útlöndum til Íslands á
þessu ári, en engin dæmi eru um
slíkt það sem af er þessari öld – og
raunar einnig ef litið er til síðustu
áratuganna fyrir aldamótin.
Ástæðu þessa má einkum rekja
til þess að kínversk stjórnvöld hafa
á seinni árum losað um hömlur á
fjölda barna sem foreldrum þar í
landi er heimilt að eignast og ala
upp. Þar við bætist ótryggt ástand
í austurhluta Evrópu, en f jöldi
barna, einkum úr hópi Rómafólks
sem er stærsti minnihlutahópur í
Evrópu, hefur verið ættleiddur frá
Tékklandi á síðustu árum.
Athygli vekur raunar hvað ætt-
leiðingum hér á landi hefur fækkað
mikið á þessari öld.
Árið 2007 voru yfir tuttugu börn
ættleidd hingað til lands, langflest
frá Kína, og næstu fimm árin voru
kínversk börn í meirihluta þeirra
sem hingað komu til nýrra foreldra,
ef árið 2008 er undanskilið, en þá
komu öll ættleiddu börnin, þrettán
að tölu, frá Indlandi.
Síðasta áratuginn hafa flest börn
komið frá Tékklandi, yfir tuttugu að
tölu, og vekur athygli að aðeins eitt
barn hefur komið frá Kína frá því
árið 2016.
Allt bendir til þess að árið í ár
skeri sig algerlega úr hvað þessar
ættleiðingar varðar og að ekkert
barn verði ættleitt frá útlöndum til
Íslands. n
Ekkert barn ættleitt á árinu
MEÐ KONFEKTHNETUM
FÓLK „Við höfum alltaf verið opin
með þetta heima og við höfum allt-
af getað rætt þetta,“ segir Stefanía
Mjöll Gylfadóttir, sem frumsýnir
í dag leikverk sem byggir því er
amma hennar var myrt í Öxnadal
árið 1996.
Leikritið er skrifað frá sjónarhóli
föður Stefaníu, Gylfa Þórs Þorsteins-
sonar, aðgerðastjóra yfir móttöku
Úkraínumanna.
Það var bróðir ömmu Stefaníu
sem myrti ömmu hennar. „Þetta
er nú bróðir minn, ég þekki hann
og þetta verður allt í lagi,“ voru að
sögn Gylfa síðustu orð móður hans,
sem reyndust al röng. „Ég man við-
brögðin hjá pabba þegar ég las
handritið í fyrsta sinn fyrir hann,“
segir Stefanía. SJÁ SÍÐU 26
Semur um morðið
á ömmu sinni