Fréttablaðið - 02.12.2022, Page 4
Skothvellur heyrðist í dómssal
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og sérsveitin voru við æfingar hjá húsnæði Landsréttar í gærmorgun á sama tíma og aðalmeðferð í skotárásarmálinu á
Egilsstöðum fór fram. Skothvellur heyrðist vel inn í dómssal og þurfti dómari að greina frá æfingunni í miðjum réttarhöldum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Pantanir fyrir hópa og fyrirtæki á
hafsteinn@betristofan.com eða í síma 779 2416
Ég var nærri dauður úr
læknamistökum.
Óðinn Svan Geirsson.
Akureyrskur bakari sér lífið
í nýju ljósi eftir að hafa misst
heilsuna. Stendur vaktina á
ný með nýja mjöðm.
bth@frettabladid.is
AKUREYRI Óðinn Svan Geirsson
hóf í gær nýjan kafla í fjölbreyti-
legri atvinnusögu, þegar nýtt kaffi-
hús var opnað á Akureyri þar sem
brauðmeti er selt undir merkinu
Óðinn bakari. Það þætti ekki endi-
lega í frásögur færandi nema vegna
þess að bakarinn er heimtur úr helju
eftir langt veikindastríð.
Óðinn útskrifaðist sem bakari
árið 1980 og lærði síðar til kondi-
tors í Danmörku. Hann hefur bakað
úti um allan heim, meðal annars á
frægu skíðasvæði í Noregi og verið í
læri hjá Ítölum sem kenndu honum
að baka focaccia.
Stundum hefur Óðinn tekið sér
hlé frá bakstrinum. Hann vann sem
kokkur um borð í skipi hjá Eimskipi
í fyrra þegar hann skar sig. Upp úr
því fékk hann mikla verki og neydd-
ist til að hætta störfum. Læknarnir
fyrir norðan greindu ekki að hann
væri kominn með sýkingu heldur
dældu í hann meiri og meiri lyfjum,
að sögn Óðins, einkum vegna mik-
illa kvala í mjöðm.
„Þeir voru farnir að leysa mig
út með 100 parkódín forte töflur
í einu. Svo var oxí, gabapentín og
ég veit ekki hvað og hvað. Þetta var
algjört helvíti,“ segir Óðinn.
Hann léttist um tíu kíló og var
hættur að líta glaðan dag. Það var
ekki fyrr en hann var kominn í
hjólastól sem hann fékk loks grein-
ingu. Bráðaaðgerð var gerð á Sjúkra-
húsinu á Akureyri og stóð tæpt.
„Ég var nærri dauður úr lækna-
mistökum,“ segir bakarinn.
Óðinn segist hissa á læknum
heilsugæslunnar að hafa ekki tekið
blóðprufu þann langa tíma sem
hann stríddi við veikindin. Þegar
hann loks komst inn fyrir dyr spítal-
ans hafi þó verið vel séð um hann.
„En ég er ansi hræddur um að
margir deyi á þeirri löngu leið sem
virðist á þennan spítala.“
Óðinn segist aftur vera farinn að
brosa. Vinnufær með nýja mjöðm
og nýtt starf eftir hækjur og hjóla-
stól.
„Ég reyndi samt allan tímann að
vera jákvæður þótt þetta væri erfitt
skeið. Það kom sér vel þegar ég lá á
lyfjadeildinni, sem er endastöð hjá
mörgum.“
Bakarinn segist hafa fengið nýja
sýn á lífið. Hann sé hættur að velta
sér upp úr pólitík og njóti hverrar
stundar.
„Ég er þakklátur fyrir þessa
reynslu og skil núna að hreyfi- og
starfsgeta er ekki sjálfsagður hlut-
ur,“ segir Óðinn Svan við bakara-
ofninn. Það er einmitt brauðið sem
hann lærði að baka hjá Ítölunum
sem selst sem heitar lummur þessa
dagana í hinu bjarta norðri, á Akur-
eyri, í heimabæ laufabrauðsins. n
Næstum dauður en rís nú
upp með brauð að vopni
Óðinn Svan Geirsson bakari missti heilsuna og upplifði helvíti. Nýir og
spennandi tímar hafa nú tekið við. MYND/AÐSEND
arnartomas@frettabladid.is
SAMFÉLAG Jólaálfur SÁÁ kom fljúg-
andi til byggða í gær, þar sem hann
fékk far með þyrlu frá Norðurflugi.
Anna Hildur Guðmundsdóttir,
formaður SÁÁ, sótti álfinn og kom
með hann á Vog í hádeginu. Á móti
þeim tóku börn úr Skólakór Kárs-
nesskóla ásamt Ásmundi Einari
Daðasyni barnamálaráðherra og
sungu jólalög fyrir viðstadda.
Jólaálfasala SÁÁ hófst í gær, þar
sem stendur til að afla fjár fyrir sál-
fræðiþjónustu barna hjá SÁÁ. Álfa-
salan stendur fram á helgi og verður
sölufólk SÁÁ á fjölförnum stöðum
um land allt. n
Jólaálfurinn kom með Norðurflugi
Jólaálfinum
var vel tekið er
hann birtist af
himnum ofan.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
gar@frettabladid.is
KJARAMÁL Hlé var gert á kjaravið-
ræðum Starfsgreinasambandsins og
Samtaka atvinnulífsins í gær.
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður
Eflingar, sem stendur utan þessara
viðræðna, hvetur fólk til samstöðu.
„Ætlar fólk að sætta sig við að auð-
stéttin sigli hlæjandi fram hjá í góð-
ærisfleyinu sínu á meðan að þau sem
hafa svitnað fyrir hagvöxtinn eru
skilin eftir í hriplekum báti?“ skrifaði
Sólveig Anna á Facebook-síðu sína.
Sagði Sólveig Anna að hagvöxtur á
Íslandi í ár sé 7 prósent og 4,4 prósent
í fyrra. Hagnaður fyrirtækja í Kaup-
höllinni væri 34 milljörðum meiri nú
en á sama tíma í fyrra. Það væri 30
prósenta hækkun.
„Samtök atvinnulífsins reyna að
troða upp á okkur 4 prósenta launa-
hækkun. Í verðbólgu sem fer yfir 9
prósent. Verðbólgu sem étur upp
kaupmáttinn okkar,“ skrifar for-
maðurinn.
„Ég vona að fólk skilji að við
verðum að standa saman, vopnuð
sjálfsvirðingunni og vitneskjunni
um að við erum ómissandi í allri
verðmætasköpun þjóðfélagsins.“ n
Fólk verði að
standa saman
Sólveig Anna Jóns-
dóttir, formaður
Eflingar
2 Fréttir 2. desember 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ