Fréttablaðið - 02.12.2022, Page 15
Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar
Framsóknar, Sjálfstæðisf lokks og
Vinstri hreyfingarinnar – græns
framboðs er kveðið á um að mönnun
löggæslu á Íslandi þurfi að vera í takt
við þarfir samfélagsins. Því þurfi að
gera tímabundið átak með það að
markmiði að fjölga í lögreglunámi á
háskólastigi og tryggja þannig aukið
öryggi og fagmennsku innan lög-
reglunnar. Með fjölgun menntaðra
lögreglumanna er unnt að bæta
þjónustu, stytta rannsóknartíma og
auka gæði lögreglustarfa.
Viðvarandi mannekla
Því miður hefur ekki tekist að draga
úr manneklu meðal lögreglumanna
hérlendis síðustu fimmtán ár. Ísland
er með einna fæsta lögreglumenn
í Evrópu miðað við höfðatölu og
hvergi hefur lögreglumönnum fækk-
að jafn mikið hlutfallslega sl. áratug
og hérlendis. Mannekla kemur niður
á almennri löggæslu, forvörnum og
frumkvæðisvinnu og eykur álag á
lögreglumenn. Samkvæmt skýrslum
greiningardeildar ríkislögreglustjóra
hefur fólksfjölgun, fjölgun ferða-
manna og fækkun lögreglumanna
komið niður á löggæslu, ekki síst í
dreifbýli.
Við vitum öll hversu mikilvægt
það er að lögreglan búi yfir mennt-
uðum lögreglumönnum, fjárveit-
ingar til lögreglu hafa aukist síðustu
ár og átaki hefur verið hrint í gang
til þess að fjölga lögreglumönnum,
en það mun þó taka nokkurn tíma
þar til við komum til með að sjá þær
aðgerðir bera almennilegan árangur.
Nám til starfsréttinda tekur nú tvö ár
og mögulegt er að bæta við sig einu
ári til þess að ljúka náminu með BA-
gráðu. En almennt tekur um 5 ár að
mennta, þjálfa og byggja upp reynslu
hjá lögreglumönnum. Enn eru
nokkur ár í að búið verði að mennta
og þjálfa nægilega marga lögreglu-
menn svo gott sé. Lögreglan vill geta
gert betur en þarf til þess verkfæri í
töskuna. Svo að lögreglan og önnur
lögregluyfirvöld geti verið í stakk
búin til þess að mæta þeim miklu
samfélagslegu áskorunum sem leiða
af skipulagðri glæpastarfsemi, tækni-
þróun, nýjum hugbúnaðarlausnum,
hnattvæðingu og fjarskipta- og net-
tengingu þarf að leita annarra leiða
til þess að styrkja lögregluna og það
getum við gert með því að nýta sér-
fræðinga á öðrum sviðum í auknum
mæli.
Borgaralegir sérfræðingar
Lögreglan á Akureyri auglýsti nýver-
ið eftir rann sókn ar lög reglu mönn-
um og borg ara leg um sér fræðing-
um til að rann saka sta f ræn gögn,
með áherslu á farsím a rann sókn ir.
Meðal verk efna sér fræðing anna
eru rann sókn ir sem krefjast auk-
inn ar sér hæf ing ar og sérþekk ing ar.
Til að mynda af rit un og rann sókn ir
farsíma og annarra staf rænna sönn-
un ar gagna og sam skipti við er lenda
sam skiptamiðla og lög gæslu yf ir-
völd með til liti til rétt ar beiðna. Þær
menntunarkröfur sem gerðar eru
fyrir borg ara leg an sér fræðing er
mennt un sem nýt ist í starfi. Ég tel að
við þurfum að nýta með fjölbreytt-
ari hætti borgaralega sérfræðinga
til greiningarvinnu hjá lögreglunni,
þannig skapast betra ráðrúm fyrir
lögreglumenn til þess að starfa á
vettvangi. Auk þess er lögreglan sem
stofnun svo miklu meira heldur en
lögregla sem fer með lögregluvald,
með því að styrkja stofnunina með
þessum hætti má efla lögregluna
sem heild á mun skemmri tíma.
Mikilvægt er að gera greiningu á
hvaða störf það eru sem hægt er að
fela hinum borgaralegu sérfræðing-
um, þannig má ná skilmerkilegum
og markvissum árangri.
Að lokum langar mig að árétta að
á sama tíma og farið er í átak við að
fjölga lögreglumönnum er það afar
mikilvægt að halda utan um þá lög-
reglumenn sem fyrir eru í starfi, en
mannekla í lögreglunni er ein helsta
uppspretta álags og streitu fyrir lög-
reglumenn með tilheyrandi hættu
á brottfalli úr stéttinni. Við megum
ekki láta skort á lögreglumönnum
verða til þess að við missum fleiri
úr stéttinni. Þá er það mikilvægt að
lögreglan finni og fái stuðning, hvort
sem er frá yfirvöldum eða íbúum
þessa lands til þess að sinna því
mikilvæga starfi sem löggæsla er. n
Lögregluna þarf að
styðja og styrkja
Ingibjörg Isaksen
þingflokksformað-
ur Framsóknar og
fyrsti þingmaður
NA-kjördæmis
� 4. DESEMBER � KL. 14.00 � SILFURBERG
JÓLAFJÖR
með sölku sól
Mannekla kemur
niður á almennri lög-
gæslu, forvörnum og
frumkvæðisvinnu og
eykur álag á lögreglu-
menn. Nú rífa margir hár sitt og skegg, ef
því er að skipta, út af nýafstaðinni
Loftslagsráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna, eða COP27. Það er hægur
leikur í ljósi þeirrar ráðstefnu og
alls þess sem er að gerast í heim-
inum að tileinka sér mjög djúpa
svartsýni þegar kemur að fram-
tíðarhorfum varðandi líf á jörðu.
Ákaflega margt bendir til að mann-
kynið sé að fara með vistkerfið
til helvítis, og þegar þjóðir koma
saman, eins og á ráðstefnunni, er
eins og enginn ætli að gera neitt í
neinu. Doðinn virðist algjör. Tafa-
leikir eru spilaðir. Rifist er um orð í
ályktunum á meðan jöklar bráðna,
skógar brenna og lönd sökkva.
Eða hvað? Áður en stokkið er
út í skúr og náð í spjald og kúst-
skaft til að búa til skilti til þess að
skrifa á það „Þetta er búið“ til þess
að standa með í úlpu í Skeifunni
um helgina, er kannski mikilvægt
að reyna að anda með nefinu eða
hugleiða um stundarsakir í lótus-
stellingunni á steini við hafið í
nóvemberblíðunni. Ná áttum.
Sjáum til. Jú, svartasta bölsýni
á fyllilega rétt á sér. Hún er mjög
skiljanleg. Í raun er hún óþægilega
viðeigandi. Eins og staðan er núna,
og miðað við núverandi útblástur
gróðurhúsalofttegunda, stefnir í
að hlýnun lofthjúpsins verði 2,8
gráður á þessari öld, miðað við
upphaf iðnvæðingar. Það yrði full-
komin katastrófa. Í löndum þar
sem nú búa milljarðar manna yrði
ólíft. Fólk stæði frammi fyrir því að
flýja þau lönd eða svitna til dauða
í banvænu samspili ofsahita og
raka. Veröldin að öðru leyti myndi
breytast í martraðarkennt óvissu-
svæði veðurfarshörmunga af áður
óþekktri stærðargráðu. Þetta er
veröld barna okkar og barnabarna.
Ofan á náttúruhamfarir munu
bætast ógnir vegna félagslegs
óstöðugleika, gríðarstórra strauma
flóttafólks, stríðsátaka, hungurs-
neyða og annars böls. Þau kerfi
sem mannfólkið hefur búið sér til
eru engan veginn í stakk búin til
þess að takast á við þá áratugi af
viðvarandi neyðarástandi sem eru
í uppsiglingu.
Önnur ástæða til að standa með
skilti í úlpu yfir hátíðirnar fyrir
utan búðir felst í því að ákaflega
margar vísbendingar eru fyrir
hendi um að mannkynið stefni
alls ekki í rétta átt í aðgerðum
sínum svo hægt verði að fyrir-
byggja skelfingarnar. Olíufyrirtæki
munda nú borana á áður ónýttum
olíulendum í Afríku eins og enginn
sé morgundagurinn og útblástur
dregst ekki saman, þótt ríkis-
stjórnir lýsi yfir háleitum mark-
miðum í þá veru. Og stórþjóðum
eins og Rússum og fleirum virðist
einfaldlega slétt sama. Fara bara í
stríð.
Rúskí karamba, svo vitnað sé
í Fóstbræður. Nýleg skýrsla um
stöðu loftslagsaðgerða á heimsvísu
hefur leitt í ljós að á engum kvarða
af ríflega fjörutíu hafa þjóðir heims
sýnt nægilegan árangur í loftslags-
málum. Það er eins og ekkert liggi
á. Allir sallarólegir. Á nokkrum
kvörðum var stefnan beinlínis í
ranga átt.
Orð og ályktanir munu ekki
leysa loftslagsvandann, heldur
aðgerðir. Í raun þarf að breyta
öllum kerfum og grundvallarhugs-
unum. Veröldin þarf nýtt orku-
kerfi, nýja tegund matvælafram-
leiðslu, nýjar neysluhefðir og sumir
segja jafnvel ný trúarbrögð, til þess
að efla andann, byggð á lotningu
fyrir náttúrunni og umhverfinu
sem elur okkur og nærir.
Þetta er soldið mikið. Fyrir
þjóð sem getur ekki einu sinni
selt hlutabréf í banka eða gert
kjarasamninga hljómar þetta
óyfirstíganlegt. Vísindasamfélagið
segir að mannkynið hafi sjö ár. Ef
ekki tekst að draga úr útblæstri
um helming næstu sjö árin lokast
gluggi. Þá fer hlýnun jarðar yfir
eina og hálfa gráðu og vítahringir
loftslagsbreytinga hefjast, sem
leiða til enn meiri hlýnunar.
Tökum þá upp léttara hjal. Núna
setja ríkisstjórnir heims eina og
hálfa trilljón Bandaríkjadala á ári
hverju í það að beinlínis niður-
greiða olíunotkun og skógareyð-
ingar. Fyrir þann pening má kaupa
Apple-fyrirtækið tvisvar og eiga
afgang. Af bjartsýnum sjónarhóli –
smá Pollíönnu – má segja að þarna
sé jú krani sem kannski er hægt að
snúa. Ef þessi peningur er settur í
orkuskipti og umbreytingar, þá er
von.
Kannski er þetta að gerast. Á
COP27 var ekki bara rifist um
orð í ályktunum. Urmull af sam-
þykktum milli alls konar aðila leit
þar líka dagsins ljós, um uppbygg-
ingu á hreinni orkuframleiðslu úti
um allar jarðir. Sólar- og vindorka
hefur aldrei verið ódýrari. Fjár-
festingar í vistvænum verkefnum
á heimsvísu hafa margfaldast.
Kröfur ungs fólks og annarra um
breytingar stigmagnast ár frá ári.
Alveg eins og í náttúrunni, þar
sem víxlverkun atburða getur leitt
til veldisvaxtar í hörmungum,
þá getur félagsleg víxlverkun
alls konar atburða – umbreyting
kerfa skapar velsæld sem skapar
meiri getu sem skapar enn hraðari
umbreytingu kerfa – líka skapað
veldisvöxt framfara sem kannski
mun bjarga veröldinni frá allra
verstu hörmungunum.
Í öllu falli má ekki missa vonina.
Án hennar er ekkert. n
Sjö ár
Guðmundur
Steingrímsson
n Í dag
FÖSTUDAGUR 2. desember 2022 Skoðun 13FréttabLaðið