Fréttablaðið - 02.12.2022, Qupperneq 18
Á þeim tíma höfðum
við skoðað 100 víta
spyrnur sem Messi
hafði tekið.
Guðmundur Hreiðarsson
Argen
tínska
þjóðin
setur allt
traust á
Messi sem
bregst
stundum.
Messi
skaut til
vinstri
þegar
Hannes
varði en fór
til hægri í
fyrradag
gegn Pól
landi.
Það er ekki fyrir alla að verja
frá Lionel Messi á stærsta
sviði fótboltans, sjálfu Heims-
meistaramótinu. Hinum
pólska Wojciech Szczęsny
tókst hins vegar að endur-
taka það sem Hannes Þór
Halldórs son gerði svo eftir-
minnilega árið 2018.
hoddi@frettabladid.is
Fótbolti Það var mikil pressa á
Lionel Messi þegar hann steig á
vítapunktinn á miðvikudag í Doha
í Katar; Argentína varð að sækja
úrslit gegn Póllandi til að komast
áfram á Heimsmeistaramótinu.
Þessi sama pressa var á Messi þegar
hann steig á punktinn gegn Íslandi
í Moskvu, sumarið 2018. Í bæði
skiptin klikkaði þessi magnaði leik-
maður á ögurstundu.
„Þetta var öðruvísi markvarsla,
spyrnan frá Messi var alls ekki
slök,“ segir Guðmundur Hreiðars-
son, fyrrverandi markvörður og
markmannsþjálfari Jamaíka í dag
um málið.
Szczęsny varði virkilega vel frá
Messi í stöðunni 0–0 en að lokum
vann Argentína góðan sig ur
sem skaut liðinu áfram. „Eins og
Szczęsny segir sjálfur frá, þá er mikil
vinna á bak við svona vítaspyrnur.
Svo blandast auðvitað inn í þetta
smá heppni.“
Guðmundur var markmanns-
þjálfari íslenska liðsins á HM 2018
og segir mikla vinnu liggja á bak við
svona hluti. „Á þeim tíma höfðum
við skoðað 100 vítaspyrnur sem
Messi hafði tekið, við tókum saman
alla tölfræði um það hvar hann væri
líklegastur til að taka sínar spyrnur.
Fyrir fjórum árum fannst okkur það
líklegast að þegar allt væri undir þá
færi hann í hornið sem Hannes ver
frá honum.
Í æfingaleikjum miðað við töl-
fræðina sem var þá, þá setti hann
boltann yfirleitt í vinkilinn þar sem
hann tók spyrnuna gegn Póllandi.
Þetta er úti um allt hjá honum,
Messi klikkar á svona 7–8 prósent-
um af sínum vítaspyrnum, en hann
heldur alltaf áfram að taka þær.“
Gríðarlegt stress
Ljóst er að mikið stress gerir vart
við sig hjá Messi þegar hann stígur
á punktinn fyrir Argentínu, heil
þjóð treystir á það að hann leiði
liðið til sigurs á Heimsmeistara-
mótinu. „Maður sér það í spyrnunni
í gær að það er gríðarlegt stress og
mikið undir. Maður sá sömu takta
frá honum gegn Hannesi. Við sjáum
andlitsdrættina hans, hann er
gríðarlega stressaður. Hann dregur
djúpt andann og blæs svo frá sér.
Það er gríðarlega mikið undir,
markvörðurinn tapar aldrei í svona
aðstæðum.“
Guðmundur segir að varslan frá
Szczęsny sé á heimsmælikvarða.
„Tímasetningin í öllu hjá honum
er frábær, hann fer af stað á sama
augnabliki og Messi spyrnir í bolt-
ann. Þetta er geggjuð markvarsla og
þvílíkur kraftur í honum.
Þetta er úrvalshæð fyrir mark-
vörð, aðeins ofar eða neðar og þá
ertu of seinn. Það var keimlíkur
aðdragandi hvernig Hannes hegð-
ar sér rétt fyrir spyrnuna og svo
Szczęsny. Hann hoppar og lemur
í slána, Hannes klappar saman
höndum rétt áður en hann spyrnir.
Hvort slíkt hafi áhrif er reyndar
ómögulegt að segja.“
Messi stækkar augnablikið
Það að verja frá Lionel Messi á þessu
stærsta sviði fótboltans gerir augna-
blikið enn stærra fyrir markvörð.
„Það gerir þetta allt miklu stærra.
Í tilfelli okkar Íslendinga og þá sér-
staklega fyrir Hannes, þá er hans
augnablik í mínum bókum stærra,
Ísland nær þarna stigi í sínum fyrsta
leik á HM. Það að verja á móti Messi
er hins vegar alltaf stórt augnablik,
sama hvernig úrslitin verða," segir
Guðmundur, um augnablikin sem
alla markverði dreymir um. n
Í fótspor Hannesar á HM
Eitt frægasta
augnablik í
íslenskri íþrótta-
sögu var þegar
Hannes Þór
varði frá Messi
sumarið 2018.
Fréttablaðið/
Getty
Pólski mark-
vörðurinn var
ekki lengi að
lesa hvað Messi
ætlaði sér að
gera. Messi
þekkir það vel
að klikka á HM.
Fréttablaðið/
Getty
hoddi@frettabladid.is
Fótbolti KSÍ hefur á undanförnum
dögum verið að framlengja samn-
inga við tæknifyrirtæki. Breyting-
arnar í heimi íþrótta hafa verið
hraðar á undanförnum árum og er
nú allt greint í frumeindir. Til þess
þarf tækni og búnað og KSÍ, sem
var eftirbátur í þessum málum,
hefur tekið stór skref fram á við
undanfarin ár.
Í vikunni hefur KSÍ framlengt
samninga sína við FootoVision og
Spiideo sem eru erlend fyrirtæki.
FootoVision sér um gagnasöfnun
og leikgreiningu í tengslum við
leiki landsliða (optical tracking).
KSÍ samdi við FootoVision til
reynslu um mitt ár 2021 og nú hefur
verið undirritaður samstarfssamn-
ingur sem gildir til ársloka 2023.
KSÍ framlengir samning sinn
við Spiideo um þrjú ár. Spiideo er
fyrirtæki sem selur fastar mynd-
bandsupptökuvélar sem eru not-
aðar til leikgreiningar á meðan á
leik/æfingu stendur, og Spiideo
búnaðurinn sér um upptökur og
geymslu á upptökum.
Laugardalsvöllur og um tuttugu
aðrir vellir á Íslandi eru útbúnir
myndavélum frá Spiideo. Í gegnum
Spiideo á völlum félaganna er til
að mynda möguleiki á að streyma
leikjum yngri f lokka og gera þar
með aðstandendum og stuðnings-
mönnunum kleift að horfa á leiki í
beinni útsendingu. n
Tækni og takkaskór hjá KSÍ
Sveindís Jane á landsliðsæfingu.
Fréttablaðið/Valli
Á undanförnum árum
hefur tæknin orðið
mikilvægt tól.
16 Íþróttir 2. desember 2022 FÖSTUDAGURÍþRóTTiR Fréttablaðið 2. desember 2022 FÖSTUDAGUR