Fréttablaðið - 02.12.2022, Blaðsíða 22
Flaggskip íslensku kabarett-
senunnar, Reykjavík Kabarett,
snýr aftur eftir langt hlé eftir
barneignir og heimsfaraldur. Jóla-
skórnir verða pússaðir, Hjössa er
að strauja jóla-hlébarðabikiníið og
Lalli töframaður brýnir heftibyss-
urnar. Hópurinn verður í Þjóð-
leikhúskjallaranum næstu þrjú
föstudagskvöld ásamt glæsilegum
gestum. „Það verða einhverjir
algjörir töfrar þegar svona reynslu-
bobbingar koma saman. Mikil
fagmennska í ruglinu,“ segir Gógó
Starr draglistamaður.
„Það hefur mikið vatn runnið
til sjávar frá fyrstu sýningu
hópsins 2016. Þá voru engir að
gera svona sýningar en nú eru þær
orðnar fastur liður í skemmtanalífi
landans,“ segir Ragnheiður Maísól
sem er einn stofnenda hópsins.
„Við erum langflest að koma fram
í alls konar öðrum kabarettum, en
þegar þessi hópur kemur saman,
ég, Gógó Starr, Lalli töframaður
og Margrét Maack, þá erum við
Reykjavík Kabarett.“
Mikið verður um dýrðir, segja
þau. „Giljagaur sýnir nýtt og mjög
sexí atriði, Margrét Maack er að
vinna í atriði um rjúpu og
Kvartettinn Barbari
verður með okkur á
öllum sýningum.“ n
Reykjavík
Kabarett snýr aftur
n Jólakabarett
Nostalgískur risarækjukokteill með eitís-ívafi
n Uppskriftin
2.
des
3.
des
4.
des Föstudagur Laugardagur Sunnudagur
Hvað er að gerast um helgina?
n Jólamarkaður Skógarlundar
kl. 14.00-16.00
Skógarlundur, Akureyri
Skógarlundur er miðstöð virkni
og hæfingar fyrir fólk með lang-
varandi stuðningsþarfir. Húsið er
rautt á litinn og staðsett á horni
Dalsbrautar og Skógarlundar. Opið
er í dag, föstudag og á morgun,
laugardag.
n Eldklárar og eftirsóttar – jóla-
spuni kl. 17.30
Tjarnarbíó
Eldklárar og eftirsóttar er sjálf-
stæður hópur kvenkyns grínista
sem sérhæfir sig í spuna. Þetta
samansafn gáfuðustu, heitustu og
fyndnustu kvenna landsins hefur
það eitt að markmiði að kitla
hláturtaugar áhorfenda.
n Ari Eldjárn prófar nýtt grín
kl. 20.00
Edinborgarhúsið, Ísafirði
Sumt verður lesið af blöðum,
annað samið á staðnum og
brandararnir ýmist fyndnir eða
ekki. Hér er um að ræða einstakt
tækifæri til að reka augun inn á
verkstæðið og sjá hvernig uppi-
stand verður til og slípast. Hver og
ein sýning er einstök.
n Reykjavík JÓLAkabarett kl. 22
Þjóðleikhúskjallarinn
Fram koma: Maísól, Lalli töfra-
maður, Gógó Starr, Margrét Maack,
Dan the Man, Júllala og Kvartett-
inn Barbari. Sjá umfjöllun hægra
megin á síðunni.
n Vetrarfuglaskoðun fyrir
krakka: Matseðill fuglanna
kl. 11.00
Grasagarður Reykjavíkur
Fuglalífið í Grasagarðinum og
fuglafóðrun. Þátttakendur eru
hvattir til að koma með kíki með
sér en einnig verður hægt að fá
lánaðan kíki á staðnum.
n Jólagestir Gallery Ports og
Laufabrauð kl. 14.00
Gallery Port, Laugavegi 32
Fjöldi listafólks tekur þátt og má
þar finna bæði fulltrúa grasrótar-
innar í íslenskri myndlist og svo
margreyndari og eldri í hettunni.
Ný verk munu bætast við á vegg-
ina jafnt og þétt eftir því sem líður
á aðventuna.
n Nemendasýning hjá Dansi
Brynju Péturs kl. 14 og 18
Íþróttahúsi Seljaskóla
Besta danspartí ársins og ómiss-
andi fyrir dansáhugasama!
n Jólaboð Hinsegin kórsins
kl. 16.00
Bústaðakirkja
Þekkt dægurlög og klassísk jólalög
sem við sönglum yfir kökubakstr-
inum. Í öllu falli er nóg til frammi!
n Freyðijól kl. 20.30
Bæjarbíó, Hafnarfirði
Jólakabarettinn freyðijól undir
stjórn Mc Gunnellu býður upp
á stórkostlega skemmtun með
daðrandi söng, glitrandi tónlist og
swingandi bröndurum.
n Grýla, Leppalúði og Svavar
Knútur kl. 14.00
Þjóðminjasafnið
Grýla og Leppalúði skemmta í
Þjóðminjasafninu. Söngvaskáldið
Svavar Knútur mun vísa þeim
veginn með söng.
n Opnar vinnustofur SÍM,
kl. 14.00–18.00
SÍMhúsið, Seljavegi 32
Hægt verður að ganga á milli
vinnustofa, spjalla við listamenn
og kaupa sér myndlist fyrir há-
tíðirnar. Léttar veitingar í boði.
n Jólastjörnusmiðja
Hönnunarsafn Íslands kl. 13
Myndlistarkonan Jóhanna Ásgeirs-
dóttir leiðir smiðjuna. Jólastjörnur
í anda Einars Þorsteins, hönnuðar
og stærðfræðings. Smiðjan er
ætluð allri fjölskyldunni og þátt-
taka ókeypis.
n Líður að tíðum, aðventu-
tónleikar kl. 17.00
Hallgrímskirkja
Aðventutónleikar er ríkur þáttur í
starfi kóra Domus vox og Mar-
grétar J. Pálmadóttur. Efnisskráin
inniheldur klassísk lög með kær-
leiksríkum boðskap jólanna.
n Diddú – Jólastjarna í 25 ár
kl. 20.00
Harpa
Diddú stígur á stóra sviðið í Hörpu
í tilefni þess að metsöluplatan
Jólastjarna frá árinu 1997 er 25 ára
um þessar mundir. Platan verður
flutt í heild sinni auk uppáhalds-
jólalaga Diddúar.
Jólalög á Apótekinu
Austurstræti 16, 101 Reykjavík
Karlakór Kjalnesinga lítur
inn á Apótekinu á laugardag
klukkan 14. Þeir syngja fyrir
utan og verða svo með stuttar
innkomur í eftirmiðdaginn á
meðan fólk nýtur veitinga.
„Maður saknaði auðvitað alls
konar viðburða í faraldrinum
og karlakórsheimsóknin var
það sem kom með jólin svolítið
til okkar,“ segir Bergdís Örlygs-
dóttir á Apótekinu.
„Svo er þetta æðisleg leið
til að fagna því að jólaseðill-
inn okkar er kominn á fullt.“
Jólaseðillinn er bland af
hefðbundnum jólaréttum og
einkennisstíl Apóteksins. „Svo
má ekki gleyma jólakúlunni –
sem er sérstakur eftirréttur hjá
okkur í desember.“
Jólatetími á
Fjallkonunni
Hafnarstræti 1-3, Reykjavík
Jólatetíminn á Fjallkonunni
er samansafn smárétta sem er
æðislegt að njóta í eftirmið-
daginn. Desemberkvöldin eru
jafnan troðbókuð, svo eftirmið-
dagurinn er fínn til að gera vel
við sig, fyrir eða eftir jólagjafa-
innkaupin, í lok vinnudags eða
í upptakti jóladjammsins. Vel
útilátið og skemmtilegir réttir. n
friminutur@frettabladid.is
Rækjukokteillinn klassíski er
algjör nostalgía og á vel við sem
forréttur með helgarmatnum.
Rækjukokteillinn er forréttur sem
naut mikilla vinsælda á sjöunda
og áttunda áratugnum í Norður-
Evrópu og Bandaríkjunum og var
fastur liður á matseðlum flestra
veitingahúsa. Í Bandaríkjunum
er „shrimp cocktail“ gerður með
risarækjum sem bornar eru fram
með rauðri „cocktail“-sósu sem
yfirleitt samanstendur af chili-
sósu, tabasco, Worchester og smá
sítrónu.
Evrópski rækjukokteillinn er
aftur á móti upprunalega frá Bret-
landi og þar eru notaðar rækjur
eins og við þekkjum þær sem
bornar eru fram með sósu sem
heitir „Marie Rose“ en sú sósa er
einnig stundum kölluð „kokteil-
sósa“. Samkvæmt heimildum um
sögu sósunnar er breska matar-
konan Fanny Cradock yfirleitt
talinn höfundur þessarar sósu.
Hún naut mikilla vinsælda í matar-
gerð á fyrstu áratugunum eftir
seinni heimsstyrjöldina. Gaman er
að geta þess að Marie Rose-sósan
er náskyld Þúsundeyjasósunni.
Hér er komin uppskrift að klass-
íska rækjukokteilnum með risa-
rækjum sem bráðnar í munni.
Risarækjukokteill
fyrir 4–6
450 g eldaðar risarækjur, þíddar
4 dl Marie Rose sósa/Þúsundeyja-
sósa (sjá uppskrift til hliðar)
1-2 stk. sítrónur
½ agúrka
1 stk. salatblaðhaus
Handfylli af steinselju eða
sprettum
1–2 stk. ferskt smátt
saxað chili, má
sleppa
Marie
Rose-sósan
2 dl majónes að
eigin vali
1–2 msk. sýrður
rjómi að eigin vali
1,5 dl Hunts
tómatsósa
Væn skvetta (eða
tvær) af Worches-
ter-sósu
Skvetta af Tabasco
Sítrónusafi eftir smekk
Byrjið á því að píska saman
majónes, sýrðan rjóma og tómat-
sósu. Bætið Worchester-sósu og
tabasco saman við. Kreistið
smá sítrónusafa út í og
pískið vel saman. Geymið
í kæli. Setjið síðan rækju-
kokteilinn saman.
Það er gaman að bera
hann fram í kokteil-
glasi en auðvitað má
líka hafa réttinn á
diski.
Fyrst eru
salatlauf/blöð sett
í botninn á glasinu.
Það er hægt að nota
lambhagasalat, salat-
blöndu, romaine eða
jafnvel gróf saxað jökla-
salat. Þá er skammtur af
risarækjum settur ofan í og
á barminn á kokteilglasinu
ásamt sítrónu- og gúrkusneið-
um, sósan yfir og loks skreytt
með smátt söxuðu chili, sprettum
og/eða steinselju. n
4 kynningarblað A L LT 2. desember 2022 FÖSTUDAGUR