Fréttablaðið - 02.12.2022, Side 38
Það finna margir fyrir
streitu í aðdraganda jólanna
enda er í nógu að snúast,
svo sem gjafainnkaupum,
bakstri, þrifum, matargerð,
jólatónleikum, heimsóknum
til vina og vandamanna, að
kaupa í matinn og svo mætti
lengi telja.
gummih@frettabladid.is
Á vefnum velvirk.is, sem er í
umsjón forvarnasviðs VIRK starfs-
endurhæfingarsjóðs, hafa verið
tekin saman góð ráð sem geta
komið að gagni fyrir jólin.
Búðu til lista
Listi er mikilvægur til að ná yfirsýn
og öðlast hugarró. Gott er að byrja
á listanum snemma þegar allt er
enn spennandi og þú hlakkar til.
Merktu við hver gerir hvað og láttu
viðkomandi vita. Þú munt eflaust
ekki ná að gera allt á listanum og
það er í góðu lagi.
Forgangsraðaðu
Þegar listinn er svo að segja klár,
renndu yfir hann og reyndu að
forgangsraða og grisja. Þarf allt
þetta meðlæti með steikinni, þarf
að þrífa allt í hólf og gólf? Hvað má
bíða fram yfir áramót?
Fáðu hjálp
Oft safnast verkefni upp hjá þeim
sem skipuleggur og er með lengsta
listann. Virkjaðu aðra heimilis-
menn til að aðstoða. Það er sjálf-
sagt að dreifa verkefnum og flestir
hafa gaman af undirbúningi jóla í
hæfilegu magni.
Skipuleggið í sameiningu
Það er gott og gagnlegt að fjöl-
skyldan ræði saman um undir-
búning fyrir jólin. Hvað á að vera
í matinn, hugmyndir að gjöfum
og hvaða jólamyndir á að horfa
á (enn einu sinni!). Ræðið líka ef
gera þarf breytingar á hefðum,
það er merkilegt hvað margir eru
vanafastir á jólum og því er gott að
láta vita með fyrirvara ef bregða á
út af vananum.
Settu þér fjárhagsramma
Það er aldrei jafn auðvelt að falla
fyrir freistingum og á þessum
tíma og því er það skynsamlegasta
sem þú gerir að setja þér ramma
fyrir útgjöld. Miðaðu við ákveðna
upphæð í gjafir fyrir hvern og
einn. Það gæti tekið aðeins lengri
tíma að finna eitthvað sniðugt
fyrir lægri upphæð, en oft verða
gjafirnar persónulegri og meiri
hugsun á bak við.
Stilltu væntingum í hóf
Þegar við hefjum undirbúning
erum við óþarflega bjartsýn, við
ætlum að hafa allt klárt, mála, þrífa
eins og fagmenn og prófa allar
uppskriftirnar sem við erum búin
að safna. Allar gjafir verða úthugs-
aðar og allir í góðu skapi, sem sagt
hin fullkomnu jól! Því miður
gengur þetta sjaldnast þannig fyrir
sig, við gleymum að taka með í
reikninginn að við höfum sáralít-
inn tíma, allt mögulegt kemur upp
á og við munum aldrei ná þessum
markmiðum. Best er því að byrja á
núllpunkti með væntingar – eða í
það minnsta að hafa þær raun-
hæfar. Hjálpið börnunum að stilla
sínum væntingum í hóf.
Skapaðu rólegar stundir
Mikilvægt er að skapa rólegar
stundir í aðdraganda jóla til að
vinna gegn því áreiti sem dynur
á okkur á þessum árstíma.
Slökktu á síma, sjónvarpi og
útvarpi þegar þú kemur heim
og reyndu að ná áttum. Njóttu
þess að hafa þögn eins lengi og
þú mögulega getur. Farðu út og
viðraðu þig, það skilar sér í meiri
orku og jákvæðni.
Gerðu góðverk
Það er vel þess virði að bæta því á
listann að gera eitthvað jákvætt
fyrir þá sem eiga um sárt að binda.
Þekkirðu einhvern sem er einn eða
á erfitt yfir jólin? Gætirðu boðið
þig fram í sjálfboðavinnu í nokkra
tíma, keypt jólakort af góðgerðar-
samtökum eða lagt þeim lið á
annan hátt? Sýnt hefur verið fram
á að með því að gera góðverk ertu
ekki aðeins að láta gott af þér leiða,
heldurðu bætirðu eigin líðan og
dregur úr streitu. Fáðu krakkana
í lið með þér og sýndu þeim hve
gefandi er að aðstoða aðra.
Hátíð barnanna
Mikilvægt er að huga fyrst og
Mikilvægt að skapa rólegar stundir
Það er gott að fara í göngutúr og safna orku í aðdraganda jólanna. MYND/GETTY
fremst að börnunum og þeirra
upplifun í kringum jólin. Það er
eitthvað við hátíðina sem gerir það
að verkum að minningar henni
tengdar greypast í hugann, oft
dásamlegar, en því miður einn-
ig slæmar. Nokkur okkar finna
til kvíða þegar jólin nálgast, sem
magnast upp í því jólavafstri og
auglýsingaflóði sem nær útilokað
er að komast hjá. Besta gjöfin til
barnanna er tími, hlýja og óskipt
athygli.
Hreyfing og næring
Reyndu að hreyfa þig reglulega og
borðaðu skynsamlega. Þetta getur
reynst erfitt á aðventunni, en þú
færð aukna orku og vinnur gegn
áhrifum streitunnar ef þú heldur
þínu striki hvað þetta varðar. n
16 fréttablaðið 2. desember 2022jól 2022