Fréttablaðið - 02.12.2022, Side 46
Eftir að pakkar
hafa verið teknir
upp spilum við gjarnan
borðspil, stundum langt
fram eftir nóttu. Sú hefð
skapaðist með nýjum
fjölskyldumeðlimum.
Áslaug Arna Sigurbjörns-
dóttir, ráðherra háskóla,
iðnaðar og nýsköpunar, segir
að aðventan skipi sérstakan
sess hjá sér. Þegar jólaljósin
kvikna í borginni og lýsa
upp skammdegið vakna
minningar um góða tíma.
elin@frettabladid.is
Það hefur verið annasamt í
þinginu að undanförnu og verður
fram til jóla. Ganga þarf frá fjár-
lagafrumvarpi næsta árs áður en
þingmenn fara í jólafrí. Áslaug
Arna segist ætla að njóta aðvent-
unnar eftir fremsta megni þrátt
fyrir annir. „Ég hef ekki komist í að
skreyta í kringum mig heima en
mér finnst mjög skemmtilegt að sjá
jólaljósin í borginni,“ segir hún og
bætir við: „Ég er þó búin að kaupa
nokkrar jólagjafir. Ég gríp gjarnan
tækifærið ef ég er á ferðinni og sé
eitthvað fallegt. Mér finnst gaman
að gefa gjafir og tók við því hlut-
verki mömmu minnar að finna
gjafir sem aðrir í fjölskyldunni
ætla að gefa. Kannski hefur það
verið heldur minna síðustu ár
vegna þess hversu þétt dagskrá er í
þinginu fyrir jólin. Síðustu dagana
fyrir jól hef ég þó oft skotist út á
milli atkvæðagreiðslna í þinginu
til að kaupa síðustu jólagjafirnar,“
segir hún.
Ráðuneyti Áslaugar Örnu, sem
heitir því langa nafni háskóla-,
iðnaðar- og nýsköpunarráðu-
neytið, var sett á laggirnar í febrúar
á þessu ári og hefur verið í mótun
allt árið. „Það er ótrúlega ánægju-
legt að vinna að málaflokkum
sem maður brennur fyrir og það er
ákveðinn hátíðarbragur yfir því að
leggja lokahönd á verkefni ársins.
Auðvitað reynir maður að púsla
vinnunni saman við dýrmætan
tíma með fjölskyldu og vinum
ásamt því að undirbúa jólin,“ segir
hún.
Jólastemningin byrjar alltaf með
afmælinu mínu
Áslaug Arna varð 32 ára þann 30.
nóvember og segir afmælisdaginn
alltaf marka upphaf aðventunnar.
„Jólin hefjast hjá mér eftir afmælið
mitt, þá fer ég að huga meira að
jólunum og geri mitt til að skapa
skemmtilega jólastemningu.
Aðventan er í mínum huga hátíð
þar sem samvera með vinum og
fjölskyldu er í hávegum höfð. Það
er fátt sem mér finnst skemmti-
legra og meira nærandi en að
hitta dýrmæta vinahópa sem hafa
fylgt manni í gegnum árin. Þótt
ég hafi nóg að gera finnst mér
ótrúlega skemmtilegt að undirbúa
samverustundir með vinum. Ég
skipulegg gjarnan eitthvað óvænt
og spennandi fyrir einn vinkonu-
hópinn minn á aðventunni. Þær
styðja mig í mínum verkefnum og
ég vil sýna þeim þakklæti mitt og
endurgjalda það. Það er svo gaman
að gefa til baka og gera eitthvað
gleðilegt saman. Við kíkjum gjarn-
an saman í miðbæinn, skoðum
íslenska hönnun, förum á tónleika
eða listsýningar og borðum saman
góðan mat. Alltaf eitthvað nýtt
á hverju ári, “ segir Áslaug Arna
sem á stóran vinahóp. „Ég er mjög
lánsöm með vini og fjölskyldu, það
er mín stærsta lukka,“ segir hún og
bætir við að tónleikar með Bríeti
í Fríkirkjunni séu meðal annars
komnir á dagskrá yfir hátíðirnar.
Gæti unnið baksturskeppni
Áslaug Arna segist vera lúmskt
góður bakari ekki síður en
kollegi hennar í fjármálaráðu-
neytinu. Aðspurð telur hún sig
myndi vinna hann í keppni um
bragð en ekki endilega í útliti og
skreytingum. Hún segist alltaf
baka sörur fyrir jólin með vin-
konum sínum. „Mamma og besta
vinkona hennar, Magga, kenndu
mér að baka sörur og nú hef ég
verið að kenna vinkonum mínum.
Við eigum saman góðan dag í
Ãslaug Arna segist hafa mikla ástríðu fyrir öllu því sem fylgir starfinu, ástríðu og metnað fyrir því að við gerum betur
sem samfélag. Þrátt fyrir annir ætlar hún að njóta aðventunnar og jólanna. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Lúmskt góður bakari
ekki síður en Bjarni
bakstrinum fyrir jólin. Mér finnst
gaman að halda í þessa hefð frá
mömmu og baka fullt af sörum,“
segir hún.
Jólaengill frá mömmu
Áslaug segist alltaf kaupa sér litla,
feita furu, eins og hún orðar það,
og skreytir sem jólatré. „Furan
gefur frá sér góðan ilm sem
minnir á jólin þegar ég var barn
en foreldrar mínir voru alltaf með
furutré. Hátíðirnar snúast líka um
hefðir og við sækjum í það sem við
upplifðum sem börn með fólkinu
okkar,“ segir hún. Áslaug segist
ekki hafa hugsað mikið um það
þegar hún var yngri að safna sér
jólaskrauti. „Á síðustu jólunum
sem ég átti með móður minni gaf
hún okkur systkinunum mjög fal-
legan jólaengil og það er dásam-
lega notalegt að taka hann upp á
aðventunni og minnast hennar.
Engill sem gefur manni hlýjar
tilfinningar,“ segir Áslaug, en í
nóvember fyrir tíu árum missti
hún móður sína.
Spilað fram á nótt
Áslaug segir að systir hennar, Nína
Kristín, hlakki óstjórnlega til
jólanna og sé mikið jólabarn. „Fjöl-
skyldan er alltaf saman á aðfanga-
dag og það er svo gaman að fylgjast
með spenningnum hjá henni yfir
öllu. Okkur finnst gott og mikil-
vægt að eyða jólunum saman. Jólin
voru erfiður tími fyrst eftir að
mamma féll frá. Það varð stórt
skarð í jólahátíðina okkar. Við
höfum síðan skapað okkur fallegar
hefðir þar sem við höldum minn-
ingu hennar á lofti. Hún kenndi
mér að láta stressið ekki ráða för
á aðventunni. Streitan skemmir
hinn eina sanna jólaanda.“
Áslaug segist hlakka mikið til
jólanna þar sem bróðir hennar
sé kominn með barn svo fjöl-
skyldan hefur stækkað. „Lítill
Sigurbjörn kom í heiminn á árinu
og það verður gaman að vera með
honum. Þannig að það er alltaf að
fjölga yfir hamborgarhryggnum,
líka eftir að pabbi gifti sig að nýju
þar sem ég fékk auka systkini.
Eftir að pakkar hafa verið teknir
upp spilum við gjarnan borðspil,
stundum langt fram eftir nóttu.
Sú hefð skapaðist með nýjum
fjölskyldumeðlimum og er mjög
skemmtileg,“ segir hún.
Þegar Áslaug er spurð hvort hún
hafi tíma til að lesa jólabækurnar,
svarar hún því játandi. „Ég reyni
alltaf að lesa einhverjar nýjar,
íslenskar bækur. Það eru helst
glæpasögur eftir Ragnar og Yrsu.
„Ætli Ragnar og Katrín Jakobs rati
ekki í einhverja jólapakka þetta
árið.“
Hvílir hugann á hestbaki
Ferðalög hafa heillað Áslaugu og
hún segir einstakt að fá að kynnast
annars konar menningu. Hún
hefur dvalið erlendis um jólin og
hefur fundist það mjög áhugavert
þótt það sé ekki eins jólalegt. „Við
fjölskyldan vorum ein jólin á Spáni
og það var góð tilbreyting. Maður
losnaði við mikið stúss sem fylgir
jólaundirbúningnum, við höfum
öll gott af því að breyta stundum
til en ég myndi ekki vilja gera það
að reglu að vera annars staðar en
heima á jólunum. Ferðalög geta
upp að vissu marki talist áhugamál
hjá mér en komast þó ekki upp
fyrir hestamennskuna. Hestar
eru mitt stærsta áhugamál og ég
reyni að komast á hestbak svo
oft sem mögulegt er. Hestar eru
svo magnaðar skepnur, næmir og
fallegir. Það er ekkert betra en að
hvíla hugann á hestbaki,“ segir
Áslaug, sem ætlar að eiga góðan
dag fyrir jólin með starfsfólkinu
í ráðuneytinu þegar sprettlota
verkefna er afstaðin, eins og hún
orðar það. „Þá munu starfsmenn
kynna niðurstöður verkefna sinna.
Það er partur af breyttu verklagi í
ráðuneytinu. Ég vil hafa forgangs-
verkefni skýr og að framvinda
verkefna sé sýnileg.“
Með ástríðu fyrir starfinu
Þegar þú horfir til baka yfir þetta
ár í nýju ráðuneyti, hverju ertu
stoltust af?
„Ég er stolt af þeim breytingum
sem við höfum unnið að í ráðu-
neytinu og þeim málum sem við
höfum klárað eða komið í farveg.
Síðan er ég ótrúlega stolt af ritinu
sem ég gaf út á dögunum en það
er byggt á þeim verkefnum sem ég
hyggst ná árangri með fyrir Ísland
í mínum málaflokkum. Það er
hægt að skoða ritið á aslaugarna.
is en það byggir á að bæta lífs-
gæði og skapa ný tækifæri með
framtíðarsýn að leiðarljósi. Starf
stjórnmálamanns er svo miklu
meira en þau daglegu verkefni sem
við fáumst við. Maður þarf að hafa
mikla ástríðu fyrir öllu því sem
fylgir starfinu, ástríðu og metnað
fyrir því að við gerum betur sem
samfélag.
Ég trúi á Ísland og það er
ástæðan fyrir því að ég hef ákveðið
að helga líf mitt stjórnmálum,“
segir Áslaug Arna, sem ætlar þó að
gefa sér smávegis tíma milli jóla og
nýárs til að slappa af og njóta með
fjölskyldu sinni og vinum. n
24 fréttablaðið 2. desember 2022jól 2022