Fréttablaðið - 02.12.2022, Side 62
Myndi ekki velja
annan afmælisdag
Björn ásamt
krökkunum
sínum á afmæl-
inu sínu í fyrra
þegar hann varð
fertugur.
MYNDIR/AÐSENDAR
Það hefur stundum
verið grínast
með að Björn sé
jesúbarnið vegna
afmælisdagsins.
Björn í miðjunni ásamt frændsystkinum sínum. Þau eiga öll afmæli á jól-
unum og fengu því stundum hvert sína eigin afmælisköku í jólaboðinu.
Vélstjórinn Björn Kolbeins-
son fæddist á aðfangadag
árið 1981. Þó að afmælið
hans hafi oft fallið í skugga
jólanna kvartar hann ekki,
enda jólin uppáhaldshátíðin
hans. Frændsystkin Björns
eiga líka afmæli á jólunum
og stundum fengu þau hvert
sína köku í jólaboðinu hjá
ömmu og afa.
sandragudrun@frettabladid.is
Björn segir að þó að jólin séu þess
valdandi að oft er ekki gert mikið
úr afmælinu hans, þá gleymist það
aldrei. Hann þarf ekki að segja
fólki afmælisdaginn nema einu
sinni og það man hann.
„Ég hætti að bjóða í afmæli
svona 11 eða 12 ára. Það bara
fittaði aldrei almennilega inn í
dagskrána. Fram að því hélt ég
stundum upp á það 27. eða 28.
desember með öðrum sem áttu
afmæli í kringum jólin,“ segir
hann.
Á æskuárum Björns hélt fjöl-
skyldan upp á afmælið hans
í hádeginu á aðfangadag. En
klukkan eitt var það búið af því
allir voru uppteknir við að undir-
búa jólin.
„Hádegismaturinn á aðfanga-
dag var í raun afmæliskaffið mitt.
Þó það hafi verið jólastemning í
matnum, jólagrautur
og svona. En í
hádeginu fékk ég
afmælisgjöfina frá
fjölskyldunni og líka pakkana sem
höfðu verið sendir til mín frá ætt-
ingjum,“ útskýrir Björn.
„Ég var heppinn að því leyti
að ég kem úr stórri fjölskyldu,
Mamma og pabbi eiga bæði fimm
systkini. Þannig að oft sendi fólk
sem bjó ekki í sama bæ afmælis-
pakka til mín, því það var hvort
sem er að senda jólapakka. Þannig
að þó ég hafi ekki fengið pakka
frá bekkjarsystkinunum, þá fékk
ég stundum pakka frá ættingjum
í Reykjavík og á Akureyri, en ekki
systir mín sem á afmæli í október.
Ég græddi þess vegna smá á
þessum afmælisdegi.“
Björn ólst upp á Stykkishólmi og
átti þar frændsystkin sem eiga líka
afmæli á jólunum.
„Una frænka á afmæli á öðrum
í jólum og Ágúst frændi og bróðir
hennar á jóladag,“ segir Björn, en
svo skemmtilega vill til að Una
frænka hans eignaðist síðan dóttur
sem á líka afmæli á jóladag, það
mætti því halda að það sé ætt-
gengt í fjölskyldunni að fæðast á
jólunum.
„Ágúst er svolítið eldri en ég
og Una, svo ég man ekki mikið
eftir að við höfum öll haldið upp
á afmælin okkar saman. Fyrstu
árin mín var eitthvað haldið upp
á afmælin okkar allra heima hjá
frænda mínum. Þá fengum við öll
köku, en ég man ekki mikið eftir
því. Það fellur allt í skuggann af
jólunum,“ segir Björn.
Alltaf verið mikið jólabarn
Þrátt fyrir að lítið hafi verið haldið
upp á afmælið á æskuárunum
segist Björn aldrei hafa óskað þess
að eiga annan afmælisdag.
„Þetta er minn uppáhaldsárstími
og mín uppáhaldshátíð þannig að
ég myndi ekki vilja hafa þetta ein-
hvern veginn öðruvísi. Mér hefur
aldrei sárnað það að lítið hafi verið
haldið upp á afmælið mitt. Það
voru hvort sem er jól og mér fannst
það bara fínt. Ég hef alltaf verið
mikið jólabarn og elska jólin. Ætli
ég haldi ekki bara enn meira upp á
jólin til að bæta upp fyrir afmælis-
leysið,“ segir Björn og hlær.
„Ég hélt fyrst upp á stórafmæli
þegar ég var þrítugur. Það var
í fyrsta sinn sem ég hélt upp á
afmælið mitt frá því ég var 12 ára.
Svo hélt ég upp á fertugsafmælið
mitt núna í ágúst, en það mátti
ekki halda upp á það á sínum tíma
út af veirunni,“ segir hann.
Engin jólastemning í Barcelona
Í dag er Björn búsettur í Barcelona
með katalónskri eiginkonu sinni
og börnum þeirra. Hann vinnur
önnur hver jól á skipi en fer alltaf
heim til Íslands með fjölskyldunni
sinni þegar hann á frí og heldur
upp á jólin með foreldrum sínum.
„Þá verður allt að vera eins og
það var þegar ég var lítill. Það
voru margar jólahefðir heima hjá
mömmu og pabba og ég vil halda
í þær. Einu jólin sem ég hef haldið
upp á úti í Barcelona voru þegar
konan mín var ólétt. Mér fannst
vanta alla stemningu í þau, það
var einhver súpa í jólamatinn. Ég
kunni ekkert á þetta,“ segir hann
og hlær.
Hann segir að í Barcelona sé
24. desember enginn sérstakur
hátíðisdagur og jóladagur sé aðal-
dagurinn þar.
„Fjölskyldan mín hér úti myndi
varla samþykkja að ég eigi afmæli
á jólunum. Fyrir þeim á ég afmæli
daginn fyrir jól. Afmælisdagurinn
minn fellur því ekki í skuggann af
jólunum hér.“ n
Mér hefur aldrei
sárnað það að lítið
hafi verið haldið upp á
afmælið mitt. Það voru
hvort sem er jól og mér
fannst það bara fínt. Ég
hef alltaf verið mikið
jólabarn og elska jólin.
Allar nánari upplýsingar um Jólamarkaðinn
í Heiðmörk, Jólaskóginn á Hólmsheiði og
jólatrjáasölu á Lækjartorgi má finna á
heidmork.is
40 FRÉTTABLAÐIÐ 2. desember 2022JÓL 2022