Fréttablaðið - 02.12.2022, Page 94
Ef einhver elskar að skreyta
heimilið sitt fyrir jólin og
fara alla leið þá er það fagur-
kerinn og lífskúnstnerinn
Þórunn Högnadóttir stílisti.
sjofn@frettabladid.is
Þórunn er annáluð fyrir skreyting-
arnar sínar og skortir aldrei nýjar
hugmyndir þegar kemur að því að
fanga augað með glysi, glingri og
fallegum hlutum. Töfrar jólanna
eru vissulega til staðar á heimili
Þórunnar.
Jólahátíðin er uppáhaldsárstím-
inn hennar Þórunnar og veit hún
ekkert skemmtilegra en að skreyta
heimilið og setja í jólabúninginn.
„Ég byrja yfirleitt að skreyta í
nóvember. Ég get alveg gleymt
mér í öllum jólaundirbúningnum.
Innblásturinn sæki ég úti um allt,
bæði verslunum og á Pinterest.
Hugmyndirnar koma hreinlega til
mín, ég vill alls ekki kópíera aðrar
og geri ávallt mínar útfærslur.“
Þórunn segist eiga ofgnótt af
jólaskrauti.
Nota mikið lifandi greni
„Ég á mikið af alls konar jólaskrauti
og nota það oftast ár eftir ár, en
breyti um stað og rými. Í ár er ég
með mikið af lifandi greni um allt
hús, í vösum hér og þar. Hvít kerti
finnst mér alltaf vera hátíðleg. Lita-
þemað mitt í ár er silfur og gull í
bland við svart, mér finnst það svo
fallegt saman.“
Þórunn er ávallt með lifandi jóla-
tré. „Ég hef skipt um tegund á milli
ára og í ár er það normannsþinur.
Mér finnst normannsþinurinn vera
einstaklega jólalegt tré og ilmurinn
er svo góður.“
Súpa á aðfangadag
Jólahefðirnar hafa ríkt hjá
fjölskyldunni í áranna rás en
síðastliðin tvö ár hefur fjölskyldan
aðeins breytt til. „Til að mynda geri
ég í súpuna í hádeginu á aðfanga-
dag, sem var alltaf í forrétt, það er
virkilega notalegt að eiga stund
saman í hádeginu. Mamma var
alltaf með frómas í eftirrétt, en
núna höfum við bæði tiramisú og
mini-pavlovur, svona eitthvað fyrir
alla. Borðhaldið hefst ávallt kl. 18
á aðfangadag, þar sem hamborgar-
hryggurinn með tilheyrandi með-
læti er borinn fram og við hlustum
á kirkjuklukkurnar í Bústaðakirkju
hringja inn jólin, svo hátíðlegt. Við
borðum síðan yfirleitt eftirrétt-
inn í stofunni við arineld. Síðan
sér yngsta dóttirin um að dreifa
gjöfum á alla fjölskylduna í róleg-
heitum.“
Þórunn gefur hér lesendum
Fréttablaðsins uppskriftina af
aspassúpunni sem kemur úr
smiðju móður hennar, sem hún er
aðeins búin að tvista til.
Aspassúpa mömmu
2 dósir aspas, safinn notaður
1 l rjómi
70 g smjör
½ dl hveiti
1 búnt ferskur aspas
1 laukur
Koníaksdreitill
Kjötkraftur eftir smekk
Paprikuduft til skrauts
Byrjið á því að búa til smjörbollu
úr hveiti og smjöri, bætið við
aspassafanum ásamt rjóma og
krafti. Steikið lauk á pönnu upp úr
smá smjöri og koníaki síðan bætt
út í. Steikið aspas á pönnu í smjöri
og saltið til eftir smekk. Berið fram
með snittubrauði eða því brauði
sem ykkur langar í. n
Pallíettudrottning
töfrar fram jólin
Fjölskylda
Þórunnar
prúðbúin fyrir
jólahátíðina og
búið að skreyta
heimilið hátt
og lágt. Birgitta
Líf Brands-
dóttir, Þórunn
Högna, Brandur
Gunnarsson,
Tristan Þór
Brandsson og
yngsta heima-
sætan Leah Mist
Brandsdóttir.
Jóladressið hennar Þórunnar
er pallíettuflíkur en hún
elskar glimmer og pallíettur
og finnst einstaklega gaman
að klæða sig í þessar flíkur í
desember. “
Yngsta barnið á
heimilinu, Leah
Mist, fær að
njóta þess að
vera með jólatré
í herberginu
sínu í sínum
uppáhaldslit,
Kransana um
allt hús er
Þórunn búin
að eiga í mörg
ár. Þeir fá ávallt
nýtt útlit fyrir
hver jól.
Þórunni finnst gaman að nota mismunandi borðbúnað og fékk sér þessar
röndóttu skálar til að brjóta upp með sparistellinu. Hér notar hún glimmer-
stjörnur yfir skálarnar með smágreni og slaufu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
72 FRÉTTABLAÐIÐ 2. desember 2022JÓL 2022