Fréttablaðið - 02.12.2022, Side 128

Fréttablaðið - 02.12.2022, Side 128
Ég vildi helst að hún yrði skyldulesning fyrir alla á Íslandi. Sigrún Ólafsdóttir prófessor í félagsfræði Merkisatburðir 1961 Flugstöðin á Akureyrarflugvelli er opnuð. 1971 Sex arabísk furstadæmi gera með sér bandalag og mynda Sameinuðu arabísku furstadæmin. 1975 Skæruliðar Pathet Lao taka við stjórnartaumunum í Laos. 1979 Alþingiskosningar eru haldnar á Íslandi. 1980 Bandaríski trúboðinn Jean Donovan og þrjár nunnur eru myrt af dauðasveitum hersins í El Salvador. 1982 Bandaríkjamaðurinn Barney Clark fær fyrsta ígrædda gervihjartað. Hann lifir í 112 daga eftir að­ gerðina. 1983 Myndbandið við lag Michaels Jack­ son, „Thriller“, er frumsýnt á MTV. 1987 Málflutningur í málinu Hustler Magazine gegn Falwell fer fram fyrir Hæstarétti Bandaríkjanna. 1988 Benazir Bhutto verður fyrsti kven­ kyns forsætisráð­ herra íslamsks ríkis. 1990 Flokkur Helmuts Kohl sigrar fyrstu þingkosningar sam­ einaðs Þýskalands. 1993 Pablo Escobar, kólumbískur eiturlyfjabarón, er skotinn til bana í Medellin. 1993 Pehr G. Gyllenhammar, fram­ kvæmdastjóri Volvo, segir af sér eftir að hluthafar hafna sameiningu við Renault. 1993 Sjö geimfarar fara á geim­ skutlunni Endeavor til að gera við Hubble­sjónaukann. 1999 Fyrsta ríkisstjórn Norður­Írlands sem bæði mót­ mælendur og kaþólikkar eiga aðild að kemur saman. 2001 Bandaríska orkufyrirtækið Enron óskar eftir gjald­ þrotaskiptum. Hinn 2. desember 1986 endaði 36 leikja óslitin sigurganga Boston Cel­ tics á heimavelli sem stóð yfir í tæpt ár, í NBA­deildinni. Liðið tapaði þá fyrir Washington Bullets 117­109. At­ hygli vakti að leikurinn fór ekki fram á eiginlegum heimavelli Celtics, Boston Garden, heldur í íþróttahöll í Hartford í útjaðri Boston. Boston Celtics voru þá ríkjandi meistarar í NBA­deildinni og telja margir íþróttaspekingar að liðið sem félagið tefldi fram hafi verið eitt allra besta liðið í sögu NBA. Fyrir liðinu fór Larry Bird, en ásamt honum voru stjörnur á borð við Kevin McHale, Bill Walton, Robert Parish og Dennis Johnson. Á þessum árum var lið Los Angeles Lakers helsti keppinautur Celtics. Sá leikur sem Celtics tapaði á undan leiknum gegn Bullets var 6. desember 1985. Í millitíðinni urðu Celtics meist­ arar og var Larry Bird valinn verðmæt­ asti leikmaður deildarinnar. n Þetta gerðist: 2. desember 1986 Árs sigurganga á heimavelli endaði Sigrún vildi helst að bók Sigríðar yrði skyldulesning fyrir alla á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Í tilefni af Félagsfræðingadeg- inum sem er í dag verður blásið til málþings í Veröld, húsi Vigdísar þar sem ábyrgð okkar í ójöfnuði á heimsvísu verður tekin fyrir. lovisa@frettabladid.is arnartomas@frettabladid.is Félagsfræðingafélag Íslands býður til málþings og móttöku í dag í tilefni af Félagsfræðideginum. Á dagskránni, sem fer fram í Veröld, húsi Vigdísar, verður áherslan lögð á brýn málefni á alþjóðavettvangi og hverjar félagslegar afleiðingar séu af styrjöldum og ójöfnuði þjóða. Lykilerindi á málþinginu f lytur Sig- ríður Víðis Jónsdóttir, sem gaf nýlega út bókina Vegabréf: Íslenskt þar sem lesandanum er boðið með í ferðalög um heiminn. Í kjölfarið mun pallborð félagsvísindafólks bregðast við erindi Sigríðar og taka fyrir spurningar á borð við hver okkar ábyrgð sé við að viðhalda ójöfnuði á heimsvísu. „Að mörgu leyti er þessi bók hennar Sigríðar ein heild sem segir okkur samt tíu litlar sögur sem saman skapa ákveðna sýn á því hvert ástandið í mörg- um löndum sé, meðal annars vegna hluta sem við á Vesturlöndum höfum gert,“ segir Sigrún Ólafsdóttir, prófessor í félagsfræði, sem tekur þátt í umræð- unum í dag. „Þetta vekur líka spurningar um hver ábyrgð okkar sé á stöðu mála í löndum sem geta verið okkur mjög fjar- læg og hver ábyrgð okkar sé í að gera eitt- hvað í þeim málum.“ Sigrún segir þessar spurningar krist- allast vel í kaflanum um Afganistan og hversu langa forsögu aðstæður þar í dag eiga sér. „Miðað við allt sem var gert hefðum við kannski getað spáð fyrir um hvað myndi gerast þegar Bandaríkin drógu sig alfarið til baka 2021,“ segir hún. „Það þarf ekki að koma sérstaklega á óvart að talibanar tóku nánast samstundis yfir. Er það siðferðislega rétt að við getum gert þetta eftir að ákveðin lönd eru búin að vera með í alls konar afskiptum þarna áratugum saman og hafa að hluta til  skapað aðstæður sem gera það að verkum að þessi hópur, sem brýtur á mannréttindum, kemst til valda?“ Stóra og litla myndin Það er oft auðvelt að vera vitur eftir á og segja hvað betur hefði mátt fara, en getum við notað þessa þekkingu í dag til að gera ekki sömu mistökin aftur? „Sagan, og hvernig hún er sett í sam- hengi út frá ýmsum fræðigreinum á borð við félagsfræði, segir okkur að við getum aldrei sagt nákvæmlega til um hverjar af leiðingarnar verða af ákvörðunum okkar. En við erum samt með mikið af upplýsingum og tækjum sem við getum notað til að greina hverjar líklegar afleiðingar verða og geta hjálpað okkur til að taka réttar ákvarðanir.“ Sigrún segir að við gætum lært mikið af bók Sigríðar, ekki einungis í stóra sam- henginu, heldur líka sem manneskjur. „Ég vildi helst að hún yrði skyldu- lesning fyrir alla á Íslandi,“ segir hún. „Þetta sýnir okkur þessa stóru mynd í gegnum lítil dæmi þar sem áherslan er á sögu einstaklings í hverju landi en segir okkur svo miklu meira um stærri samfélagslega þætti á borð við ójöfnuð og stríð.“ Dagskráin í dag hefst klukkan 15 og stendur yfir í um tvo tíma. Þá verða einnig veitt verðlaun fyrir framúrskar- andi lokaritgerð í grunn- og meistara- námi í félagsfræði. n Ábyrgð okkar í ójöfnuði þjóða  Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, Ellert Kárason Austurbyggð 17, Akureyri, lést miðvikudaginn 16. nóvember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Ásta L Pálsdóttir Baldur Ellertsson Páll Á. Ellertsson Hallur Á. Ellertsson Kári Ellertsson Aldís B. Arnardóttir Ólöf Ellertsdóttir Þorvaldur Örlygsson og afabörnin öll Ástkær eiginmaður minn og besti vinur, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Leif Kordtsen Bryde lést á Sólvangi þann 22. nóvember 2022. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum starfsfólki Sólvangs í Lónakoti góða umönnun. Amalía Stefánsdóttir Stefán Kordtsen Bryde Ásdís Helgadóttir Anna María Bryde Þórður Ingvarsson Unnur Lára Bryde Stefán Hjaltested barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg móðir mín, barnsmóðir og systir, Sigríður Ásta Örnólfsdóttir lést á Hrafnistu v/Brúnaveg þann 26. nóvember. Útför hennar fer fram frá Áskirkju miðvikudaginn 7. desember kl. 13. Örnólfur Þór Hreiðarsson Hreiðar Sæmundsson Valdimar Örnólfsson Guðrún Úlfhildur Örnólfsdóttir TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 2. desember 2022 FÖSTUDAGUR
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.