Fréttablaðið - 02.12.2022, Qupperneq 128
Ég vildi helst að hún yrði
skyldulesning fyrir alla á
Íslandi.
Sigrún Ólafsdóttir
prófessor í félagsfræði
Merkisatburðir
1961 Flugstöðin á Akureyrarflugvelli er opnuð.
1971 Sex arabísk furstadæmi gera með sér bandalag og
mynda Sameinuðu arabísku furstadæmin.
1975 Skæruliðar Pathet Lao taka við stjórnartaumunum
í Laos.
1979 Alþingiskosningar eru haldnar á Íslandi.
1980 Bandaríski trúboðinn Jean Donovan og þrjár nunnur
eru myrt af dauðasveitum hersins í El Salvador.
1982 Bandaríkjamaðurinn Barney Clark fær fyrsta
ígrædda gervihjartað. Hann lifir í 112 daga eftir að
gerðina.
1983 Myndbandið við
lag Michaels Jack
son, „Thriller“, er
frumsýnt á MTV.
1987 Málflutningur í
málinu Hustler
Magazine gegn
Falwell fer fram
fyrir Hæstarétti
Bandaríkjanna.
1988 Benazir Bhutto
verður fyrsti kven
kyns forsætisráð
herra íslamsks ríkis.
1990 Flokkur Helmuts Kohl sigrar
fyrstu þingkosningar sam
einaðs Þýskalands.
1993 Pablo Escobar, kólumbískur
eiturlyfjabarón, er skotinn til
bana í Medellin.
1993 Pehr G. Gyllenhammar, fram
kvæmdastjóri Volvo, segir af
sér eftir að hluthafar hafna
sameiningu við Renault.
1993 Sjö geimfarar fara á geim
skutlunni Endeavor til að gera
við Hubblesjónaukann.
1999 Fyrsta ríkisstjórn NorðurÍrlands sem bæði mót
mælendur og kaþólikkar eiga aðild að kemur saman.
2001 Bandaríska orkufyrirtækið Enron óskar eftir gjald
þrotaskiptum.
Hinn 2. desember 1986 endaði 36
leikja óslitin sigurganga Boston Cel
tics á heimavelli sem stóð yfir í tæpt
ár, í NBAdeildinni. Liðið tapaði þá
fyrir Washington Bullets 117109. At
hygli vakti að leikurinn fór ekki fram á
eiginlegum heimavelli Celtics, Boston
Garden, heldur í íþróttahöll í Hartford
í útjaðri Boston.
Boston Celtics voru þá ríkjandi
meistarar í NBAdeildinni og telja
margir íþróttaspekingar að liðið sem
félagið tefldi fram hafi verið eitt allra
besta liðið í sögu NBA. Fyrir liðinu
fór Larry Bird, en ásamt honum voru
stjörnur á borð við Kevin McHale,
Bill Walton, Robert Parish og Dennis
Johnson.
Á þessum árum var lið Los Angeles
Lakers helsti keppinautur Celtics.
Sá leikur sem Celtics tapaði á undan
leiknum gegn Bullets var 6. desember
1985. Í millitíðinni urðu Celtics meist
arar og var Larry Bird valinn verðmæt
asti leikmaður deildarinnar. n
Þetta gerðist: 2. desember 1986
Árs sigurganga á heimavelli endaði
Sigrún vildi helst að bók Sigríðar yrði skyldulesning fyrir alla á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Í tilefni af Félagsfræðingadeg-
inum sem er í dag verður blásið til
málþings í Veröld, húsi Vigdísar
þar sem ábyrgð okkar í ójöfnuði á
heimsvísu verður tekin fyrir.
lovisa@frettabladid.is
arnartomas@frettabladid.is
Félagsfræðingafélag Íslands býður til
málþings og móttöku í dag í tilefni af
Félagsfræðideginum. Á dagskránni,
sem fer fram í Veröld, húsi Vigdísar,
verður áherslan lögð á brýn málefni á
alþjóðavettvangi og hverjar félagslegar
afleiðingar séu af styrjöldum og ójöfnuði
þjóða.
Lykilerindi á málþinginu f lytur Sig-
ríður Víðis Jónsdóttir, sem gaf nýlega
út bókina Vegabréf: Íslenskt þar sem
lesandanum er boðið með í ferðalög
um heiminn. Í kjölfarið mun pallborð
félagsvísindafólks bregðast við erindi
Sigríðar og taka fyrir spurningar á borð
við hver okkar ábyrgð sé við að viðhalda
ójöfnuði á heimsvísu.
„Að mörgu leyti er þessi bók hennar
Sigríðar ein heild sem segir okkur
samt tíu litlar sögur sem saman skapa
ákveðna sýn á því hvert ástandið í mörg-
um löndum sé, meðal annars vegna
hluta sem við á Vesturlöndum höfum
gert,“ segir Sigrún Ólafsdóttir, prófessor
í félagsfræði, sem tekur þátt í umræð-
unum í dag. „Þetta vekur líka spurningar
um hver ábyrgð okkar sé á stöðu mála í
löndum sem geta verið okkur mjög fjar-
læg og hver ábyrgð okkar sé í að gera eitt-
hvað í þeim málum.“
Sigrún segir þessar spurningar krist-
allast vel í kaflanum um Afganistan og
hversu langa forsögu aðstæður þar í dag
eiga sér.
„Miðað við allt sem var gert hefðum
við kannski getað spáð fyrir um hvað
myndi gerast þegar Bandaríkin drógu
sig alfarið til baka 2021,“ segir hún. „Það
þarf ekki að koma sérstaklega á óvart að
talibanar tóku nánast samstundis yfir.
Er það siðferðislega rétt að við getum
gert þetta eftir að ákveðin lönd eru
búin að vera með í alls konar afskiptum
þarna áratugum saman og hafa að hluta
til skapað aðstæður sem gera það að
verkum að þessi hópur, sem brýtur á
mannréttindum, kemst til valda?“
Stóra og litla myndin
Það er oft auðvelt að vera vitur eftir á
og segja hvað betur hefði mátt fara, en
getum við notað þessa þekkingu í dag til
að gera ekki sömu mistökin aftur?
„Sagan, og hvernig hún er sett í sam-
hengi út frá ýmsum fræðigreinum á borð
við félagsfræði, segir okkur að við getum
aldrei sagt nákvæmlega til um hverjar
af leiðingarnar verða af ákvörðunum
okkar. En við erum samt með mikið af
upplýsingum og tækjum sem við getum
notað til að greina hverjar líklegar
afleiðingar verða og geta hjálpað okkur
til að taka réttar ákvarðanir.“
Sigrún segir að við gætum lært mikið
af bók Sigríðar, ekki einungis í stóra sam-
henginu, heldur líka sem manneskjur.
„Ég vildi helst að hún yrði skyldu-
lesning fyrir alla á Íslandi,“ segir hún.
„Þetta sýnir okkur þessa stóru mynd
í gegnum lítil dæmi þar sem áherslan
er á sögu einstaklings í hverju landi en
segir okkur svo miklu meira um stærri
samfélagslega þætti á borð við ójöfnuð
og stríð.“
Dagskráin í dag hefst klukkan 15 og
stendur yfir í um tvo tíma. Þá verða
einnig veitt verðlaun fyrir framúrskar-
andi lokaritgerð í grunn- og meistara-
námi í félagsfræði. n
Ábyrgð okkar í ójöfnuði þjóða
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir, afi,
langafi og langalangafi,
Ellert Kárason
Austurbyggð 17,
Akureyri,
lést miðvikudaginn 16. nóvember.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Ásta L Pálsdóttir
Baldur Ellertsson
Páll Á. Ellertsson
Hallur Á. Ellertsson
Kári Ellertsson Aldís B. Arnardóttir
Ólöf Ellertsdóttir Þorvaldur Örlygsson
og afabörnin öll
Ástkær eiginmaður minn
og besti vinur, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
Leif Kordtsen Bryde
lést á Sólvangi þann 22. nóvember 2022.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að
ósk hins látna. Þökkum starfsfólki Sólvangs í
Lónakoti góða umönnun.
Amalía Stefánsdóttir
Stefán Kordtsen Bryde Ásdís Helgadóttir
Anna María Bryde Þórður Ingvarsson
Unnur Lára Bryde Stefán Hjaltested
barnabörn og barnabarnabörn
Elskuleg móðir mín,
barnsmóðir og systir,
Sigríður Ásta Örnólfsdóttir
lést á Hrafnistu v/Brúnaveg
þann 26. nóvember.
Útför hennar fer fram frá Áskirkju
miðvikudaginn 7. desember kl. 13.
Örnólfur Þór Hreiðarsson
Hreiðar Sæmundsson
Valdimar Örnólfsson Guðrún Úlfhildur Örnólfsdóttir
TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 2. desember 2022 FÖSTUDAGUR