Fréttablaðið - 03.12.2022, Blaðsíða 46
Már segist hafa verið sérstaklega
slæmur í hálsliðum. „Ég er lærður
húsasmiður en er eiginlega alt
muligt-maður,“ segir hann. „Get
eiginlega aldrei verið aðgerðalaus
og er alltaf að dunda mér við eitt-
hvað, hvort sem það eru endur-
bætur hér heima, að hjálpa vinum
og vandamönnum eða vinna í
garðinum“ segir Már, sem býr í
Fljótshlíðinni ásamt konu sinni,
Önnu Óskarsdóttur. „Við búum á
þessum fagra stað,“ segir hann.
„Ég var alltaf í átaksvinnu, aðal-
lega í virkjunum. Það hefur komið
niður á líkamanum en ég hef verið
sérstaklega slæmur í hálsinum. Ég
vann lengi í járnabindingum og oft
með mikil þyngsli í höndunum.
Það reynir á skrokkinn og kemur
fram þegar maður eldist,“ segir
hann. „Ég var með mikla verki í
hálsinum og átti erfitt með svefn.
Ég hafði leitað til heimilislækna
í einhver ár, en það eina sem ég
fékk út úr því var að taka verkjalyf.
Ég fór í nudd með litlum árangri,
verkirnir versnuðu bara ef eitthvað
var. Ég var síðan sendur í mynda-
töku og þá kom fram mikið slit
í hálsliðum en því miður á svo
vondum stað að ekkert er hægt
að gera. Eina ráðið voru verkja- og
gigtartöflur það sem eftir er, sem
mér hugnaðist ekkert sérstaklega
vel,“ útskýrir Már.
Get loksins sofið
„Ég sá auglýsingu frá Eylíf um
Active JOINTS og hugsaði með mér
að það væri nú allt í lagi að prófa
þetta. Það var í mars 2020. Eftir
fjórar vikur var ég farinn að finna
fyrir að eitthvað var að breytast
og eftir fjóra mánuði var ég orðinn
töluvert betri. Ári seinna var ég
hættur að finna fyrir verkjunum í
hálsinum. Fyrir mér er þetta krafta-
verk og lyginni líkast. Ég fékk nýtt
líf. Engar verkjatöflur og mér gekk
vel að sofna á kvöldin. Í rauninni
er ég laus við verkina,“ segir Már,
sem tekur þrjú hylki á dag og ætlar
sannarlega að taka Active JOINTS
frá Eylíf áfram.
Már var svo óheppinn að fót-
brjóta sig fyrir sex vikum og er
viss um að Active JOINTS hefur
hjálpað beinunum að gróa. Lækn-
irinn er ánægður með hversu vel
hefur gengið hjá honum. „Ég var
svo óheppinn á leið í Krónuna á
Hvolsvelli að detta. Það var rok
úti og ég var með tvo nælonpoka
sem fuku frá mér. Í flýtinum að
ná þeim hrasaði ég með þeim
afleiðingum að ég mölbraut á
mér fótinn. Ég brotnaði svo
illa að læknirinn sagði að í
raun áður en aðgerðin fór
fram hefði fóturinn verið
ónýtur. Aðgerðin hefði
hins vegar gengið vel og ég
er farinn að stíga í fótinn,“
segir hann og bætir við: „Enda
læknirinn, Benedikt Árni Jónsson,
algjör snillingur, besti skurðlæknir
á landinu að öðrum ólöstuðum,“
segir hann.
Active JOINTS styrkir beinin
Már segir að hann hafi spurst
fyrir hjá Eylíf hvort það hentaði
að taka Acive JOINTS á meðan
beinin væru að gróa. „Mér var sagt
að það væri mjög gott þar sem
Active JOINTS styrkir beinin. Ég
hélt því áfram að taka hylkin og
er viss um að það hefur hjálpað
þeim að gróa,“ segir hann. „Ég
er bara virkilega ánægður með
virknina í Active JOINTS og hef
mikla trú á þessu fæðubótarefni
enda eru innihaldsefnin kalkrík
sem er nauðsynlegt fyrir viðhald
beina. Einnig er C- og D3-vítamín í
Active JOINTS frá Eylíf. Ég get ekki
annað en mælt með vörunni,“ segir
Már og bætir við að eiginkonan
taki Smoother SKIN & HAIR og sé
sömuleiðis mjög ánægð með þá
vöru.
„Ég hef verið að benda vinum og
kunningjum á Active JOINTS og
veit að margir eru farnir að taka
hylkin daglega enda gott fyrir
liðina og beinin. Ég er ekki nægi-
lega duglegur að fara í göngutúra
þótt ég sé alltaf að hreyfa mig í alls
konar stússi. Ég hef gaman af ýmiss
konar viðhaldsvinnu og hef ágætis
vinnuaðstöðu í bílskúrnum.“
Syngja í kórum
Már hefur mörg áhugamál og
bæði hjónin syngja í kórum. Hann
syngur með Öðlingum, sem sungu
í vikunni í Áskirkju. „Ég gat ekki
verið með félögum mínum, þar
sem ég má ekki standa lengi í
fótinn,“ segir hann. „Mest erum
við að syngja við jarðarfarir, þá
átta til tíu/tólf manns. Hins vegar
erum við átján á tónleikum. Það
er virkilega gefandi og skemmti-
legt að vera í kór,“ segir hann, en
eiginkonan syngur með kirkjukór
Fljótshlíðar. Hjónin hafa verið
dugleg að ferðast um Evrópu,
gjarnan með Bændaferðum,
en hafa bara einu sinni farið til
Kanarí. „Mér finnst mjög gaman
að fara í rútuferðir, sérstaklega
um fjöllin á Ítalíu, aka til Slóveníu
og einnig Austurríkis. Við eigum
tvo syni og barnabörn í Svíþjóð
og förum líka reglulega þangað,“
segir Már, en hjónin eiga einnig
eina dóttur sem býr í nágrenni við
þau. „Lífið er skemmtilegt og það
er bara yndislegt að vera til,“ segir
hann.
Heilsan er dýrmætust
Vörulína Eylíf býður upp á fimm
frábærar heilsuvörur sem reynst
hafa fólki vel. Þær eru Active
JOINTS, Stronger BONES, Smooth-
er SKIN & HAIR, Happier GUTS,
og Stronger LIVER er nýjasta
varan. Vörurnar eru framleiddar
á Íslandi úr hreinum, íslenskum
hráefnum og engum aukefnum er
bætt við. Ólöf Rún Tryggvadóttir
er stofnandi Eylíf. „Hugmyndin
að vörulínunni kom til vegna þess
að mig langaði að setja saman þau
frábæru hráefni sem framleidd
eru á Íslandi á sjálfbæran hátt úr
íslenskum, náttúrulegum auð-
lindum og auka þannig aðgengi
fólks að þessum hráefnum,“ upp-
lýsir Ólöf.
Framleiðslan fer fram á Grenivík
og þróun varanna er í samstarfi við
sérfræðinga frá Matís. „Vinsælasta
varan okkar er Active JOINTS sem
inniheldur fjögur íslensk nær-
ingarefni og sýna margra ára rann-
sóknir fram á jákvæð áhrif þeirra,“
segir Ólöf Rún.
„Við vöndum til verka, sækjum
í sjálfbærar auðlindir úr sjó og af
landi, og notum hreina, íslenska
náttúruafurð og hrein hráefni, sem
eru framleidd af viðurkenndum
íslenskum framleiðendum.“
Hráefni sem notuð eru í bæti-
efnin frá Eylíf eru ekki erfða-
breytt. „Þau stuðla að heilbrigði
og sveigjanlegri líkama því þá
erum við færari um að takast á við
verkefnin í dagsins önn. Við vitum
öll að heilsan er okkur dýrmætust
og því er svo mikilvægt að gæta
vel að henni og fyrirbyggja ýmis
heilsufarsvandamál. Heilbrigð
melting er grunnur að góðri heilsu
og þess vegna vildum við hjá Eylíf
bjóða upp á hágæðavöru fyrir
meltinguna,“ segir Ólöf Rún.
Eylíf vörurnar fást í öllum apó-
tekum, Fjarðarkaupum, Hagkaup,
Nettó, Heilsuhúsinu, Krónunni og
Melabúðinni. Ókeypis heimsend-
ing ef keypt er fyrir 7.000 krónur
eða meira á eylif.is
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur
Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn:
Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
„Ég vann lengi í járnabindingum og oft með mikil þyngsli í höndunum. Það reynir á skrokkinn og kemur fram þegar
maður eldist,“ segir Már.
Fæðubótarefni kemur ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki ætlað börnum eða barnshafandi konum. Ekki er ráðlagt að taka meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Geymist þar sem börn ná ekki til.
Active
JOINTS
inniheldur fjögur
íslensk hráefni.
Ég var með mikla
verki í hálsinum og
átti erfitt með svefn. Ég
hafði leitað til heimilis-
lækna í einhver ár, en
það eina sem ég fékk út
úr því var að taka verkja-
lyf.
2 kynningarblað A L LT 3. desember 2022 LAUGARDAGUR