Fréttablaðið - 03.12.2022, Blaðsíða 6
Okkar konur óttast
sína ofbeldismenn
mjög mikið og þora
ekki að sækja um
nálgunarbann.
Linda Dröfn
Gunnarsdóttir,
framkvæmda
stýra Kvenna
athvarfsins
Framkvæmdastýra Kvenna
athvarfsins vill að viðurlög
við því að brjóta á nálgunar
banni séu meiri. Segir þeirra
konur ekki upplifa öryggi í
því og sækja því ekki um það.
lovisa@frettabladid.is
JAFNRÉTTI Alls hefur verið gefið
út 91 nálgunarbann á þessu ári, en
lögreglan hefur á þessu ári, um land
allt, fengið 1.787 tilkynningar um
heimilisofbeldi.
Í nýrri skýrslu frá Grevionefnd
Evrópuráðsins er lýst yfir áhyggjum
af þessu og í samantekt ríkislög
reglustjóra í vikunni er þetta tekið
saman. Linda Dröfn Gunnarsdóttir,
framkvæmdastýra Kvennaathvarfs
ins, segir athvarfið mjög meðvitað
um þetta og að þær hafi áhyggjur af
þessu.
„Við höfum mjög miklar áhyggjur
af þessu. Við erum svo sem ekki inni
í lagaumhverfinu en við vitum frá
okkar konum að það er í algerum
undantek ningartilfellum sem
konur eru að sækja um nálgunar
bann. Ég veit að þessar tölur hafa
komið á óvart en það virðist vera til
finning okkar kvenna að þær upp
fylli ekki skilyrði nálgunarbanns og
að það sé langsótt að sækjast eftir
því,“ segir Linda og harmar þessa
upplifun kvenna af nálgunarbann
inu.
Tala þær um það hvar hindrunin
er helst?
„Þær tala um að það sé erfitt að ná
þessu í gegn og að þessu sé ekki fylgt
eftir ef þær fá þetta í gegn. Þær upp
lifa sig ekki öruggar. Hjá okkur eru
konur sem eru að koma úr hættu
legustu aðstæðunum,“ segir Linda.
Hún segist vita af einu nýlegu
dæmi þar sem þolandi fékk slíkt
bann í gegn, en þá hafði gerandi
hennar einnig ráðist að konu í opin
beru rými þar sem voru mörg vitni.
„Þá gat hún fengið þetta í gegn, en
almennt er upplifun kvenna að
þeim sé ekki trúað og of beldið
ekki metið nægilega alvarlegt.
Þetta er bara það sem kemur fram
í okkar skýrslum og hér er aðeins
hluti þeirra kvenna sem verða
fyrir of beldi, en þetta er alls ekki
úrræði sem við þekkjum. Okkur
þykir það sorglegt.
Okkar konur óttast sína ofbeldis
menn mjög mikið og þora ekki að
sækja um nálgunarbann af ótta við
afleiðingarnar sem fylgja þegar þeir
frétta af því og því að afleiðingarnar
af því að brjóta á nálgunarbanninu
eru ekki svo miklar,“ segir Linda og
að konurnar sjái þannig ekki vörn í
nálgunarbanninu.
Hún segir að upplifun kvennanna
sé sú að það stoppi ekkert ofbeldis
mennina í að koma aftur inn á
heimilið og að það taki því hrein
lega ekki að sækja um nálgunar
bannið.
„Þau skilaboð sem þær fá er
að ferlið sé f lókið og að þetta sé
kannski ekki þess virði, vegna ótta
við geranda og vegna þess hve það
er langsótt að fá þetta.“
Linda segir að Kvennaathvarfið
hafi verið að horfa til annarra
landa þar sem bæði nálgunarbann
og brottvísun af heimili eru úrræði
sem eru notuð mun oftar.
„Sums staðar er meira að segja
notast við ökklabönd til að fylgjast
með gerendum, en hér heima virðist
þetta enn vera nokkuð máttlaust,“
segir Linda, sem vill að það sé kann
að hvort verkferlar séu nógu skýrir
er kemur að upplýsingagjöf til þol
enda og að það verði að tryggja að
viðurlögin við því að brjóta á nálg
unarbanni séu veruleg. n
Þolendur eru öryggislausir
þrátt fyrir nálgunarbann
Grevionefnd Evrópuráðsins hefur áhyggjur af fáum úrskurðum um nálgunarbann. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
benediktboas@frettabladid.is
STJÓRNSÝSLA Bæjarráð Kópavogs
bæjar hefur samþykkt að átta
starfsmenn bæjarins fái launað
námsleyfi. Lengsta leyfið nemur
fimm mánuðum en eitt telur rétt
rúma 40 daga. Herdís Snorra
dóttir fer í þrjá mánuði, Ingunn
Birgisdóttir sömuleiðis, sem og
Rakel Björnsdóttir. Sunna Ólafs
dóttir fær 40 daga og Sigríður Björg
Tómasdóttir fær leyfi á launum
til að skrifa meistararitgerð í tvo
mánuði. Hrönn Steinsdóttir fær
launað námsleyfi í fimm mánuði,
Bergdís Geirsdóttir í fjóra mánuði
en Soffía Karlsdóttir, sem var búin
að fá samþykkt námsleyfi í haust,
færði námið til vors.
Launað námsleyfi er bundið
því skilyrði að unnið sé áfram hjá
Kópavogsbæ að námi loknu sem
nemur þreföldu námsleyfinu. n
Átta í námsleyfi frá Kópavogsbæ
kristinnhaukur@frettabladid.is
STJÓRNMÁL Þingmenn Framsókn
arflokksins hafa verið í áberandi
fæstum viðtölum í ljósvakamiðlum
Ríkisútvarpsins það sem af er þessu
kjörtímabili. Þetta kemur fram í
samantekt menningar og viðskipta
ráðuneytisins við fyrirspurn Ingu
Sæland, formanns Flokks fólksins,
um viðmælendur Ríkis útvarpsins.
Algengt er að þingmenn hafi
verið á bilinu 10 til 20 sinnum í við
tölum á kjörtímabilinu. Sá þing
maður sem sjaldnast hefur verið
í viðtölum er Halla Signý Krist
jánsdóttir, eða tvisvar. Einu sinni
í sjónvarpi og einu sinni í útvarpi.
Yngsti þingmaðurinn, Lilja Rann
veig Sigurgeirsdóttir, hefur verið
fjórum sinnum í viðtölum sem og
Þórarinn Ingi Pétursson. Hafdís
Hrönn Hafsteinsdóttir hefur verið
fimm sinnum, Jóhann Friðrik Frið
riksson átta sinnum, sem og Ágúst
Bjarni Garðarsson.
Einu þingmennirnir úr öðrum
flokkum sem hafa verið í jafnfáum
viðtölum eru Eyjólfur Ármannsson,
Flokki fólksins, sex sinnum, og Njáll
Trausti Friðbertsson, Sjálfstæðis
flokki, átta sinnum.
Eðli málsins samkvæmt eru
ráðherrarnir í f lestum viðtölum.
Katrín Jakobsdóttir er langefst
með 361, það er næstum viðtal á
dag frá alþingiskosningum. Bjarni
Benediktsson er með 226 viðtöl,
Willum Þór Þórsson 150, Sigurður
Ingi Jóhannsson 149, Jón Gunnars
son 142, Þórdís Kolbrún R. Gylfa
dóttir 114, Lilja D. Alfreðsdóttir 98,
Guðmundur Ingi Guðbrandsson og
Svandís Svavarsdóttir 90, Guðlaugur
Þór Þórðarson 84, Ásmundur Einar
Daðason 65 og Áslaug Arna Sigur
björnsdóttir 56 viðtölum.
Birgir Ármannsson þingforseti
er með 88 viðtöl. Kristrún Frosta
dóttir, formaður Samfylkingar, er
með 65 viðtöl, Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir Viðreisn 61, Inga
Sæland Flokki fólksins 49, Björn
Leví Gunnarsson Pírötum 46 og
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Miðflokki 21. n
Framsóknarmenn eru langsjaldnast í viðtölum hjá RÚV
Leyfið er bundið því skilyrði að við
komandi starfi áfram hjá bænum.
Katrín Jakobsdóttir
hefur verið í 361 við-
tali á rúmu ári.
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vil
lu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
r r
ét
t t
il l
eið
ré
tti
ng
a á
sl
íku
. A
th
. a
ð v
er
ð g
et
ur
b
re
ys
t á
n
fyr
irv
ar
a.
60+ Á KANARÍ
10. JANÚAR Í 21 NÓTT
með Önnu Leu & Bróa
595 1000 www.heimsferdir.is
319.900
Flug & hótel frá
21 nótt
Fararstjórar:
Anna Lea og Brói
HÁLFT FÆÐI INNIFALIÐ
Jólatilboð í dag!
Loftljós
Verð áður 39.900 kr.
Tilboð: 29.500 kr.
Jólastjarna
Verð áður 6.900 kr.
Tilboð: 4.900 kr.
PFAFF • Grensásvegi 13 • pfaff.is • OPIÐ fös–mán 10–18 / lau 11-15
(Perustæði fylgir ekki)
6 Fréttir 3. desember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ