Fréttablaðið - 03.12.2022, Blaðsíða 67
kopavogur.is
Vatnsendahvarf. Breyting á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040. Forkynning tillögu á vinnslustigi.
Vakin er athygli á að nú stendur yfir í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 forkynning á tillögu
að breytingu á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 fyrir Vatnsendahvarf. Tillögunni fylgir m.a. umhverfisskýrsla
sem unnin er sameiginlega fyrir tillögu að breytingu á aðalskipulagi og tillögu að deiliskipulagi Vatnsendahvarfs.
Breytingar á aðalskipulagi eru gerðar í tengslum við vinnu deiliskipulags fyrir svæðið í samræmi við ábendingar og
umsagnir sem hafa borist. Í tillögunni að aðalskipulagsbreytingu er afmörkun landnotkunarreita fyrir íbúðarsvæði
(ÍB-6), opin svæði og samfélagsþjónustu breytt, fellt er út svæði fyrir verslun og þjónustu í útjaðri íbúðarsvæðisins
og sú þjónusta sem þar var fyrirhuguð færð miðsvæðis inn í hverfið nálægt skóla og leikskóla, auk þess sem stað-
setning minjasvæðis er leiðrétt. Skilgreiningin „tengibraut“ á Kambavegi að og frá hverfinu (ÍB-6) er felld niður.
Fimmtudaginn 8. desember 2022 milli 15:00-17:00 verður opið hús á bæjarskrifstofum Kópavogs að Digra-
nesvegi 1 þar sem ofangreind tillaga á vinnslustigi að breytingu á aðalskipulagi fyrir Vatnsendahvarf verður
kynnt þeim sem þess óska.
Tillagan er aðgengileg á vef Kópavogsbæjar www.kopavogur.is og í þjónustuveri Kópavogsbæjar að Digranesvegi
1 á opnunartíma. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Athugasemdir
og ábendingar skulu hafa borist skriflega til skipulagsdeildar Umhverfissviðs, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi eða á
netfangið skipulag@kopavogur.is eigi síðar en kl. 16:00 miðvikudaginn 11. janúar 2023.
Skipulagsfulltrúinn í Kópavogi.
Breyting á Aðalskipulagi Kópavogs
2019-2040
Þingeyjarsveit
Auglýsing um deiliskipulag
Fjósatungu í Fnjóskadal
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar samþykkti þann 30. nóvem-
ber 2022 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi hluta jarðarinnar
Fjósatungu í Fnjóskadal eins og 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr.
123/2010 mælir fyrir um. Viðfangsefni deiliskipulagsins er m.a.
að afmarka 44 lóðir fyrir frístundahús á um 38 ha svæði.
Tillagan að breytingu mun liggja frammi á skrifstofum Þing-
eyjarsveitar, Kjarna, 650 Laugum og Hlíðavegi 6, 660 Mývatn,
frá og með mánudeginum 5. des 2022 með athugasemdarfresti
til og með þriðjudeginum 17. janúar 2023. Þá eru upplýsingar
einnig aðgengilegar á heimasíðu Þingeyjarsveitar undir skipu-
lagsmál.
Skila skal athugasemdum skriflega til skrifstofu Þingeyjar-
sveitar, Hlíðarvegi 6, 660 Mývatn og/eða í tölvupósti á netfang-
ið atli@thingeyjarsveit.is. Þeir sem ekki gera athugasemdir við
tillöguna innan tilskilins frests teljast henni samþykkir.
Atli Steinn Sveinbjörnsson
Skipulagsfulltrúi Þingeyjarsveitar
Borgartúni 26, 105 Reykjavík
Sími 530 1400
www.rikiskaup.is
Húsnæði fyrir löggæslu- og viðbragðsaðila
Ríkiskaup f.h. Framkvæmdasýslunnar – Ríkiseigna óska eftir
þátttakendum í forvali á arkitektahönnun vegna byggingar
húsnæðis fyrir löggæslu- og viðbragðsaðila á höfuðborgar-
svæðinu (HVH) að Kleppsgörðum 2.
Þeir aðilar sem verkefnið nær yfir eru:
• Landhelgisgæslan (LHG)
• Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu (LRH)
• Neyðarlínan (112)
• Ríkislögreglustjóri (RLS)
• Tollgæslan
• Landsbjörg
• Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins (SHS) – skrifstofur
Forvalið er opið öllum hæfum þátttakendum. Að loknu forvali
mun verkkaupi velja fimm fyrirtæki úr hópi hæfra þátttakenda
til þátttöku í lokuðu samkeppnisútboði.
Þau sem boðið verður að taka þátt í lokaða samkeppnisút-
boðinu fara i gegnum þrjú þrep. Í fyrsta þrepi skila allir þátt-
takendur inn hönnunartillögum. Matsnefnd velur tvær tillögur
til áframhaldandi þátttöku. Í þrepi tvö uppfæra þátttakendur
tillögur sínar eftir notendasamráð og umsögn matsnefndar
ásamt ábendingum frá verktaka-verkfræðingateymum um
hvað betur mætti fara m.t.t. kostnaðar og framkvæmda. Að
loknu þrepi tvö velur matsnefnd vinningstillögu á grundvelli
70% vægis tillögu og 30% vægis tilboðs í arkitektahönnunina.
Í þrepi þrjú hefst forhönnunin. Að því loknu fer fram gerð
aðaluppdrátta og svo verkhönnun.
Verkefnið:
Ákveðið hefur verið að byggja nýjar höfuðstöðvar fyrir lög-
gæslu- og viðbragðsaðila á höfuðborgarsvæðinu. Húsnæðið
þarf að taka tillit til fjölmargra verkefna aðila og breytilegrar
starfsemi þeirra. Niðurstaða þarfagreiningar verkefnisins gaf
til kynna að aðstöðuþörf væri rúmlega 26.000 m². Er þá miðað
við verkefnamiðað vinnuumhverfi sem skapar sveigjanleika til
komandi framtíðar. Í húsnæðinu verður sameiginleg björg-
unarmiðstöð, kennslusetur, matstofa, æfingsvæði og fleira.
Forsendur verkefnisins eru eftirfarandi:
• Viðbragðs- og þjónustustig löggæslu og viðbragðsaðila við almenning verði eflt
• Húsnæðis- og aðstöðumál aðilanna leyst með hagkvæmum hætti
• Byggt verður yfir verkefni, ekki aðila
• Samvinna, samþætting, samlegð og þekkingarmiðlun milli aðila eflist
• Verkefnamiðað vinnuumhverfi (VMV)
• Sveigjanlegt húsnæði og aðstaða
Útboð á síðari stigum verða lokuð öðrum en þeim sem tekið
hafa þátt í forvalinu og uppfyllt allar kröfur þess.
Haldin verður kynning fyrir væntanlega þátttakendur á Teams
6. desember kl. 13:00.
Allar nánari upplýsingar um ferlið og útboðsskilmála er að
finna gjaldfrjálst í útboðskerfi Ríkiskaupa, TendSign, vefslóðinni https://tendsign.is/ , útboðsnúmer 21730. Óski þátttakendur frekari upplýsinga má senda fyrirspurn í
útboðskerfinu.
FORVAL
RARIK ohf. • www.rarik.is/forval
RARIK óskar eftir
jarðvinnuverktökum í forval:
RARIK 22046
Forval fyrir
strenglagnir 2023
Gögn er hægt að sækja án greiðslu á
vef RARIK www.rarik.is/forval
Skila þarf umbeðnum upplýsingum til
Verkís á netfangið jo@verkis.is fyrir
kl. 14:00, þriðjudaginn
20. desember 2022.
FORVAL
intellecta.is
RÁÐNINGAR