Fréttablaðið - 03.12.2022, Blaðsíða 110
Tilnefningar eru tutt-
ugu og ein talsins.Pantanir fyrir hópa og fyrirtæki á
hafsteinn@betristofan.com eða í síma 779 2416
SJÓNVARPSÞÆTTIR
Wednesday
Aðalhlutverk: Jenna Ortega,
Gwendoline Christie, Emma Myers
Streymisveita: Netflix
Nína Richter
Hin dimma og dök k k lædda
Addams-fjölskylda, stef sem allir
yfir þrítugu þekkja. Höfuð fjöl-
skyldunnar, hjónin Morticia og
Gomez, tignarleg og ástfangin upp
fyrir haus. Upp er niður, vont er gott
og hendur án búka ganga um gólf.
Litla dóttirin, Wednesday Addams,
er ekki ljúf og góð heldur hnyttin
og vond og nú er Wednesday orðin
unglingur í nýjum Netflix-þáttum.
Wednesday er eldklár, sjálfstæð,
hnyttnari en nokkru sinni, fylgin
sér og skemmtilega gölluð. Hún er
drauma-kvenpersóna þeirra sem
eru þreyttir á hefðbundnu kven-
hetjuformi. Hún er Lína Langsokkur
úr myrkrinu og kynnist sjálfri sér á
meðan áhorfendur kynnast henni.
Í hverjum þætti í þessari átta þátta
röð gefur hún tilsvar sem hægt væri
að sauma á púða. „Bara svo að þú
vitir það þá þykist ég ekki vera betri
en allir aðrir, ég er bara betri en
þú.“ Framvindan er þétt og góð og
heldur áhorfandanum vel við efnið.
Þættirnir svíkja ek k i heim
Addams-fjölskyldunnar heldur
bæta vel við hann. En það hefði
verið skemmtilegra og nær upp-
runanum að sjá myndarlega týpu á
borð við Pedro Pascal túlka fallega
klædda föðurinn.
Tónskáldið Danny Elfman er á
sínum stað og lyftir góðu efni enn
hærra. Wednesday tíunda áratugar-
ins, leikkonan Christina Ricci, er í
aukahlutverki sem er skemmtilegt
fyrir gömlu aðdáendurna. Hin stór-
kostlega Gwendoline Christie, ein
áhugaverðasta leikkona samtímans,
er ógleymanleg í hlutverki skóla-
stjóra galdraskólans og sannar enn
eina ferðina að hún getur túlkað
hvaða persónu sem er. Wednesday
Addams er túlkuð af Jennu Ortega
sem er að öllu leyti frábær og heldur
óaðfinnanlega uppi mjög krefjandi
hlutverki. n
NIÐURSTAÐA: Þættirnir líkjast
samsuðu þess allra besta úr
unglingakvikmynda- og sjón-
varpsþáttagerð síðustu ára.
Hryllingur sem minnir á bestu
stefin úr Stranger Things, yfirnátt-
úrulegt skólasamfélag sem minnir
á Harry Potter – nema ferskara og
skemmtilegra, unglingaást sem
minnir á bestu spretti Twilight
og rannsókn leidd af eldklárum
unglingi í anda Enolu Holmes. Það
er bannað að missa af þessum
þáttum og undirrituð vill fá aðra
þáttaröð strax í gær.
Lína Langsokkur myrkrahöfðingjans
ninarichter@frettabladid.is
Tilnefningar til Kraumsverðlaun-
anna hafa verið kynntar og verða
þau afhent í fimmtánda sinn seinna
í þessum mánuði. Verðlaunin miða
að því að heiðra plötur sem telj-
ast skara fram úr varðandi gæði,
metnað og frumleika. Á vef verð-
launanna segir: „Verðlaunin snúast
ekki um eina ákveðna verðlauna-
plötu heldur að beina kastljósinu
að Kraumslistanum í heild sinni og
þeim sex hljómplötum sem ár hvert
hljóta Kraumsverðlaunin.“ n
Stirnir og gugusar meðal tilnefndra
Guðlaug Sóley, eða gugusar, er til-
nefnd til Kraumsverðlaunanna í ár.
Árið 2022 eru eftirfarandi tilnefnd:
n Alfreð Drexler – Drexler’s Lab
n Ari Árelíus – Hiatus Terræ
n Ástþór Örn – A machine that
runs on blood
n Final Boss Type ZERO – 1000
Cuts
n Fríða Dís Guðmundsdóttir -
Lipstick On
n Guðir hins nýja tíma – Ég er
ekki pervert, ég er spæjari
n gugusar – 12:48
n Kraftgalli – Kúlomb
n Kruklið SAMHERJI: The musical
n Kusk - Skvaldur
n Kvelja - Andþrot
n Kvikindi - Ungfrú Ísland
n Lilja María Ásmundsdóttir &
Ines Zinho - Internal Human
n Oh Mama - Hamraborg
n Óskar Kjartansson - Gork
n Ronja - 00000
n Siggi Olafsson (Berglind
Ágústsdóttir) - Lost at war
n Skurken - Dagur
n Stirnir - Beautiful Summer, Big
Stjarna
n Ultraflex - Infinite Wellness
n Una Torfa – Flækt og týnd og
einmana
Í hverjum þætti í
þessari átta þátta röð
gefur hún tilsvar sem
hægt væri að sauma á
púða. „Bara svo að þú
vitir það þá þykist ég
ekki vera betri en allir
aðrir, ég er bara betri
en þú.“
Aðventan er sérstakur tími
þar sem við viljum skarta
okkar fallegustu klæðum.
Á dögunum hélt tímarítið
GQ verðlaunahátíð undir
formerkjunum „karlmenn
ársins“ og klæddust þar
margir helstu tískufröm-
uðir karlpeningsins sínum
fínustu þráðum. Hér er því að
finna góðar hugmyndir fyrir
aðventu- og jólastílinn.
ragnarjon@frettabladid.is
Steldu stílnum fyrir jólin
Breski
rapparinn
Stormzy sést
hér í sérstak-
lega flottum
yfirhnepptum
jakkafötum.
Það eru sumir sem ein-
faldlega þora. Eddie
Redmayne er
hér í jólalegri
og virkilega
fallegri
rúllukraga-
peysu en
það eru
eflaust
fáir sem
myndu
láta hana
virka eins
vel og
hann.
Rapparinn Jack Harlow og leikarinn John Boyega voru eins og Yin og Yang.
Það verður þó að segjast að stíll Boyega er flottari, að mati blaðamanns.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Slaufa sem
maður
bindur
sjálfur
verður allt-
af flottari
en sú sem
er forhnýtt.
Módelið
Paolo Busti
sýndi og
sannaði þessa
reglu á rauða
dreglinum.
Það er greinilegt að flauelið er á leið-
inni til baka, en bandaríski leikarinn
Stanley Tucci sést hér í klassískum
vínrauðum flauelsjakka.
Hér er annar stíll sem er bara fyrir
þá djörfu, en ítalska fyrir-
sætan Antonio Pulvirenti
ögraði með hvítu loði og
leðurbuxum.
Jenna Ortega fer á kostum í hlutverki hinnar hnyttnu Wednesday.
MYND/SKJÁSKOT
Ítalski
leikarinn Aless-
andro Borghi var
fáránlega flottur
í flauelsjakka-
fötum.
78 Lífið 3. desember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ