Fréttablaðið - 03.12.2022, Blaðsíða 54
hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og með 13. desember nk.
Nánari upplýsingar veitir Sverrir Briem,
sverrir@hagvangur.is.
Verkefnastjóri verður að hafa áhuga á að starfa að mikilvægum
samfélagslegum verk efnum. Starfið er fjölbreytt og er unnið í
sam starfi við hóp samstarfsfólks sem leggur áherslu á jákvæða
fram þróun félagsins til hagsbóta fyrir leigjendur þess.
Starfs maður vinnur með öryrkjum og fötluðu fólki sem sækir um
íbúðir hjá Brynju ásamt því að vera í samskiptum við núverandi
leigjendur og stuðningsaðila þeirra. Samskiptin felast í símtölum,
viðtölum og umsjón með sýningu íbúða. Starfs maður vinnur
á sviði leiguumsjónar og sérverkefna sem heyrir beint undir
framkvæmdastjóra.
Helstu verkefni
• Móttaka og afgreiðsla umsókna um leiguíbúðir
• Úthlutun leiguíbúða til umsækjenda á biðlista
• Frágangur á leigusamningum og endurnýjun þeirra
• Umsjón með mínum síðum og framþróun þeirra
• Umsjón með heimasíðu Brynju leigufélags
• Umsjón með reglubundnum þjónustukönnunum hjá
leigjendum
Menntunar- og hæfniskröfur
• Menntun sem nýtist í starfi
• Reynsla af velferðarmálum er kostur en ekki skilyrði
• Reynsla af leigumiðlun og fasteignaumsjón er kostur
• Góð færni í íslensku í rituðu máli
• Reynsla af umsjón með vefsíðu er kostur
Verkefnastjóri
í leiguumsjón
Sótt er um starfið
á hagvangur.is
Brynja leigufélag er sjálfseignarstofnun með það markmið
að eiga og reka íbúðir fyrir öryrkja. Hver íbúð sem Brynja
setur á markað breytir lífi einstaklings eða fjölskyldu.
Félagið á nú ríflega 860 íbúðir. Meirihluti þeirra er á
höfuðborgarsvæðinu, en aðrar víðs vegar um landið.
Brynja leigufélag leitast við að vera fyrirmynd í rekstri á
félags legu húsnæði fyrir öryrkja og er virkt í umræðu,
ákvarðana töku og stefnumótun er lýtur að félagslegu leigu
húsnæði. Brynja leigufélag hefur gagnsæi og jafnræði að
leiðar ljósi við ákvarðanatöku, úthlutun íbúða, verklega og
upplýsingamiðlun um kaup, sölu, leigu og viðhald fasteigna.
Framkvæmdastjóri þjónustu,
sölu- og markaðsmála Vodafone
Við leitum að öflugum og framsýnum leiðtoga sem brennur fyrir þjónustu,
þrífst á árangri og vill taka þátt í að skrifa næsta kafla í sögu leiðandi
vörumerkis á Íslandi.
Ábyrgðarsvið:
• Þjónusta og þróun þjónustustefnu á einstaklings- og fyrirtækjamarkaði
• Árangursrík sölustefna og öflug eftirfylgni með sölumarkmiðum
• Markaðssókn og áframhaldandi uppbygging vörumerkis Vodafone á Íslandi
• Stefnumótun, áætlanagerð og markaðssetning á sviði þjónustu, sölu og markaðsmála Vodafone
• Uppbygging öflugrar liðsheildar og hvetjandi menningar til vaxtar
• Leiðtogi kjarnasviðsins Vodafone – Fjarskipti og situr í framkvæmdastjórn Sýnar
Umsóknarfrestur er til og með 11. desember nk. Nánari upplýsingar veita Andrés Jónsson,
andres@godsamskipti.is og Alda Sigurðardóttir, aldas@vodafone.is
Einungis er tekið á móti umsóknum í gegnum ráðningavefinn okkar, radningar.syn.is