Fréttablaðið - 03.12.2022, Blaðsíða 2
Partí í Pennanum
Fjöldi manns mætti í verslun Pennans Eymundsson í Austurstræti í gær en 150 ár eru síðan Sigfús Eymundsson opnaði fyrstu verslunina. SJÁ SÍÐU 38
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Mig langaði til að búa
til námsgagn fyrir sjálfa
mig og aðra starfs-
menn
Katarzyna Dudek,
starfsmaður í Nettó
Næturvaktarstarfsmaður í
Nettó bjó til 160 setninga lista
til að geta átt samskipti við
viðskiptavini á íslensku. Hún
segir sambærilega lista skorta
fyrir aðrar atvinnugreinar.
kristinnhaukur@frettabladid.is
SAMFÉLAG Katarzyna Dudek, sem
starfar í Nettó í Mjóddinni, ákvað
að taka málin í sínar og hendur og
búa til 160 setninga lista fyrir erlent
starfsfólk matvöruverslana. Hún
vonast til þess að f leiri gagnlegir
listar geti litið dagsins ljós og að þeir
verði aðgengilegir á netinu.
„Mig langaði til að búa til náms-
gagn fyrir sjálfa mig og aðra starfs-
menn. Margir starfsmenn eiga erfitt
með íslenskuna,“ segir Katarzyna
sem f lutti til landsins fyrir fimm
árum síðan.
Hún vinnur á næturvöktum í
Nettó, aðallega með öðrum inn-
f lytjendum. Að tala íslensku við
viðskiptavinina er afar krefjandi en
verkefni sem hún vill leysa.
Katarzy na, sem kemur f rá
Póllandi, hefur klárað tvö stig í
íslenskunámi fyrir útlendinga. Hún
segir að það dugi ekki til þess að hún
sé örugg að tala við viðskiptavinina.
Ritmál sé allt öðruvísi en talmál og
námið sé ekki miðað við ákveðnar
atvinnugreinar. „Í íslenskunáminu
lærum við setningar eins og „vasinn
er blár“ sem gagnast okkur lítið í
vinnunni,“ segir hún.
Með Katarzynu vinnur fólk frá
Evrópu, Asíu, Afríku og Ameríku.
Þau tala ensku sín á milli, sem
Katarzyna segir að sé nauðsynlegt
að þau fái tækifæri til að gera. Hins
vegar hamli það því að þau læri
íslenskuna hratt.
Henni finnst mikilvægt að inn-
flytjendur læri íslensku og noti hana
í vinnunni. Þá finni þeir fyrir því að
þeir séu hluti af samfélaginu og njóti
verunnar betur. Íslendingar kunni
líka að meta það að innflytjendur
læri málið og viðmótið verður betra.
Katarzyna segir að sumir við-
skiptavinirnir séu mjög vinsamlegir
og hafi hjálpað henni við þýðingar á
orðum. Meðal annars ein kona sem
hafi hjálpað henni oft.
„Margt fólk kemur aðeins til að
versla og ég vill ekki tefja það,“ segir
Katarzyna. En hún vann listann
sinn með hjálp frá viðskiptavinum
og öðrum starfsmönnum verslunar-
innar.
„Listinn dugar mér til þess að
bjarga mér á vinnustaðnum,“ segir
Katarzyna sem vill koma honum
víðar og hefur fengið jákvæð við-
brögð frá starfsfólki annarra versl-
ana. Hún vonar að aðrir geti hjálpað
sér við að búa til lista fyrir aðra
vinnustaði. Svo sem byggingar-
iðnað, þrifafyrirtæki og fleiri greinar
sem margir innflytjendur vinna við.
„Það væri æðislegt að fá vefsíðu sem
væri ókeypis og hægt væri að fá allar
þessar upplýsingar,“ segir hún.
Katarzyna sem er 32 ára kom til
landsins með kærastanum, Pyotr,
til að ferðast en þau ílengdust og
byrjuðu að vinna. Katarzyna vann
til að mynda á tjaldstæði. Eftir eitt ár
keyptu þau bíl og eftir þrjú ár keyptu
þau íbúð. „Það var stór ákvörðun,“
segir hún. „En okkur langar til að
vera hérna í langan tíma.“ n
Gerði íslenskulista til að
geta bjargað sér í vinnunni
Katarzyna Dudek ílengdist hér eftir ferðalag fyrir 5 árum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Ósótt verk
Stúdío Stafn (eig. Viktor Smári Sæmundsson nú látinn), sem annaðist
málverkaviðgerðir og innrömmun ásamt umboðssölu er hætt starfsemi.
Þeir viðskiptavinir sem eiga ósótt verk til Stúdíó Stafns eru beðnir um að
hafa samband í síma 787 8288 (Listheimar ehf) eða 848 2883 (Ingibjörg)
eða með tölvupósti til viktor@listheimar.is
Verkin verða afhent eftir samkomulagi og gegn framvísun móttökukvitt-
unar. Verk sem ekki hafa verið sótt innan þriggja mánaða frá birtingu
þessarar auglýsingar, verða seld og andvirðið látið renna til góðgerðar-
mála.
jonthor@frettabladid.is
DÓMSMÁL Jón Baldvin Hannibals-
son, fyrrverandi fjármálaráðherra
og utanríkisráðherra, hlaut í gær
tveggja mánaða skilorðsbundinn
dóm í Landsrétti. Hann var sak-
felldur fyrir kynferðislega áreitni
gegn Carmen Jóhannsdóttur, sem
átti sér stað á Spáni árið 2018.
Dómurinn er viðsnúningur frá
dómi Héraðsdóms Reykjavíkur
sem hafði sýknað Jón Baldvin. Jón
Baldvin var ákærður árið 2019 fyrir
að hafa strokið Carmen um rassinn
í matarboði.
Carmen segir niðurstöðuna ekki
bara vera sigur fyrir sig. „Heldur er
þetta sigur fyrir hönd allra hinna,
sem hafa orðið fyrir hans ofbeldi.“ n
Jón Baldvin
dæmdur fyrir
kynferðisbrot
bth@frettabladid.is
ALÞINGI Aldrei var rætt í aðdrag-
anda söluútboðs Íslandsbanka að
birta nafnalista kaupenda.
Þetta sagði Lárus Blöndal hjá
Bankasýslunni á opnum fundi
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar
Alþingis í gær.
Lárus var spurður hvort ráðherrar
hefðu lagt áherslu á það fyrir útboð-
ið að kaupendalisti yrði birtur þegar
viðskiptin yrðu um garð gengin.
Hann sagðist aldrei hafa heyrt
það. Fyrst eftir útboðið hafi komið
fram sú krafa að birta lista yfir
kaupendur, sem hafi verið for-
dæmalaus gjörð, að sögn Lárusar. n
Listi nefndur eftir
útboð bankans
Jón Baldvin fékk tveggja mánaða
skilorðsbundinn fangelsisdóm.
Lárus Blön-
dal, formaður
Bankasýslunnar
kristinnhaukur@frettabladid.is
BORGARBYGGÐ Umhverfis- og land-
búnaðarnefnd Borgarbyggðar hefur
samþykkt að sveitarfélagið muni
íhlutast um að smala fé í ár. Enda sé
ljóst að sú vinna sem stendur yfir hjá
stjórnvöldum um lausagöngu búfjár
og ábyrgð sveitarfélaga klárist ekki í
bráð og velferð dýra sé í húfi.
Lausaganga hefur verið mjög til
umræðu í sveitarfélaginu undan-
farið og líklegt að einhver endi fyrir
dómstólum. En jörðum án sauðfjár-
búskapar hefur fjölgað á undan-
förnum árum.
Nefndin tekur það fram að hún
telji það varhugavert að íhlutast um
smölun nema við sérstakar aðstæð-
ur. Það sé á ábyrgð umráðamanna
sauðfjár að hafa daglegt eftirlit og
hirða um sauðfé sitt. n
Borgarbyggð mun
smala í þetta sinn
Sauðfé getur valdið miklu ónæði og
skemmdum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
2 Fréttir 3. desember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ