Fréttablaðið - 03.12.2022, Blaðsíða 112
„Skemmti leg frá sögn um lítt þekktan kafla í sögunni sem
sýnir sjálf stæðis bar áttuna frá nýju sjónar horni. Höfundur
leitast við að setja Ís land í sam hengi við byltinga sögu
Evrópu. Þetta er vand lega unnið verk sem fær les endur
til að endur meta stöðu Ís lands í umheiminum.“
U M S Ö G N D Ó M N E F N D A R Í S L E N S K U B Ó K M E N N T A V E R Ð L A U N A N N A
S Ö L V I S V E I N S S O N / M O R G U N B L A Ð I Ð
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið 10–19 alla daga til jóla | www.forlagid.is
Dekkri hliðar sögunnar og nördaleg hlaðvörp
Hlaðvarpsáhugakonan Hólmfríður Helga og kisan Katya fyrir framan nýmálaða skápa heimilisins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Hólmfríður Helga Sigurðar-
dóttir Thoroddsen er grunn-
skólakennari og öflugur hlað-
varpsaðdáandi, sem deilir
eftirlætis hlaðvarpsþáttum
sínum með lesendum.
ninarichter@frettabladid.is
Hlaðvarpsþættir eru sívaxandi
af þreyingarform og framboðið
virðist endalaust. Hægt er að hlusta
á streymisveitum á borð við Spotify
og iTunes og ljóst að allir geta fundið
efni sem hentar þeirra áhugasviði,
sama hversu sértækt það kann að
vera. Við lítum á skemmtileg dæmi. n
Last Podcast on the Left
Ein af eftirlætis hlaðvarpsfram-
leiðslum Hólmfríðar er Last
Podcast on the Left. „Það eru
þrír bandarískir gæjar sem heita
Ben, Marcus og Henry. Marcus
Parks var einmitt að kaupa hlut
í Grapevine um daginn sem
er mjög skemmtilegt,“ segir
Hólmfríður.
Að sögn Hólmfríðar er
hlaðvarpið að kanna dekkri
hliðar sögunnar í bland við
sönn sakamál. „Það sem
mér finnst skemmtilegast
er svona dark history, sögur
sem eru stranger than fiction,“
segir Hólmfríður. „Þetta gerðist
í alvöru, djöfull er þetta galið!“
Hólmfríður málaði skápa heima
hjá sér í síðustu viku og hlustaði
á meðan. „Ég var að hlusta á
þætti sem ég var búin að hlusta
á áður, svona míní-seríur inni í
þeirra seríum,“ segir hún. „Það
voru fimm þættir um MK-Ultra
prógrammið sem var bara
raunveruleg tilraun bandarísku
leyniþjónustunnar til að búa til
einhverja ofurhermenn og fá
fólk til að lesa hugsanir, svona
raunverulegt kaldastríðs-clus-
terfuck, ógeðslega áhugavert,“
segir hún.
Hólmfríður segir að tilraunin
hafi leitt af sér jaðarkúltúr í
Bandaríkjunum og að LSD-of-
skynjunarlyfið hafi komist í um-
ferð í kjölfarið. Þá segir Hólm-
fríður að sögusvið Stranger
Things þáttanna sé innblásið af
tilrauninni.
Hún útskýrir að þáttastjórn-
endurnir séu fimm saman og
þeir kasti mikið á milli. „Einn
þeirra sér um rannsóknarvinn-
una og les upp umfjöllunarefni
þáttarins. Annar sem er svona
grínari og svo er þriðji sem er
þáttarstjórnandi og stillir til
friðar þegar umræðan er orðin
of heit,“ segir hún.
Að sögn Hólmfríðar eru þátta-
stjórnendur á svipuðum aldri og
hún sjálf og því tengi hún vel við
poppmenningarvísanir og teng-
ingar við samtímann. Þó séu
þeir ekki uppteknir af pólitískri
rétthugsun og nálgunin
sé mjög ólík þeirri nálgun sem
aðdáendur kvennaþátta um
sönn sakamál eigi að venjast.
„Það er mjög vönduð rann-
sóknarvinna í gangi. Ég get mælt
með þáttum eins og þeim þegar
þeir tóku fyrir svarta dauða. Þeir
gerðu það fyrir ári síðan og það
eru fjórir þættir. Þeir eru nýbúnir
að taka fyrir galdraofsóknirnar
í Salem,“ segir Hólmfríður og
bætir því við að hún fari aldrei
á fætur á laugardagsmorgnum
án þess að hlusta fyrst á nýjasta
þáttinn af Last Podcast on the
Left.
„Þeir leggja líka rosalega
mikla áherslu á það, þegar
þeir taka fyrir þekkt mál í True
Crime, raðmorðingja eða
eitthvað svoleiðis, að þeir
hafna algjörlega því að setja
fjöldamorðingja í einhvern
hetjuljóma eins og er oft gert
þegar verið er að framleiða
sjónvarpsþætti. Þeir eru svolítið
í því að rífa þessa menn niður af
einhverjum stalli, og ég fíla það.
Það á ekkert að vera að upp-
hefja þetta lið. Það er oft mjög
áhugavert hvernig þeir nálgast
það,“ segir hún.
Hólmfríður segir elstu
þættina mun síðri en hina nýrri.
„Þeir verða alltaf betri og betri
og slípast til. Fyrstu þættirnir
þeirra eru alls ekki eins góðir.
En þeir eru búnir að vera í þessu
svo ótrúlega lengi og eru mjög
sjóaðir, og gaman að hlusta á
þá.“
The Rewatcher
Hólmfríður segir að þekkt hlaðvarpsform sé
tvær konur að fjalla um sönn sakamál. „Þar
eru fremstar í flokki Karen og Georgia í My Fa-
vorite Murder, og svo Ash og Alaina í Morbid.
Það eru hvor tveggja mjög skemmtileg pod-
cöst,“ segir hún og bætir við að báðar fram-
leiðslurnar sendi út nýjan þátt í hverri viku.
„Mig langaði að benda á að Ash og Alaina
eru með nýtt hlaðvarp sem þær byrjuðu
á núna í haust sem heitir The Rewatcher,“
segir Hólmfríður. „Þær eru að horfa á Buffy
the vampire slayer. Alaina er á svipuðum
aldri og ég, fædd 1985 eða 1986. Ash er 10
árum yngri og er að horfa á þetta í fyrsta
skipti,“ segir hún. „Þær horfa á þetta þátt
fyrir þátt, einn í viku og eru svo að tala um
þáttinn. Þetta er brjálæðislega skemmti-
legt,“ segir Hólmfríður.
„Þær eru sjúklega fyndnar, eru frænkur en
alast upp saman og eru mjög nánar. Það er
gaman að hlusta á þær tala saman. Þær
gagnrýna þættina og horfa á þetta með
nútíma augum og tala um hvað eldist vel og
tala um tískuna og tala beint inn í nineties
pre-teen hjartað mitt og mér finnst það
mjög notalegt. Mig langar að mæla með the
Rewatcher fyrir öll nineties börnin sem eru
núna að detta í fertugt. Þetta er mjög
skemmtilegt podcast.“
80 Lífið 3. desember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ