Fréttablaðið - 03.12.2022, Blaðsíða 64
Tæknistjóri (Technical manager)
Menntunar- og hæfniskröfur:
Nánari upplýsingar veita Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) í síma 511 1225 og Martyna Glowczyk,
mannauðsstjóri Arctic Fish, í síma 779 8678.
• Ábyrgð á viðhaldsdeild og framkvæmd á nauðsynlegu
viðhaldi
• Þróa og innleiða viðhaldskerfi og áætlanir með áherslu
á fyrirbyggjandi viðhald
• Gangsetning og innleiðing nýrrar verksmiðju með
viðeigandi búnaði og lausnum
• Forysta og hvatning viðhaldsteymis
• Fara eftir kröfum og reglugerðum
• Meðhöndlun frávika og eftirfylgni
• Leitast við að ná markmiðum í tengslum við settar
áætlanir
Helstu verkefni og ábyrgð:
Umsóknarfrestur er til og með 20. desember 2022. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar
sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið
verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
• Reynsla af sambærilegu starfi
• Bakgrunnur og/eða menntun sem nýtist, t.d.
verkfræði, vélfræði eða rafeindavirkjun. Reynsla
getur þó bætt upp fyrir skort á formlegri menntun
• Áhugi, drifkraftur og metnaður til að ná árangri
• Góð tæknikunnátta
• Góðir samstarfshæfileikar
• Góð enskukunnátta í ræðu og riti en að auki er
íslenskukunnátta æskileg, en ekki krafa
Arctic Fish óskar eftir að ráða tæknistjóra í nýja laxavinnslu fyrirtækisins í Bolungarvík. Viðkomandi
ber ábyrgð á tæknibúnaði og viðhaldi í vinnslunni og verður starfið jafnframt liður í innleiðingu á nýjum
búnaði og undirbúningi á opnun stöðvarinnar. Við bjóðum upp á spennandi tækifæri til að vera hluti af
uppbyggingu og innleiðingu nýrrar hátækni laxavinnslu ásamt því að vera hluti af vaxandi iðnaði á Íslandi.
Um 40 manns munu vinna í verksmiðjunni og þar verða unnar hágæða vörur fyrir alþjóðlegan markað.
Arctic Fish er leiðandi í framleiðslu á
hágæða íslenskum laxi. Arctic Fish er
staðsett á Vestfjörðum og er þar með
umfangsmikið seiða- og sjóeldi sem
er hluti af samþættri virðiskeðju sem
hefur gert það að verkum að nú getum
við byggt upp nýja vinnslustöð.
Við leggjum áherslu á að starfa eftir
ströngum stöðlum þegar kemur að
dýravelferð, sjálfbærni og náttúrunni.
Fyrirtækið hefur verið í miklum
vexti undanfarin ár og stefnum á að
uppskera 24.000 tonn árið 2025.
Í dag starfa 68 starfsmenn hjá okkur
sem færa okkur sífellt nær markmiðinu.
Arctic Fish er á lista Euronext Growth í
Kauphöllinni í Osló.
Nánari upplýsingar: www.articfish.is.
RÁÐNINGARRÁÐGJÖF RANNSÓKNIR
Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is
Intellecta er sjálfstætt þekkingarfyrirtæki stofnað árið 2000. Við vinnum með stjórnendum
við að auka árangur, bæta rekstur og efla stjórnun. Ráðgjafar Intellecta hafa sterkan faglegan
bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Þennan grunn notum við í samvinnu við viðskiptavini
til að móta hugmyndir sem skipta máli og í innleiðingu lausna sem skila árangri.
16 ATVINNUBLAÐIÐ 3. desember 2022 LAUGARDAGUR