Fréttablaðið - 03.12.2022, Blaðsíða 114
ninarichter@frettabladid.is
Gunnar Hjálmarsson, Doktor
Gunni, hefur ásamt hljómsveit sent
frá sér sitt fyrsta útgefna jólalag.
Lagið ber titilinn Faðir Abraham.
„Mig dreymir stundum einhver
lög og mig dreymdi þessa melódíu.
Textinn var: Meira myrkur, það
var sú lína sem draumurinn kom
með,“ segir Gunni um lagið. „Þá
gat ég annað hvort samið drunga-
legt þunglyndislag, en svo fattaði
ég að þetta gæti verið jólalag,“ segir
hann.
„Ég hef aldrei samið jólalög áður
sem hafa komi opinberlega út. Þá
samdi ég þetta lag upp úr þessum
draumi. Þetta er eiginlega fram-
haldssaga um manninn sem var
með Bónuspokann í fyrra, Aum-
ingjann,“ segir Gunni og vitnar til
lagsins Aumingi með Bónuspoka
sem kom út á plötunni Nei ókei
í fyrra. „Núna er hann að snapa
sér jólahátíð hjá vinkonu sinni,“
segir Gunni. „Nafnið kemur fram,
hann heitir Sveinn. Kærastan hans
heitir Helga og það hefur eitthvað
slest upp á vinskapinn hjá þeim, en
þetta fer svona þokkalega vel,“ segir
Gunni kíminn.
Aðspurður hvort hann sé mikill
jólamaður, svarar hann: „Ja, það eru
nú margir sem vilja að það sé í lagi
að spila jólalög frá 1. desember. Mér
finnst nóg að spila síðustu vikuna
fyrir jól. Þetta eru voða mikið sömu
lögin. Þetta verður ógeðslega þreytt
þegar þetta eru fjórar vikur. En
þetta er frábært allt saman, ágætis
tími.“
Gunni segist aðeins vera farinn
að hugsa út í gjafir og undirbúning
jólanna. „Svo bara vonar maður að
þetta verði klassískt jólalag og stef-
gjöldin bara hrúgist inn á hverju
ári.“ n
Fyrsta jólalagið
um aumingja
Gunnar Lárus Hjálmarsson tónlistar-
maður, þekktur sem Doktor Gunni.
Wizard and the Bruiser
„Svo er ég svo mikill nörd og
hef alltaf verið. Þegar síðustu
tvær seríurnar af Game of
Thrones voru í gangi var ég að
ná svona sjö klukkutímum af
aukaefni á milli þátta, var bara
að hlusta á fólk greina þættina
til þess að sefa hungrið á milli
þátta. Maður er orðinn svo
óvanur því að horfa á línulega
dagskrá.
The Last Podcast on the
Left strákarnir framleiða The
Wizard and the Bruiser. Þeir
eru að fjalla um alls konar sem
tilheyrir svona nördakúltúr
sem mér finnst brjálæðislega
skemmtilegt. Þeir hafa tekið
fyrir Princess Mononoke,
Independence Day, Twin
Peaks, mikið af tölvuleikjum,
Mario Cart, Rick and Morty
og Adventure Time. Það kitlar
allar nördataugarnar inni í
mér af því að stundum hef
ég rosalega mikla þörf til að
tala um eitthvað sem mér
þykir skemmtilegt en enginn í
kringum mig hefur áhuga á.“
Lore
Hólmfríður segist hafa ein-
staklega gaman af myrkum
sagnfræðihlaðvarpsþáttum.
„Kannski svolítið eins og
Leðurblakan sem Vera Illuga-
dóttir gerði. Það er geggjað
podcast, ótrúlega skemmti-
legt,“ segir hún.
„Í þeim geira er Aaron
Mahnke geitin. Hann er með
stórt framleiðslufyrirtæki
sem heitir Grim and Mild sem
framleiðir alls konar pod-
köst,“ segir hún. „Þar er mitt
uppáhalds, Lore, þar sem
hann fer í gegnum alls konar
svona þjóðsögur og sögur og
tengir við raunveruleg mál og
alls konar gleymd mál líka, og
akkúrat þetta, gerðist þetta
i alvörunni, vá hvað þetta er
galið.“
Hólmfríður segist sér-
staklega hrifin af því þegar
staðreyndirnar eru furðu-
legri en skáldskapur. „Af því
að lífið og heimurinn er svo
skrýtinn. Það eru ótrúlegustu
hlutir sem fólki dettur í hug.
Ótrúlega merkilegt hvernig
viðhorf hafa breyst.“
Hún nefnir annað hlað-
varp í sama dúr sem heitir
The Conspirators. „Það er
á svipaðri línu og er mjög
skemmtilegt. Ég fæ aldrei leið
á þessu.“
Ologies
„Það er mjög sértækt. Kona sem heitir Allie Ward er með það og hún
fær til sín alls konar sérfræðinga, um allt. Það eru til sérfræðingar í
öllu. Ég hlustaði á þátt um daginn þar sem kom til hennar kona sem
er mosasérfræðingur. Svo var steinasérfræðingur og ánamaðkasér-
fæðingur. Það er ótrúlega skemmtilegt að fræðast um mismunandi
sérgreinar. Það er hægt að sérhæfa sig í ótrúlegustu hlutum.“
The X-wife podcast
„Mér þykir rosalega vænt um
það af því að ég uppgötvaði
það þegar ég fékk Covid og
það fleytti mér í gegnum Co-
vid. Ég var pínu súr að þurfa að
hætta í miðjum katalógnum
til að fara aftur í vinnuna, en
síðan er ég búin að ná þeim
aftur núna.“
Hjónin Justin og Alicia fram-
leiða þættina og lesa saman í
gegnum X-men teiknimynda-
sögurnar. „Ég hef tekið svona
tímabil þar sem ég hef sökkt
mér á kaf í X-men. Það er
svona minn uppáhaldshluti
af Marvel-heiminum. X-men
hefur margt fram yfir aðrar
Marvel-sögur, og eru mjög
framarlega. Mikil hinsegin
menning og svona vítt karakt-
ergallerí. Fólk af öllum þjóð-
ernum, fólk sem er jaðarsett.
Mér finnst skemmtilegt að
skoða þessar sögur og hvernig
þeim er komið á framfæri.“
Kannski svolítið eins
og Leðurblakan sem
Vera Illugadóttir
gerði. Það er geggjað
podcast, ótrúlega
skemmtilegt.
82 Lífið 3. desember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ