Fréttablaðið - 03.12.2022, Blaðsíða 32
Flestar
greinar
berjast enn
við að
komast á
réttan kjöl
eftir Covid.
Ekki alls fyrir löngu hitti ég mann sem
breytti á ákveðinn hátt sýn minni á lífið.
Ég og þessi maður erum fædd sama ár og
ég man vel eftir honum í gegnum tíðina.
Hann er heimilislaus og háður vímuefnum.
Ég bý í fínni íbúð í miðbænum og er ekki háð
vímuefnum.
Hann sagði mér frá því hvernig alkóhólismi,
vímuefni og heimilisleysi urðu með tíð og tíma
stærri og stærri þættir í lífi hans. Þessir þættir gera
líf okkar tveggja ótrúlega ólík. Hann upplifir að
ekki sé á hann hlustað, fólk hræðist hann, fáir heilsa
honum eða gefa sig á tal við hann og hann er ekki
velkominn hvar sem er. Ég upplifi þetta ekki eins og
hann.
Í einu samtali okkar sagði hann mér að hann hefði
aldrei hitt neinn sem hefði stefnt að því verða háður
vímuefnum, allir vinir hans sem eru háðir vímu-
efnum og hann sjálfur vildu óska þess að þau væru
það ekki. Þetta er þáttur sem maður gleymir að leiða
hugann að, það er svo auðvelt að dæma og hræðast
það sem er manni ekki nærri.
Hörður Hákon Jónsson er einn fárra á Íslandi sem
eru í skömmtunarmeðferð vegna morfínfíknar.
Hann segir á einlægan hátt frá mikilvægi þess að
hann fái lyfin sín og frá þeim fordómum sem hann
hefur fundið fyrir. Lesum með opinn huga. n
Auðvelt að dæma
Þessir
þættir gera
líf okkar
tveggja
ótrúlega
ólík.
BIRNADROFN@FRETTABLADID.IS
Karlakór Reykjavíkur er nú
í Færeyjum þar sem hann
mun syngja á tónleikum með
færeyskum vinakór. Fær-
eyski kórinn endurgeldur svo
heimsóknina og syngur með
Karlakór Reykjavíkur í Hall-
grímskirkju um næstu helgi.
birnadrofn@frettabladid.is
„Það er spenningur í hópnum, sumir
hafa farið áður og eru að hitta gamla
vini, svo eru aðrir sem eru að fara í
fyrsta sinn og eru spenntir að stofna
til nýrra kynna við færeyska söng-
bræður,“ segir Arnar Halldórsson,
formaður Karlakórs Reykjavíkur.
Kórinn er nú í Færeyjum þar sem
hann syngur á jólatónleikum með
Tórshavnar Manskór í Vesturkirkj-
unni í Þórshöfn, þá syngja kórarnir
einnig saman í messugjörð og halda
tónleika í Friðrikskirkjunni í Toft-
um og nýjum glæsilegum hátíðarsal
í Hojvik.
Viku síðar endurgjalda svo Færey-
ingar heimsóknina og syngja með
Karlakór Reykjavíkur á aðventu-
tónleikum í Hallgrímskirkju 10. og
11. desember. „Segja má að árlegir
Aðventutónleikar Karlakórs Reykja-
víkur séu eitt af okkar aðalsmerkj-
um,“ segir Arnar.
„Þegar við byrjuðum á þessu
fyrir rúmum 30 árum var þetta
fáheyrður viðburður, en festi sig í
sessi og við höfum staðið af okkur
samkeppnina, þökk sé tryggum
hópi „fylgjenda“ eins og það er
kallað í dag,“ segir hann og bætir
við að kórinn hafi notið þess að
efnilegustu og fremstu einsöngv-
arar landsins hafa verið tilbúnir til
að syngja með þeim.
„Lagavalið er yfirleitt blandað,
hefðbundið og nýtt og óneitanlega
hvolfist jólaandinn yfir mann við
f lutning á þessum sígildu sálmum
og Ave Maria-útsetningum sem
fylgt hafa þjóðinni,“ segir Arnar.
Hann segir vinasamstarfið við
færeyska kórinn hafa hafist árið
1993. „Þá fór kórinn að vori til og
hélt tónleika í Norðurlandahúsinu í
Þórshöfn, svo höfum við farið þrisv-
ar sinnum í byrjun aðventunnar til
þeirra og þeir komið til okkar að
vori til,“ segir Arnar.
Í Karlakór Reykjavíkur eru um 80
meðlimir, alls er nú 61 þeirra í Fær-
eyjum. Arnar segir það að syngja
í kór bæði krefjandi og gefandi,
söngurinn haldi heilasellunum við
efnið.
„Meðan maður syngur, hvort
sem er á æfingu eða á tónleikum,
er maður ekki að hugsa um neitt
annað, algerlega í núvitund og ein-
beittur. Félagsskapurinn er traustur
og oft er stofnað til vináttusam-
banda sem endast út lífið.“ n
Krefjandi og heilandi
að syngja í kór
Félagsskapurinn er
traustur og oft er
stofnað til vináttu-
sambanda sem endast
út lífið.
Arnar Hall-
dórsson, for-
maður Karlakórs
Reykjavíkur
Við mælum með
Stuðsvellinu
Skautasvell Nova hefur undanfarin
ár verið staðsett á Ingólfstorgi og í
ár er engin undantekning þar á.
Skautasvellið ber nú nafnið Stuð-
svellið og getur fólk bókað sína
jólastund á nova.is. Við mælum
með að taka sér pásu frá jólastress-
inu og eiga góða stund á skautum
með vinum eða fjölskyldu.
Próteinstykki
Í stressi hversdagsins er mikilvægt
að muna að borða og næra sig. Við
mælum með því að vera með pró-
teinstykki í vasanum eða töskunni
og grípa í þegar hungrið hellist yfir
þig. Stykkin eru eins misjöfn og þau
eru mörg en við mælum sérstaklega
með Double Bite Peanut Crisp frá
Barabells. n
Mikið lán yrði það fyrir íslenska
þjóð ef aðilar vinnumarkaðarins
bæru gæfu til þess að gera skamm-
tímasamning sem gengi út á að ná
niður verðbólgu til að raunhæft verði
að semja til lengri tíma, tveggja til
fjögurra ára, í ársbyrjun 2024, eins
og rætt hefur verið um.
Verðbólgan setur stórt strik í
reikninginn varðandi kjarasamn-
inga nú og ekki bætir úr skák sú
harða vaxtastefna sem Seðlabank-
inn hefur rekið undanfarið eitt og
hálft ár. Beiting stýrivaxta til að
berjast við verðbólgu sem að mestu
er innflutt er ekki einungis gagnslaus
heldur beinlínis heimskuleg.
Þá hefur tjáningarmáti seðla-
bankastjóra og skeytasendingar
hans til íslenskrar alþýðu orðið til
þess eins að torvelda kjarasamninga.
Kjararýrnun er því miður hafin
hér á landi og ljóst að hún verður
ekki leiðrétt í þessari umferð kjara-
samninga.
Verði hins vegar samið á skyn-
samlegum nótum og takist að koma
vitinu fyrir peningastefnunefnd
Seðlabankans svo hún hætti að
skemma hér hagkerfið með óskyn-
Tækifæri til að búa í haginn fyrir góða framtíð
Karlakór Reykja-
víkur hóf að
halda aðventu-
tónleika fyrir
þrjátíu árum
síðan, tón-
leikarnir hafa
fest sig í sessi
fyrir jólin og eru
alltaf vel sóttir.
MYND/AÐSEND
Ólafur
Arnarson
samlegum vaxtahækkunum getur
skapast grundvöllur fyrir raun-
hæfum og varanlegum kjarabótum
eftir þennan millileik.
Til að það megi takast blasir við
að hófsemi verður að vera leiðar-
ljós í þessum kjarasamningum og
við ákvarðanir um laun stjórnenda
og arðgreiðslur til eigenda næstu
misseri.
Tal um að mikill hagnaður sé í við-
skiptalífinu byggir að miklu leyti á
misskilningi og gömlum tölum.
Árið í fyrra skilaði betri afkomu en
árið í ár og horfurnar fyrir næsta ár
eru því miður ekki bjartar, meðal
annars vegna vaxtastefnu Seðla-
bankans.
Af koma sveitarfélaga er af leit
og ríkissjóður er rekinn með bull-
andi halla enn eitt árið. Að sönnu
er mikill hagnaður í stærstu sjávar-
útvegsfyrirtækjunum, bönkum
og vátryggingarfélögum. Sá hagn-
aður dreifist hins vegar ekki út um
atvinnulífið.
Flestar greinar berjast enn við að
komast á réttan kjöl eftir Covid og
á þeirri leið er Seðlabanki Íslands
þrándur í götu. n
32 Helgin 3. desember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐHELGIN FRÉTTABLAÐIÐ 3. desember 2022 LAUGARDAGUR