Fréttablaðið - 03.12.2022, Blaðsíða 92
Innilegar þakkir sendum við öllum
þeim sem sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför ástkærs
eiginmanns míns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
Edwards Magna Scott
frá Fögrubrekku,
Súðavík, Þjóðbraut 1, Akranesi.
Sérstakar þakkir til þeirra sem aðstoðuðu okkur
þann 18. nóvember síðastliðinn. Guð blessi ykkur öll.
Jónína Sigfríður Karvelsdóttir
Eiríkur Valgeir Scott Wendy Scott
Dóra Björk Scott Lárus Hjaltested
Eyþór Atli Scott Svanhildur Lýðsdóttir
Gunnar Jóhannes Scott Pálína Guðmundsdóttir
Lindberg Már Scott
afabörnin og langafabörnin
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Baldur Friðfinnsson
frá Bæ í Dalabyggð,
lést 25. nóvember.
Útförin fer fram frá Kópavogskirkju
miðvikudaginn 7. desember klukkan 15.
Álfheiður Þorsteinsdóttir
Bára Baldursdóttir Stefán Baldursson
Brynhildur Baldursdóttir Tryggvi Þór Ólafsson
Birgir Baldursson Gunnhildur Þórey Pétursdóttir
Ásdís Baldursdóttir Gunnar Magnússon
Smári Baldursson Anna Sigurlín Einarsdóttir
Elín Baldursdóttir Margeir Reynisson
Erla Baldursdóttir Þórarinn Jónas Stefánsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginkona mín, dóttir, móðir,
systir og amma,
Rósa Ólafsdóttir
íþróttakennari og hlaupadrottning,
Skógarhjalla 21, Kópavogi,
lést á líknardeild Landspítalans að morgni
þriðjudagsins 29. nóvember. Útför hennar fer fram frá
Digraneskirkju, fimmtudaginn 8. desember, klukkan 13.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Landspítalans.
Gunnar A. Hilmarsson
Inga Erna Þórarinsdóttir
Inga Rós Gunnarsdóttir
Ólafur Garðar Gunnarsson
Kristín Ólafsdóttir
Ólafur Þröstur Ólafsson
og barnabörn
Elskulega móðir mín, tengdamóðir,
amma og langamma,
Margrét Jakobsdóttir
Sautjándajúnítorgi 3, Garðabæ,
lést þriðjudaginn 22. nóvember á
Tenerife. Útför hennar fer fram frá
Garðakirkju þriðjudaginn 6. desember klukkan 13.
Jakob Már Harðarson Þórey Íris Halldórsdóttir
Marteinn Már, Margrét og María Sól
Vilborg Reynisdóttir
Páll Ágúst, Reynir Örn, Kristín Ósk
og langömmubörnin fjögur
Björg Einarsdóttir
rithöfundur,
er látin.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í
Reykjavík þriðjudaginn 20. desember
klukkan 13. Blóm og kransar afþakkaðir.
Guðmundur Ingi Haraldsson Bjarnfríður Guðmundsdóttir
Einar Hrafnkell Haraldsson Guðrún Sigurjónsdóttir
María Haraldsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir og afi,
Hreinn Viðar Ágústsson
Vesturási 46,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum
í Fossvogi 20. nóvember.
Útför hans mun fara fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík
þriðjudaginn 6. desember klukkan 15.
Dóra Jónsdóttir
Jón Ágúst Hreinsson Aðalbjörg Reynis Eðvarðsd.
Örn Hreinsson Auður Þórhallsdóttir
Edda Hreinsdóttir
Atli Viðar, Dagur Nói og Kolbeinn Ágúst
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
fósturmóðir, amma, langamma
og langalangamma,
Helga Magðalena
Guðmundsdóttir
Skólastíg 16, Stykkishólmi,
lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands í
Stykkishólmi þann 14. nóvember.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Sérstakar þakkir fyrir
hlýja og góða umönnun bæði á Dvalarheimili aldraðra
í Stykkishólmi og Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Stykkishólmi. Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug.
Skúli G. Ingvarsson Brynja Harðardóttir
Páll Kr. Ingvarsson Kolbrún Heiða Jónsdóttir
Atli Már Ingvarsson Sesselja Eysteinsdóttir
Hrefna Jónsdóttir Gunnar Ólafsson
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn
Elsku hjartans drengurinn okkar
og bróðir,
Árni Sævar Gylfason
Austurbrún 6A, Reykjavík,
lést á Borgarspítalanum í Fossvogi
25. nóvember. Útförin fer fram frá
Fossvogskirkju mánudaginn 5. desember klukkan 13.
Gylfi Ómar Héðinsson Svava Árnadóttir
Hörður Már Gylfason Björk Ólafsdóttir
Inga Rut Gylfadóttir
og systkinabörn
Hjartkær mamma okkar,
tengdamamma, amma,
langamma og langalangamma,
Valdís Þorsteinsdóttir
Lóa
fyrrum stöðvarstjóri
Pósts og síma í Hrísey,
lést á Dvalarheimilinu Dalbæ Dalvík, miðvikudaginn
23. nóvember. Útförin fer fram frá Dalvíkurkirkju
þriðjudaginn 6. desember kl. 13.30.
Þórdís Björg Alfreðsdóttir Steingrímur Sigurðsson
Konráð Þorsteinn Alfreðsson Guðbjörg Ingileif Jónasdóttir
Sigurður Sveinn Alfreðsson Sólborg Friðbjörnsdóttir
Sigurjón Freyr Alfreðsson Margrét Kristmannsdóttir
Blængur Elvar Alfreðsson Þórdís Þorvaldsdóttir
Kristín Anna Alfreðsdóttir Ásgeir Stefánsson
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Rannveig Ólafsdóttir
fv. hjúkrunarkona,
lést miðvikudaginn 30. nóvember á
Hrafnistu Sléttuvegi.
Útför hennar fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn
8. desember klukkan 13.
Pálmi Finnbogason S. Svava Rafnsdóttir
Ólafur Finnbogason Sigríður Nanna Egilsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur eiginmaður minn,
bróðir og mágur,
Ketill Rúnar Tryggvason
húsasmíðameistari,
Maríubakka 6, Reykjavík,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
14. nóvember. Útför hans fer fram frá Grafarvogskirkju
mánudaginn 5. desember kl. 13.
Laugheiður Bjarnadóttir
Þorsteinn G. Tryggvason Ósk Sigurrós Ágústsdóttir
Sigurður S. Tryggvason Jóhanna S. Hermannsdóttir
Erlendur V. Tryggvason Harpa Arnþórsdóttir
Lilja B. Tryggvadóttir
Tryggvi T. Tryggvason Anna Sch. Hansdóttir
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Benedikt Andrésson
lést á hjúkrunarheimilinu Seltjörn
laugardaginn 26. nóvember.
Útför hans fer fram frá Grafarvogskirkju
miðvikudaginn 7. desember klukkan 13.
Fjölskyldan vill koma á framfæri sérstökum þökkum til
starfsfólks hjúkrunarheimilisins Seltjarnar.
Guðrún Benediktsdóttir Halldór Jónsson
Árni Hjaltason
Auður Benediktsdóttir Guðni Karl Magnússon
barnabörn og barnabarnabörn
Elsku bróðir okkar,
Friðrik Pétur Sigurðsson
Hátúni 10,
lést á líknardeild Landspítalans
22. nóvember. Útförin hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hins látna.
Fyrir hönd aðstandenda,
Kristín Sigurðardóttir
Sædís Gísladóttir
og fjölskyldur
Á þessum degi þann 3. desember 1994,
kom PlayStation leikjatölvan fyrst á
markað. Hún fór fyrst í sölu í Japan en
nokkrum mánuðum seinna rataði hún í
verslanir í Evrópu og Bandaríkjunum. Vin-
sældir leikjatölvunnar voru gríðarlegar og
á tæpum áratug náði Sony að selja rúm-
lega 100 milljónir véla.
Með tilkomu PlayStation urðu straum-
hvörf í afþreyingargeiranum. Skyndilega
höfðuðu tölvuleikir til allra.
Eftir sátu Nintendo og Sega með sárt
ennið, þó að fyrrnefnda fyrirtækið ætti
eftir að ná vopnum sínum aftur með tíð
og tíma.
Sony hefur haldið áfram að gefa út
leikjatölvur undir vörumerkinu PlaySta-
tion, sú nýjasta er PlayStation 5 og telst til
níundu kynslóðar leikjatölva. n
Þetta gerðist: 3. desember 1994
PlayStation birtist sjónum almennings
60 Tímamót 3. desember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ