Fréttablaðið - 03.12.2022, Blaðsíða 12
Í tilefni evrópsks kvikmynda-
mánaðar var sérstök sýning
á Berdreymi þar sem fram-
haldsskólanemum var boðið í
Bíó Paradís. Að henni lokinni
var hægt að spyrja aðalleikara
myndarinnar, þá Birgi Dag
Bjarkason og Snorra Rafn
Frímannsson, spurninga er
tengdust kvikmyndinni.
benediktboas@frettabladid.is
SAMFÉLAG „Þetta var alveg ógeðslega
gaman. Við vorum spurðir öðruvísi
spurninga en við höfum áður feng-
ið,“ segir Birgir Dagur Bjarkason sem
lék Adda í kvikmyndinni Berdreymi
en sérstök sýning var haldin í Bíó
Paradís þar sem framhaldsskóla-
nemum var boðið.
Eftir sýninguna fengu framhalds-
skólanemarnir að spyrja þá Birgi og
Snorra Rafn Frímannsson spjör-
unum úr. „Við fengum sent að þetta
stæði til og kýldum á þetta. Áskell
var reyndar að læra fyrir dönsku-
próf og komst ekki. Skólinn gengur
fyrir,“ segir Birgir og hlær en Áskell
Einar Pálmason sem lék með þeim
boðaði lögleg forföll.
Berdreymi fjallar um Adda, ungl-
ingsstrák í Reykjavík sem alinn er
upp af móður með skyggnigáfu,
og tekur eineltisfórnarlamb undir
sinn verndarvæng og inn í vinahóp
slagsmálahunda. Þegar vandræði
strákanna stigmagnast yfir í lífs-
hættulega atburði fer Addi að upp-
lifa eigin skynjanir.
Guðmundur Arnar Guðmundsson
skrifaði handritið en myndin var í
forvali fyrir Evrópsku kvikmynda-
verðlaunin og er framlag Íslands til
Óskarsins 2023.
Gestum sýningarinnar þótti tvö
atriði mikilvægust þegar kom að
spurningum. Annars vegar þótti
áhugavert að ræða karlmennsku-
hlutverkið og hvernig karlar eigi það
til að bæla niður tilfinningar sínar
sem síðan brýst út í mynd ofbeldis.
Hins vegar voru foreldrar og þeirra
hlutverk í að koma í veg fyrir einelti
heitt umræðuefni.
„Við Snorri svöruðum því þannig
að foreldrar drengjanna voru ekki
að sjá um þá og þeir þurftu svolítið
að sjá um sig sjálfir. Nema kannski
mamma Adda sem var minn karakt-
er. Þeir mynduðu hóp til að sjá um
sig og finna stuðning. En samfélagið
og foreldrarnir sáu lítið um þá. Þeim
var ekkert kennt, eins og til dæmis
karakterinn Konni. Hann sér enga
aðra leið en ofbeldi,“ segir Birgir.
Lísa Attensberger, verkefnastjóri
Bíó Paradísar, stjórnaði umræðum
en hún segir það áhugavert hversu
meðvitað unga fólkið var um að
margir þættir standi að baki ofbeld-
ishneigð. „Ekki síður að þau telja for-
eldra lykilatriði þegar kemur að því
að vera fyrirmyndir fyrir jákvæð
samskipti,“ segir Lísa.
Birgir tekur undir það. „Það var
mjög skemmtilegt að standa þarna
og svara þessum spurningum sem
voru ekkert þessar týpísku spurn-
ingar. Einn spurði til dæmis hvernig
Áskell hefði verið á settinu. Þetta
var vinur hans og vildi fá sögur frá
honum. Þetta var skemmtilegur
salur og hress.
Krakkar í dag spyrja um það sem
þá langar að vita. Mörgum líkaði vel
við myndina og ég vona að margir
læri af myndinni. Um vináttu og
hvað er bak við hana og auðvitað
að ofbeldi er ekki svarið.“
Hann segir að tökurnar hafi verið
stórbrotinn tími sem gleymist ekk-
ert í bráð. „Kristín Lea sem var að
kenna okkur var frábær og Guð-
mundur leikstjóri líka. Á settinu
fengum við gott stuðningsnet. Ef við
vorum að taka upp tilfinningalega
erfiða senu þá voru allir á settinu
sem tóku við okkur og spurðu hvort
allt væri í lagi. Hvort við vildum tala
um hana og svo framvegis.
En þetta var helvíti gaman líka.
Það má ekki gleyma því. Ég hef
aldrei haft jafn gaman og í þessa tvo
mánuði. Guð minn góður. Þetta eru
minningar sem munu aldrei fara,“
segir Birgir. n
Aðalleikararnir svöruðu
jafnöldrum um Berdreymi
Þeir félagar skemmtu sér konunglega við að svara spurningunum frá framhaldsskólanemendum og segir Birgir Dagur
að hann hafi skemmt sér vel við að fá afar óhefðbundnar spurningar. MYNDIR/SIGURJÓN RAGNAR
APPOLO
LAKKRISI
ragnarjon@frettabladid.is
HEILBRIGÐISMÁL Heyrnar- og tal-
meinastöð Íslands, sem hefur verið
til húsa í Valhöll í á fimmta áratug
er í þörf fyrir nýtt húsnæði, að sögn
Kristjáns Sverrissonar forstjóra.
Samkvæmt Kristjáni hefur staðið
til að finna húsnæði fyrir starf-
semina í fjöldamörg ár, en því sífellt
verið frestað þar sem hentugt hús-
næði sé vandfundið. Nýlegar fram-
kvæmdir vegna þéttingar byggðar
á svæðinu hafi svo verið kornið sem
fyllti mælinn, en erfitt sé að fram-
kvæma heyrnarmælingar í stans-
lausum hávaða.
„Framkvæmdirnar hafa gert
okkur nánast ókleift að vinna hérna
síðasta hálfa árið,“ segir Kristján.
„Við vissum svo sem að þetta væri
væntanlegt en það hefur staðið til
að finna fyrir okkur húsnæði í níu
ár eða alveg síðan ég kom hér inn.
Húsnæðið uppfyllir engar kröfur
sem heilbrigðisstofnun og uppfyllir
alls engar kröfur sem gerðar eru til
heyrnamælinga eða heyrnarþjón-
ustu.“
Að sögn Kristjáns hafa fram-
kvæmdirnar skert starfsgetu stöðv-
arinnar umtalsvert, en stofnunin
geti illa sinnt hlutverki sínu á meðan
á þeim stendur.
Framkvæmdirnar og skortur á
talmeinafræðingum hér á landi hafi
orsakað það að langir biðlistar hafi
myndast. Margra mánaða bið geti
verið eftir næsta lausa tíma.
„Covid hafði þegar gert okkur
grikk og dregið úr afköstum og svo
er stórkostlegur skortur á heyrnar-
fræðingum á Íslandi. Við erum einn-
ig að missa fólk í veikindi sem komið
er á aldur og nú er svo komið að við
erum með langa biðlista þar sem
við fórum niður í þrjátíu prósenta
afköst seinni hluta síðasta árs. n
Hávaði og léleg aðstaða í Valhöll
Kristján Sverris-
son, forstjóri
Heyrnar- og tal-
meinastöðvar
arnartomas@frettabladid.is
VEÐUR Það virðist vera sem það fína
veður sem búist er við nú um helg-
ina víki fyrir frosti og kulda í næstu
viku. Þetta segir Þorsteinn V. Jóns-
son vakthafandi veðurfræðingur á
Veðurstofu Íslands.
„Það er eins og þetta sé að fara í
norðanátt þegar líður á vikuna með
kaldari veðrum og éljum fyrir norð-
an og austan,“ segir Þorsteinn. „Það
er enn þá smá óvissa í spánum.“
Vegagerðin varaði við lúmskri
hálku í gærkvöldi og nótt en Þor-
steinn býst við að veðrið verði fínt
um allt land um helgina.
Hann er þó ekki jafnbjartsýnn
fyrir næstu viku, þar sem hitastigið
stefnir niður fyrir frostmark.
„Hlýindunum virðist vera lokið í
bili,“ segir hann.
Hlýindin í nóvember hafa verið
eftirtektarverð. Meðal annars hafa
bændur á Tjörnesi getað sinnt girð-
ingarvinnu, sem er fáheyrt. n
Hlýindunum lýkur eftir helgi
Hann sér enga aðra
leið en ofbeldi.
Birgir Dagur
Bjarkason, leikari
12 Fréttir 3. desember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ