Fréttablaðið - 03.12.2022, Blaðsíða 26
Ole Martin Nesselquist er
byrjaður að pakka í töskur í
Noregi og farinn að huga að
flutningum til Íslands. Þessi
norski knattspyrnuþjálfari
skrifaði undir samning við
KR í vikunni og mun aðstoða
Rúnar Kristinsson í Bestu
deild karla.
hoddi@frettabladid.is.
FÓTBOLTI Það vakti nokkra athygli
þegar KR greindi frá því í vikunni að
Ole Martin, einn efnilegasti knatt-
spyrnuþjálfari Noregs, væri nýr
aðstoðarþjálfari liðsins. Ole sem er
29 ára gamall hefur í mörg ár starfað
sem þjálfari meistaraflokks, nú síð-
ast var hann aðstoðarþjálfari Viking
FK sem leikur í efstu deild í Noregi.
„KR sem félag heillar mig og fólkið
sem starfar í kringum félagið heillar
mig, þetta er stórt félag á Íslandi,“
segir Ole Martin, sem heimsótti
Ísland í síðustu viku og heillaðist.
„Ég get ekki sagt að ég þekki KR
út og inn en þetta er stórt félag í
stærstu borginni á Íslandi. Það er
hægt að berjast um sigur í efstu
deild og berjast í Evrópukeppnum,
allt þetta heillaði mig.“
Rúnar Kristinsson, þjálfari KR,
þekkir vel til norska fótboltans enda
lék hann þar í þrjú ár á ferli sínum
og þjálfaði svo Lilleström þar í landi
frá 2014 til 2016. Ole Martin er heill-
aður af Rúnari bæði sem þjálfara og
persónu. „Lykill að því að ég var klár
í að starfa með Rúnari hjá KR er að
við virðumst hafa svipaðar hug-
myndir um fótbolta. Við viljum að
liðin okkar spili af krafti, við viljum
að þau spili fram á við, að þau pressi
frá fremsta manni og að liðið stjórni
leiknum. Þegar kemur að Rúnari þá
hef ég alltaf heyrt að hann sé algjör
herramaður, frábær náungi. Þann-
ig kom hann mér líka fyrir sjónir
þegar okkar samtöl áttu sér stað, ég
er spenntur fyrir því að vinna með
honum. Ég hef talað við mikið af
fólki á Norðurlöndum sem þekkir
til Rúnars og allir segja það sama, að
hann sé frábær náungi.“
KR varð síðast Íslandsmeistari
árið 2019 en félagið setur stefnuna
Indriði hringdi og boltinn fór að rúlla í Noregi
alltaf hátt. „Það eru möguleikar hjá
KR að gera góða hluti, þegar ég fer í
verkefni þá vil ég horfa til framtíðar
líka. Það er hins vegar þannig í fót-
boltanum að þú þarft líka að horfa
í næstu úrslit og hvernig er hægt að
fá liðið til að vinna næsta leik. Ég vil
líka horfa til framtíðar, við viljum
að KR verði besta liðið á Íslandi
aftur og komist í Evrópukeppni.
Mögulega tekur það tíma en ég er
vongóður um að þetta muni ganga
vel. Þriggja ára samningur var góður
fyrir mig og félagið.“
Indriði Sigurðsson, fyrrverandi
landsliðsmaður í knattspyrnu og
stjórnarmaður hjá knattspyrnu-
deild KR, hafði fyrstur samband við
Ole um starfið. Indriði er goðsögn
hjá Viking í Noregi þar sem hann lék
lengi vel. „Indriði var sá fyrsti sem
hringdi í mig, þeir fengu nafnið mitt
fyrir nokkrum mánuðum. Þeir töldu
að ég væri samningsbundinn Viking
áfram, svo fann Indriði út úr því að
ég væri að hætta. Hann hringdi í
Viking og hringdi svo í mig fimm-
tán mínútum síðar. Þetta var fyrir
10–12 dögum, þetta gerðist mjög
hratt. Fyrsta samtalið við Indriða
var gott, ég talaði svo við Rúnar og
Bjarna (Guðjónsson, framkvæmda-
stjóra KR). Allir þeir heilluðu mig,
svo hitti ég þá og skoðaði borgina og
landið. Þegar ég hélt heim þá var ég
klár á því að þetta væri rétta skrefið
á ferli mínum.“ n
Nánar á frettabladid.is
Ole Martin skrifar undir hjá KR og er spenntur fyrir starfinu. MYND/AÐSEND
Þegar kemur að Rúnari
þá hef ég alltaf heyrt að
hann sé algjör herra-
maður og frábær
náungi.
Ole Martin Nesselquist,
aðstoðarþjálfari KR
26 Íþróttir 3. desember 2022 LAUGARDAGUR