Fréttablaðið - 03.12.2022, Blaðsíða 63
Við leitum nú að nýjum einstaklingi í skattafjölskylduna okkar sem hefur yfir að
ráða miklu magni af jákvæðni, velvilja og góðri þjónustulund.
Innheimtu- og skráasvið annast innheimtu opinberra gjalda í stjórnsýsluumdæmi sýslumanns á höfuð-
borgarsvæðinu. Þar fer einnig fram vanskilainnheimta og erlend innheimta samkvæmt gagnkvæmum
innheimtusamningum. Þar er einnig sinnt eftirlits- og leiðbeiningarhlutverki með innheimtumönnum ríkis-
sjóðs á landsvísu auk þess að sjá um rekstur fyrirtækja- og ársreikningaskráa á landsvísu. Sviðið skiptist í
þrjár deildir, þ.e. afgreiðslu, fyrirtækja- og ársreikningaskrá og lögfræðiinnheimtu. Á sviðinu er einnig
starfrækt stoðþjónustueining sem starfar þvert á sviðið. Umrætt starf tilheyrir afgreiðslueiningunni.
Um er að ræða 100% starf á starfsstöð Skattsins í Reykjavík. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið
störf sem fyrst.
Helstu verkefni:
Almenn upplýsingagjöf og úrlausn mála í tengslum við innheimtu skatta og gjalda,
fyrirtækja- og ársreikningaskrár og tollamál.
Móttaka og ráðstöfun greiðslna og gagna.
Samskipti við gjaldendur á starfsstöð embættisins.
Samskipti við innlendar samstarfsstofnanir.
Framtalsaðstoð.
Menntunar– og hæfniskröfur:
Stúdentspróf eða samsvarandi menntun.
Skipulögð, nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð.
Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli, önnur tungumálakunnátta er kostur.
Fáguð framkoma og lipurð í samskiptum.
Jákvæðni og rík þjónustulund.
Geta til að vinna undir álagi.
Góð almenn tölvukunnátta.
Góð talnafærni.
Hreint sakavottorð.
Umsóknir skulu fylltar út á vefsíðu Skattsins, skatturinn.is, eða á vefsíðu Starfatorgs, starfatorg.is.
Ferilskrá, auk kynningarbréfs, sem inniheldur ítarlegar upplýsingar m.a. um menntun, fyrri störf,
umsagnaraðila og annað er máli skiptir þarf að fylgja með svo umsókn teljist fullnægjandi.
Umsækjendum um störf hjá Skattinum kann að vera gert að leysa verkefni í ráðningarferlinu sem
kæmu, auk annarra þátta, heildstætt inn í mat á hæfni þeirra til viðkomandi starfa.
Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki,
stéttarfélag í almannaþjónustu, hafa gert.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Valgerður Sigurðardóttir, deildarstjóri, í síma 442-1000 eða í
tölvupósti á netfangið valgerdur.sigurdardottir@skatturinn.is.
Umsóknarfrestur er til og með 13. desember 2022 og verður öllum umsóknum svarað þegar ákvörðun
hefur verið tekin um ráðningar. Skatturinn hvetur fólk af öllum kynjum til að sækja um starfið.
Gildi Skattsins eru fagmennska, framsækni og samvinna.
Upplýsingaver opið:
Mán.-fim. 9:00-15:30
Fös. 9:00-14:00
skatturinn.is
Viltu slást í hóp einstakra
gjaldkera á innheimtu- og
skráasviði Skattsins?
HH RÁÐGJÖF www.hhr.is - Sími: 561 5900
ÞESSI STÖRF OG FJÖLMÖRG ÖNNUR ERU
Í BOÐI Í ATVINNUAPPINU OG Á
ATVINNUVEF HH RÁÐGJAFAR
ATVINNUAPPIÐ - HH RÁÐGJÖF
ATVINNUVEFUR: www.hhr.is
• Verkefnastjóri
• Innréttingalakkari
• Sölufulltrúi
• Sérfræðingur í kjara- og réttindamálum
• Vaktstjóri í gestamóttöku
• Þjónn
• Verkfræðingur/Tæknifræðingur
• Smiður/Verkamaður
• Móttökuritari/Skrifstofustarf
• Vöruhúsastjóri
• Tæknimaður
• Vakstjóri/Verslunarstjóri
• Viðgerðarmaður
• Verkstæðisformaður
• Kranamaður
• Starfsmaður á vörubilaverkstæði
• Bókari
• Sölumaður í verslun
• Jólavinna - Lagerstörf
• Löggiltur fasteignasali
Erum við
að leita að þér?