Fréttablaðið - 03.12.2022, Blaðsíða 10
Það má segja að það sé
ákveðin bylting hand-
an við hornið í þessum
efnum.
Auður Ýr Sveinsdóttir, yfirmaður
flugverndar Isavia
benediktboas@frettabladid.is
STJÓRNSÝSLA Blindrafélagið hefur
miklar áhyggjur af stöðu íslenskra
máltæknilausna sem miða að því
nota megi íslensku í samskiptum
við tæki og upplýsingavinnslu.
„Ef f járlagaf r umvar pið sem
nú liggur fyrir verður samþykkt
óbreytt, mun það verða til þess að
ekki er hægt að vinna að nauðsyn-
legum máltæknilausnum sem gera
blindu og sjónskertu fólki mögu-
legt að stunda vinnu og nálgast
sjálfsagðar upplýsingar án aðstoð-
ar,“ segir Sigþór U. Hallfreðsson,
formaður Blindrafélagsins.
Sigþór segir íslensku langt á eftir
öðrum tungumálum er komi að
tæknilausnum. Stjórnvöld þurfi
að gæta að tækniframförum í radd-
stýringum og vélröddum. Helst er
horft til þess að þróun tækja í dag
verði til þess að greiða aðgang fólks
að þátttöku í samfélaginu.
Þetta sé sérlega mikilvægt í ljósi
þess að stefnumörkun ríkisstjórn-
arinnar miði að því að færa enn
stærri hluta af almennri þjónustu
við almenning í stafrænar lausnir.
„Í því felast mikil tækifæri fyrir
blint og sjónskert fólk, svo lengi
sem tæknin styður við tungumálið
sem upplýsingunum er miðlað á.
Ef það er ekki gert er blint og sjón-
skert fólk í raun útilokað frá upp-
lýsingum, þjónustu og þátttöku,
sem dregur úr sjálfstæði og virkni
fólks sem vill geta sinnt daglegum
þörfum sínum og lagt sitt af mörk-
um til samfélagsins,“ segir hann.
Sigþór bætir við að fæstir geti
verið á vinnumarkaði án þess að
sækja rafrænar upplýsingar, stund-
að bankaviðskipti um netið og
tekið þátt í rafrænum samskiptum.
„Við höfum skapað góðan grunn
og þekkingu sem miðar að því að
íslenskan fylgi okkur í þær sam-
félagsbreytingar sem eru að verða
samhliða tækniframförum. Það er
hætt við að mikil verðmæti fari í
súginn ef ekki er haldið markvisst
áfram í þessari þróun,“ segir Sigþór.
Lausnir sem eru blindum nauðsyn-
legar í þessu nýtist öllum öðrum. n
Óttast að blint fólk verði útilokað
Ef það er ekki gert er
blint og sjónskert fólk í
raun útilokað frá
upplýsingum, þjón-
ustu og þátttöku.
Sigþór U. Hall-
freðsson, for-
maður Blindra-
félagsins
TENERIFE
Í SÓLINA YFIR HÁTÍÐINA
YFIR JÓLIN | 22. - 28. DESEMBER
PARADISE PARK FUN 4*
FALLEGT OG GOTT HÓTEL Í LOS CRISTIANOS
SVEFNHERBERGI MEÐ HÁLFU FÆÐI
VERÐ FRÁ 144.900 KR.
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN
INNIFALIÐ Í VERÐI, FLUG, GISTING, HÁLFT FÆÐI, INNRITAÐUR FARANGUR OG HANDFARANGUR. BÓKAÐU ÞITT SÆTI Á UU.IS
ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 UU.IS
HÁLFT FÆ
ÐI
SÍÐUSTU SÆTIN YFIR JÓLIN
Bylting er handan við hornið
í öryggisgæslu á Keflavíkur-
flugvelli. Ilmvötn og tölvur í
eina sæng. Mun létta ferða-
löngum lífið svo um munar.
bth@frettabladid.is
FERÐALÖG Í stað þess að farþegar
þurfi við öryggisleit á alþjóða-
flugvöllum að taka tölvur sínar og
vökva upp úr handfarangri, stefnir
í að Leifsstöð, líkt og fleiri flugvellir,
innleiði nýjan tæknibúnað sem
heimilar farþegum að fara í gegnum
öryggisleit án þess að þurfa að fjar-
lægja hluti úr handfarangri sínum.
Alþjóðaflugvöllurinn í Helsinki
hefur nýverið innleitt þennan nýja
tæknibúnað. Búnaðurinn greinir
innihald farangurs með mun
nákvæmari hætti en núverandi
tækni gerir og getur greint vökva
sem er staðsettur í tösku og veitt
upplýsingar um hvort hann er
hættulegur eða ekki.
Guðjón Helgason, upplýsinga-
fulltrúi Isavia, segir um spennandi
tæknibreytingu að ræða sem muni
f lýta fyrir öryggisleit farþega en
auka um leið öryggi á f lugvöllum
og í loftförum.
Auður Ýr Sveinsdóttir, yfirmaður
f lugverndar Isavia á Kef lavíkur-
flugvelli, segir að margir f lugvellir
séu að skoða þessa tækninýjung.
Nokkrir flugvellir hafi nú þegar inn-
leitt tæknina með góðum árangri.
„Já, það má segja að það sé
ákveðin bylting handan við hornið
í þessum efnum,“ segir Auður. „Þetta
er búnaður sem mun breyta mjög
miklu fyrir þægindi farþega og auka
um leið öryggi jafnt ferðalanga og
starfsfólks flugvallanna.“
Líkja má nýju tækninni við sneið-
myndatöku af farangri, að sögn
Auðar, í stað röntgenmyndatöku
sem núverandi búnaður byggi á.
„Í sneiðmyndatöku verður skýr-
leiki gagnanna, það er að segja inni-
haldsins í handfarangrinum, miklu
betri. Við erum fyrst og fremst að
tryggja aukið öryggi og um leið
aukast þægindi farþega, sem er
virkilega ánægjuleg þróun.“
Ný tækni einfaldar líf flugfarþega
Öryggiseftirlit á flugvöllum er sá þáttur sem ferðalangar kvíða mest og getur tekið eilífð að komast í gegn um. Von er
á nýrri tækni sem mun auðvelda ferðalöngum lífið. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Sem fyrr segir getur nýja tæknin
greint hvers konar vökvi er á ferð, til
að mynda hvort um ræði vatn eða
vökva sem geti reynst hættulegur. Ef
upp koma vafamál hefur starfsfólk
betri búnað til að byggja ákvörðun
á.
Innkaupaferli Isavia er fram
undan vegna þeirrar byltingar sem
fram undan er og er um töluverða
fjárfestingu að ræða. Efnt verður
til útboðs. Innkaup og innleiðing
mun taka sinn tíma og er viðbúið
að ferðalangar í Leifsstöð þurfi
að bíða í einhver ár eftir þessum
breytingum.
„Þetta er sá hluti ferðalaga sem
fólk kvíðir mest,“ segir Auður.
Öryggisleit er ekki síst þyrnir í
augum aldraðra og þeirra sem ekki
eru vanir að ferðast, en sá hópur sér
nú fram á betri tíma.
„Að auki höfum við verið að
reyna að bæta þjónustu og viðmót
við farþega sem fara um flugvöll-
inn. Það hefur skilað sér í aukinni
ánægju farþega með störf okkar,“
segir Auður. n
ragnarjon@frettabladid.is
HEILBRIGÐISMÁL Aukning hefur
orðið á greiningu á inf lúensu og
öðrum öndunarfæraveirum, eins
og Covid-19. Þá hefur innlögnum
vegna alvarlegra veikinda í kjölfar
sýkinga einnig fjölgað.
Bent er á að hægt er að forðast
alvarleg veikindi með bólusetningu
og segir sóttvarnalæknir að sérstak-
lega sé mikilvægt fyrir áhættuhópa
að hafa slíkt í huga. Þá er bent á að
verri bólusetningarþátttaka hafi
verið meðal fólks á aldrinum 60 til
69 ára en þeirra sem eldri eru.
41 einstaklingur greindist með
inflúensu í síðustu viku en samtals
199 greindust með Covid-19. n
Sýkingum fjölgar
í öndunarfærum
Guðrún
Aspelund, sótt-
varnalæknir
kristinnhaukur@frettabladid.is
HVERAGERÐISBÆR Laun bæjarfull-
trúa í Hveragerði hækka úr 154.249
krónum á mánuði í 201.837 um ára-
mótin, eða um 37 prósent.
Í svari meirihlutans við fyrir-
spurn Sjálfstæðismanna kemur
fram að laun bæjarfulltrúa miðist
við hlutfall af þingfararkaupi. Þess-
ar viðmiðunarreglur hafi Samband
íslenskra sveitarfélaga samið.
Helsta breytingin er sú að Hvera-
gerðisbær fór yfir 3 þúsund íbúa
þröskuldinn. Þar með fer sveitar-
félagið upp í hóp sveitarfélaga þar
sem miðað er við að launin séu 14,82
til 19,31 prósent af þingfararkaupi. n
Laun fulltrúanna
hækka mikið
10 Fréttir 3. desember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ