Fréttablaðið - 03.12.2022, Blaðsíða 58
Þingeyjarsveit auglýsir eftir verkefnastjóra sameiningarmála á skrifstofu sveitarfélagsins. Meginhlutverk verkefnastjóra er að
leiða stýra og vinna að verkefnum sem leiða af sameiningu Skútustaðahrepps og Þingeyjarsveitar, s.s. samræmingu reglna, stefnu-
mótun og þróun verklags í stjórnsýslu sveitarfélagsins í samráði við sveitarstjóra, sveitarstjórn og nefndir.
Hlutverk byggingarfulltrúa er að sjá til þess að byggingarmál í sveitarfélaginu séu í samræmi við ákvæði laga um mannvirki nr.
160/2010 og reglugerð þeim tengdum. Byggingarfulltrúi vinnur í nánu samstarfi við skipulagsfulltrúa og verkefnastjóra framkvæmda.
Stórutjarnaskóli í Þingeyjarsveit auglýsir eftir leikskólakennara/leikskólastarfsmanni í afleysingu í leikskóladeild í 80% starf sem:
• ber virðingu fyrir börnum og hefur áhuga á að starfa með þeim
• hefur góða samskiptahæfni og metnað til að takast á við fjölbreytt verkefni með nemendum.
• er jákvæður og sveigjanlegur
• er sjálfstæður í vinnubrögðum og sýnir frumkvæði
• er samstarfsfús og lausnamiðaður
• er með menntun sem nýtist í starfi
Stórutjarnaskóli stendur í Ljósavatnsskarði og er samrekinn leik-, grunn-, og tónlistarskóli með um 45 nemendur frá eins árs til 16
ára aldurs. Öll starfsemi skólans er í sama húsnæði. Skólinn er Grænfánaskóli og Heilsueflandi skóli og leggur áherslu á að búa
nemendum og starfsfólki fjölbreytt leik- náms- og starfsumhverfi sem eflir alhliða heilsu og þroska. Mikið samstarf er milli náms-
hópa innan skólans og er skólinn í góðu samstarfi við nágrannaskóla sína og samfélagið í sveitinni. Þá tekur Stórutjarnaskóli þátt í
þróunarstarfi með skólum erlendis.
Umsóknarfrestur er til 5. desember 2022 og þarf umsækjandi að geta hafið störf sem allra fyrst.
Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband í síma 4643220/8483547 eða í gegnum netfangið birnada@storutjarnaskoli.is
Umsóknir skulu sendar á netfangið birnada@storutjarnaskoli.is
Umsókninni þarf að fylgja ferilskrá og afrit af leyfisbréfi. Gerðar eru kröfur um hreint sakavottorð.
Lausar stöður hjá Þingeyjarsveit eru auglýstar á www.thingeyjarsveit.is/is/lausstorf
Með umsóknum um skal fylgja greinargóð starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og færð
rök fyrir hæfni umsækjanda í starfið.
Umsóknarfrestur er til og með 18. desember 2022. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Launakjör eru samkvæmt
kjarasamningi Launanefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Jón Hrói Finnsson, sveitarstjóri í síma 464 3328 eða í tölvupósti á jonhroi@thingeyjarsveit.is.
Umsóknir skal senda á umsokn@thingeyjarsveit.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu.
Með umsóknum um störfin skal fylgja greinargóð starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og
færð rök fyrir hæfni umsækjanda í starfið.
Umsóknarfrestur er til og með 18. desember 2022. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Jón Hrói Finnsson, sveitarstjóri í síma 840 9330 eða í tölvupósti á jonhroi@thingeyjarsveit.is.
Umsóknir skal senda á umsokn@thingeyjarsveit.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu.
Helstu verkefni:
• Stjórnun verkefna
• Gagnaöflun og greiningar
• Samskipti við þjónustuaðila í verkefnum sem tengjast sameiningu.
• Skjalagerð
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun á sviði lögfræði, stjórnsýslufræði, viðskiptafræði eða önnur menntun sem nýtist í starfi. Framhaldsmenntun er kostur.
• Menntun og/eða reynsla af verkefnastjórnun
• Þekking á og reynsla af opinberri stjórnsýslu.
• Hæfni í mannlegum samskiptum, góðir samstarfs- og
samskiptahæfileikar.
• Góð íslenskukunnátta og hæfni til þess að tjá sig í ræðu og riti.
• Góð almenn tölvukunnátta.
Helstu verkefni:
• að yfirfara hönnunargögn og önnur umsóknargögn tryggja að þau
séu í samræmi við kröfur í lögum, reglugerðum og skipulagi.
• að gefa út byggingarleyfi skv. 1. og 2. mgr. 9. gr laga um mannvirki.
• að hafa eftirlit með byggingarleyfisskyldum framkvæmdum á
byggingartíma
• að taka út framkvæmdir á framkvæmdatíma og skrá byggingarstig
mannvirkja
• að hafa umsjón með fasteignaskráningu, lóðaskrá og gerð lóða-
leigusamninga.
• að eiga samskipti og samstarf við aðila utan og innan stjórn-
sýslunnar sem sinna verkefnum á sviði byggingarmála.
• að vera íbúum, framkvæmdaaðilum og sveitarstjórn til ráðgjafar
um byggingarmál.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun á sviði byggingarmála skv. 8. gr. mannvirkjalaga
nr. 160/2010.
• Löggilding sem hönnuður skv. 25. gr. mannvirkjalaga.
• Þekking og reynsla á sviði byggingarmála.
• Þekking og reynsla af úttektum og mælingum
• Þekking á lögum um mannvirki og byggingarreglugerð.
• Þekking á og reynsla af opinberri stjórnsýslu.
• Hæfni í mannlegum samskiptum, góðir samstarfs- og samskipta-
hæfileikar.
• Góð íslenskukunnátta og hæfni til þess að tjá sig í ræðu og riti.
• Góð almenn tölvukunnátta.
Þingeyjarsveit er nýtt sveitarfélag sem varð til við sameiningu Skútustaðahrepps og Þing-
eyjarsveitar og tók til starfa um mitt ár 2022. Sveitarfélagið er stærsta sveitarfélag landsins
og nær yfir 12.021 km2. í því eru margar af stórfenglegustu perlum íslenskrar náttúru. Þar
er fallegt landslag, fjölbreytt náttúrufar, fjölskrúðugt fuglalíf, fiskur í vötnum og orka í iðrum
jarðar. Íbúar sveitarfélagsins eru 1.350. Þar af búa um 345 í þéttbýliskjörnum sveitarfélagsins
að Laugum og í Reykjahlíð. Meginstoðir atvinnulífsins eru landbúnaður og ferðaþjónusta.
Verkefnastjóri sameiningarmála
Byggingafulltrúi
Leikskólakennari/leikskólastarfsmaður í afleysingu í
leikskóladeild Stórutjarnaskóla
Þátttakandi
í íslensku
atvinnulífi
í meira en
50 ár
RÁÐUM EHF • Sími 519 6770
www.radum.is • radum@radum.is
Við ráðum
Ráðum býður upp á ráðgjöf og ráðningar
sniðnar að þörfum viðskiptavinarins.