Fréttablaðið - 03.12.2022, Blaðsíða 62
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Nánari upplýsingar veita Guðrún Ögmundsdóttir skrifstofustjóri, gudrun.ogmundsdottir@fjr.is og Ragnheiður Valdimarsdóttir mannauðsstjóri,
ragnheidur.valdimarsdottir@fjr.is Einnig eru frekari upplýsingar á starfatorg.is. Umsóknarfrestur er til og með 7. desember.
Störf við að móta nýtt fyrirkomulag
tekna af samgöngum til framtíðar
Við leitum að lausnamiðuðum sérfræðingum með áhuga á að taka
þátt í að móta samgöngugjöld framtíðarinnar.
Fjármála- og efnahagsráðuneytið og innviðaráðuneytið áforma
að setja á fót verkefnastofu um samgöngugjöld og flýtifjármögnun
samgönguinnviða. Vegna orkuskipta í vegasamgöngum fara hefð-
bundnar skatttekjur ríkissjóðs af ökutækjum og eldsneyti þverrandi.
Þá hafa stjórnvöld áform um að flýta samgönguframkvæmdum, bæði
á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni, einkum í jarðgangagerð.
Í ljósi þessa leggja ráðuneytin áherslu á að mótuð verði heildstæð
framtíðarsýn um breytt fyrirkomulag gjaldtöku af ökutækjum,
eldsneyti og afnotum vegakerfisins sem geti orðið sjálfbært til
langrar framtíðar. Verkefnastofunni er ætlað að vinna að úrlausnar-
efnum á þessu sviði í samstarfi við sérfræðinga ráðuneytanna og
sérstaka samráðsnefnd um málefnið. Markmiðið er að allir helstu
þættir í nýju kerfi samgöngugjalda verði gangsettir fyrir árslok 2024.
Meðal helstu verkefna:
• Skoða mismunandi leiðir til tekjuöflunar af umferð.
• Meta áhrif á ólíka hópa.
• Greiningar- og sviðsmyndavinna.
• Mat á tæknilegum lausnum og útfærslum.
• Samráð og kynningar á nýju fyrirkomulagi.
Fjölbreytt menntun og reynsla getur nýst í starfinu t.d. á sviði
hagfræði og fjármála, þróunar og uppbyggingar samgangna,
orkuskipta, umhverfis- og skipulagsmála, verklegra framkvæmda,
verkefnastjórnunar og verkfræði. Störf í verkefnastofunni eru
tímabundin til allt að tveggja ára.
Menntun og hæfniskröfur:
• Frumkvæði, drifkraftur og metnaður.
• Háskólapróf sem nýtist í starfi.
• Þekking og reynsla af stefnumótun og breytingarstjórnun.
• Greiningarhæfni, lausnamiðuð og sjálfstæð vinnubrögð.
• Framúrskarandi samskiptahæfileikar.
• Góð hæfni í að tjá sig í ræðu og riti.
• Reynsla af áhrifamati og greiningum er kostur.
• Reynsla af verkefnastjórnun er kostur.
• Þekking á samgöngumálum og/eða tækniþróun er kostur.
Innviðaráðuneytið
Vinnvinn | Kringlan 7 | 103 Reykjavík
Sími 552 1212 | vinnvinn@vinnvinn.is | www.vinnvinn.is
14 ATVINNUBLAÐIÐ 3. desember 2022 LAUGARDAGUR