Fréttablaðið - 03.12.2022, Blaðsíða 103
TÓNLIST
Aðventutónleikar
Söngsveitin Fílharmónía
Stjórnandi: Magnús Ragnarsson
Einsöngur: Hallveig Rúnarsdóttir
Hörpuleikur: Elísabet Waage
Langholtskirkja
sunnudaginn 27. nóvember
Jónas Sen
Þegar ég var tveggja eða þriggja
ára fóru foreldrar mínir með mig
til Kaupmannahafnar rétt fyrir
jól. Einn daginn fór ég með pabba
niður í bæ. Þá sá ég mann í hvítum
kattarbúningi. Pabbi sagði mér að
þetta væri Jólakötturinn. Ég varð
skelfingu lostinn. Og ekki að undra.
Jólakötturinn var óvættur, gæludýr
Grýlu og Leppalúða og hann át börn
sem fengu ekki föt í jólagjöf. Var
hann að fara að éta mig?
Jólakettinum brá fyrir á tónleik-
um Söngsveitarinnar Fílharmóníu
í Langholtskirkju síðasta sunnu-
dagskvöld. Þetta voru aðventutón-
leikar og á efnisskránni voru lög
sem hæfðu tilefninu. Eitt þeirra
var Jólakötturinn eftir Ingibjörgu
Þorbergs við ljóð eftir Jóhannes úr
Kötlum. Í sjálfu sér er lagið dálítið
klunnalegt því það er svo endur-
tekningasamt, en útsetningin hér
var skemmtileg. Hún var eftir Skarp-
héðin Þór Hjartarson og einkennd-
ist af hugvitsamlegum tilþrifum og
sívaxandi krafti. Kórinn stappaði og
einhverjir mjálmuðu á viðeigandi
stöðum. Útkoman hitti beint í mark.
Misskemmtilegur fyrri hluti
Eins og gengur á svona tónleikum
var fyrri hluti dagskrárinnar helg-
aður dálítið þungmeltri tónlist, en
léttmetið réð ríkjum í seinni helm-
ingnum. Eitt af þyngri lögunum
var hið frumflutta Við sem komum
víða að eftir Tryggva Baldvinsson.
Það var afskaplega falleg tónlist,
mjög ljóðræn og flæðandi. Mariam
Matrem Virginem, um Maríu mey
eftir Michael McGlynn við miðalda-
texta var líka hástemmt og fullt af
andakt. Ég höfði lýt eftir Hreiðar
Inga Þorsteinsson var sömuleiðis
ágætt, bæði grípandi og nett.
Sísta lagið á efnisskránni var án
efa Betlehemstjarnan eftir Áskel
Jónsson. Það var óttaleg armæða,
svo drungalegt og leiðinlegt að
furðu sætti að það skyldi rata á tón-
leikana, sem annars voru svo upp-
lífgandi.
En svo byrjaði stuðið
Nokkur frábær lög voru f lutt á
seinni helmingi dagskrárinnar, á
borð við hið sívinsæla þjóðlag frá
Katalóníu, Fúm, fúm, fúm, einnig
Jólasveinninn minn, Stráið salinn,
og svo hin dásamlega Ave María
eftir Sigvalda Kaldalóns. Við áheyr-
endurnir fengum meira að segja að
syngja með, en það var í laginu Nú
ljóma aftur ljósin skært. Einhverjir
Mjá mjá og stapp stapp
gárungar hafa breytt titlinum í Nú
ljóma afturljósin skært, en hér virt-
ist textinn ekki standa í neinum.
Söngurinn var fullur af tilfinn-
ingum og enginn flissaði.
Hallveig Rúnarsdóttir sópran
söng einsöng í nokkrum lögum og
gerði það af mikilli fagmennsku.
Söngurinn var kröftugur, magn-
þrunginn og upphafinn. Hörpu-
leikur Elísabetar Waage var líka
ómþýður og lét vel í eyrum.
Söngsveitin Fílharmónía söng
prýðilega. Söngurinn var tær og
innilegur, samtaka og styrkleika-
jafnvægi mismunandi raddhópa
eins og best verður á kosið. Magnús
Ragnarsson stjórnaði og gerði það af
kostgæfni. Hann er með músíkalsk-
ari mönnum, með næma tilfinningu
fyrir skáldskapnum í tónlistinni og
hefur svo mikið að segja. Hann er
einfaldlega frábær kórstjóri. n
NIÐURSTAÐA: Mjög skemmtilegir
tónleikar að langflestu leyti.
Gagnrýnandi Fréttablaðsins segir Aðventutónleika Fílharmóníu í Langholts-
kirkju síðasta sunnudag hafa að mestu verið skemmtilega. MYND/AÐSEND
Söngsveitin Fílharm-
ónía söng prýðilega.
Söngurinn var tær og
innilegur, samtaka og
styrkleikajafnvægi
mismunandi radd-
hópa eins og best
verður á kosið.
Mjúkspjalda Rafbók
Ný harðsoðin og hörkuspennandi
glæpasaga eftir Jón Atla Jónasson.
„... bókin er raunverulega fyndin, sem er
ekki algengt í íslenskum glæpasögum,
og þar að auki mjög spennandi.“
ARNÓR HJARTARSON / STUNDIN
„Á sama tíma og maður óttaðist hvað myndi
gerast á næstu síðu þá kveið maður því mest
að klára bókina, vildi einfaldlega meira.“
ANDRI FREYR VIÐARSSON / RÁS 2
,
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið 10–19 alla daga til jóla | www.forlagid.is
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
LAUGARDAGUR 3. desember 2022 Menning 71FRÉTTABLAÐIÐ