Fréttablaðið - 03.12.2022, Blaðsíða 80
Það vakti blendnar tilfinn-
ingar hjá íslensku þjóðinni
þegar hinu goðsagnakennda
Stjörnutorgi í Kringlunni var
lokað fyrir fullt og allt eftir 23
ára starfsemi.
benediktarnar@frettabladid.is
Í stað Stjörnutorgs hefur nýtt veit-
inga- og af þreyingarsvæði verið
opnað, Kúmen, og eru því mathallir
á Íslandi orðnar ellefu. Einhverjir
myndu segja að við værum með allt
of margar mathallir, á meðan aðrir
fagna fjölbreytileika matarmenn-
ingarinnar. Fréttablaðið hefur tekið
saman mathallir Íslands. n
Mathallirnar
orðnar ellefu
Stjörnutorg
Sú sem byrjaði þetta allt. Allir Íslendingar þekktu
Stjörnutorg, sem var starfrækt í 23 ár. Þarna komu
saman allir hópar samfélagsins og snæddu á hinum
ýmsu dýrindis veitingastöðum sem torgið hafði upp á
að bjóða. Staðir líkt og Rikki Chan, Serrano og Subway
verða áfram opnir á Kúmen, en landinn mun alltaf
eiga sínar ógleymanlegu minningar af Stjörnutorgi.
Hlemmur mathöll
Það má segja að mathallar-æðið hafi byrjað í ágúst
2017, þegar glæný og glæsileg níu veitingastaða mat-
höll var opnuð á Hlemmi. Hlemmur var áður fyrr ein
af aðalskiptistöðvum Strætós og aðalfélagsmiðstöð
upprennandi pönkara sem héngu þar dagsdaglega.
Í dag er að finna þar mathöll sem sækir innblástur í
hinar rómuðu evrópsku mathallir.
Grandi mathöll
Í Bakkaskemmunni við gömlu höfnina í Reykjavík er
að finna Granda mathöll. Mathöllin opnaði dyrnar árið
2018 og er hún sögð vera önnur mathöllin sem var
opnuð hér á landi. Þar má finna sjö fjölbreytta veit-
ingastaði og einstaklega fallegt útsýni yfir höfnina.
Höfði mathöll
Árið 2019 var í efri byggð borgarinnar opnuð mat-
höll á Höfða. Það var talsverð spenna meðal þeirra
sem vinna á svæðinu, en fjöldi fyrirtækja er með
starfsemi sína á svæðinu. Tíu veitingastaði má finna
í Höfða, sem er oftar en ekki smekkfull af svöngum
gestum.
Borg29
Í Borgartúni, sem oft hefur verið kallað fjármálamiðstöð Íslands, er að
finna mathöllina Borg29. Mathöllin hóf starfsemi sína í apríl 2021, en þar
er að finna fjölbreytt úrval veitingastaða sem henta hvort sem þú ert að
grípa þér mat í flýti eða mæta með góðum vinum og eiga notalegt kvöld.
Mjólkurbúið
Mathallir eru ekki bundnar við höfuðborgina og ákveðið var að koma
einni slíkri fyrir í nýjum miðbæ Selfoss í fyrra. Mathöllin er staðsett í
endurreistu Mjólkurbúi Flóamanna, sem var byggt árið 1929, en rifið
aðeins 25 árum síðar. Í Mjólkurbúinu er að finna tíu veitingastaði, sem
Selfyssingar og aðrir gestir geta notið matar á.
Gróðurhúsið
Í Hveragerði má finna Gróðurhúsið, sem er ein allra flottasta mathöll
landsins. Eins og allir vita er Hveragerði þekkt sem Blómabærinn og því
kom ekki annað til greina en að hafa alls kyns gróður sem innblástur
mathallarinnar. Fjölbreytta starfsemi er að finna í húsinu, en ásamt mat-
höll er þar að finna verslanir, matarmarkaði og ísbúð.
Vera mathöll
Háskólanemar glöddust mikið þegar fréttir bárust af mathöll í Grósku
hugmyndahúsi í Reykjavík. Vera er opin og björt mathöll þar sem góðan
mat er að finna, enda eru átta veitingastaðir með starfsemi þar. Einnig
er hægt að mæta á skemmtilega viðburði, líkt og uppistand og tónleika í
þessari fjölbreyttu mathöll.
Hafnartorg Gallery
Nýverið var opnaður nýr áfangastaður fyrir alla þá
sælkera sem vilja smakka það besta sem Reykjavík
hefur upp á að bjóða. Í hjarta Reykjavíkur er Hafnar-
torg Gallery, þar sem fjöldi veitingastaða og verslana
er til húsa. Áætlun Hafnartorgs Gallery er að vera
miðpunktur mannlífs í nýju borgarrými, þar sem allir
geta upplifað menningu og bragðað á góðum mat.
Pósthús Foodhall
Ein allra glæsilegasta mathöll landsins opnaði dyr
sínar fyrir landsmönnum nýverið á einu frægasta
horni miðborgarinnar. Pósthús Foodhall er opin og
skemmtileg mathöll sem er staðsett í hjarta Reykja-
víkur og hefur hún nú þegar slegið í gegn. Í Pósthúsi
er að finna fjölbreytta flóru veitingastaða, því ættu
allir að finna eitthvað við sitt hæfi.
Mathöll Vesturlands
Þessa perlu er að finna í B59 Hotel í Borgarnesi, en
um vinsælan ferðamannastað er að ræða. Mathöll
Vesturlands opnaði dyr sínar fyrir almenningi í sumar
og þar er að finna sex einstaka veitingastaði sem
gleðja Borgnesinga sem og aðra gesti.
Kúmen
Upp úr ösku hins sögufræga Stjörnutorgs rís hin
glæsilega mathöll Kúmen. Þó að margir gráti endalok
Stjörnutorgs, þá er ekki hægt að segja annað en að
Kúmen sé einkar flott og skemmtileg mathöll, sem
staðsett er í Kringlunni. Nafnið Kúmen hefur vakið
mikla athygli, en Kúmen er kryddið sem má finna í
kringlum. Skemmtilegt.
48 Helgin 3. desember 2022 LAUGARDAGURFréttablaðið