Fréttablaðið - 03.12.2022, Blaðsíða 116

Fréttablaðið - 03.12.2022, Blaðsíða 116
Ég held að við getum öll verið sammála um að í stað þess að senda börn í bólið með einhver tæki, sé þetta miklu fallegra. AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@ frettabladid.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrir@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolbeinn@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is JÓLIN ERU Í DORMA Frábært úrval og gott verð NATUES LUXURY DÝNA OG STILLANELGUR BOTN Þráðlaus fjarstýring með 2 minnisstillingum fylgir. Verðdæmi 160 x 200 cm. 545.800 kr. NÚ 436.640 kr. Þráðlaus fjarstýring með 2 minnisstillingum PARIS höðagafl Fallegur höfðagafl í Svörtu eða hvítu PU leðurlíki, dökk- gráu eða ljósgráu flaueli. 120 x 200 cm. 64.900 kr. NÚ 51.920 kr. 140 x 200 cm. 64.900 kr. NÚ 51.920 kr. 160 x 200 cm. 69.900 kr. NÚ 55.920 kr. 180 x 200 cm. 74.900 kr. NÚ 59.920 kr. 20% AFSLÁTTUR JÓL 20% AFSLÁTTUR JÓL Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði Ve rð o g vö ru up pl ýs in ga r í a ug lý si ng un ni e ru b ir ta r m eð f yr ir va ra u m p re nt vi llu r. Börn geta farið til koju með heyrnartól og nýjar bækur fyrir þessi jólin, en þrjár bækur í geysivinsælum tón- listarbarnabókaflokki frá Sögum komu út á dögunum, þar á meðal Snjókorn falla, sem inniheldur jólalög eftir Ladda og skjólstæðinga hans. ninarichter@frettabladid.is Sögur útgáfa hefur gefið út söng- hljóðbækur frá árinu 2015. „Þá komu Vögguvísurnar okkar út fyrst. Síðan erum við búin að gefa út tíu bækur, og svo komu út þrjár bækur í ár,“ segir Kristján Freyr Halldórsson, forleggjari og tónlistarmaður. Þægilegar útsetningar Að sögn Kristjáns var frá upphafi lagt upp með að leyfa yngstu lesend- unum að kynnast tónlist í gegnum bækur. „Þarna er ekki verið að finna upp hjólið, en við huguðum að því frá fyrstu tíð að tónlistin sem slík væri ekki skerandi. Að hún væri haganlega útsett fyrir þessi gæði sem eru í þessari dós. Jón Ólafsson hefur unnið þessar útsetningar. Þær eru þægilegar og ekki mikið um trommur og popp,“ segir hann. Kristján segir tónlistina hafa góð áhrif á börn, hún gleðji og sefi um leið. „Þarna fá börn frið og njóta bókanna með þessum tveimur skilningarvitum, þegar þau skoða og hlusta um leið.“ Snjókorn falla er jólalagabók sem heitir eftir hinni geysivinsælu ábreiðu Þórhalls Sigurðssonar, Ladda, á Shakin’ Stevens slagaran- um Snow is falling. „Þarna eru Laddi og bestu vinir hans. Þar eru jóla- lögin sem hann hefur gert vinsæl í gegnum tíðina, og líka klassísku jólalögin. Jólasveinar ganga um gólf og Ég sá mömmu kyssa jólasvein og allt það. Lög sem þessir karakterar, eða skjólstæðingar Ladda syngja, í þessum útsetningum sem ég nefndi hérna áðan.“ Aðspurður segir Kristján að útgáfan hafi leitað til Ladda með hugmyndina þegar stóð til að gefa út jólalagabók í annað sinn. „Við gáfum út jólabókina Jólalögin okkar fyrir nokkrum árum og fengum rosalega góðar viðtökur og hún er uppseld. Okkur fannst skemmti- legra að gefa hana svona út og við fengum Ladda til að gera þetta með okkur,“ segir Kristján. Jólaball í hljóðkerfið Spotify-Wrapped árslistarnir hafa gengið manna á milli síðustu sólar- hringa, þar sem áskrifendur tón- listarveitunnar deila mest spiluðu lögum ársins. Kristján segir marga foreldra hafa hlegið að því hvernig listarnir blanda saman stórstjörn- um á borð við Beyoncé og Harry Styles við Leikhópinn Lottu og Haf- dísi Huld. Kristján segir það erfið- leikum bundið þegar umræddir for- eldrar reyna að vera töff. Þarna séu bækurnar hugsanlega svarið. „Við teljum að við séum þarna með lausn. Börn fara með bækurn- ar í koju, með sinn playlista alveg í friði. Ég held að við getum öll verið sammála um að í stað þess að senda börn í bólið með einhver tæki, sé þetta miklu fallegra.“ Þá er hægt að nota bókina í ýmsum tilgangi, en á spiladósinni má finna tengi fyrir svokallaða „jack snúru“, fyrir heyrnartól eða hljóð- kerfi. „Ef þú vilt halda jólaball heima hjá þér ertu bara kominn með lausnina,“ segir Kristján. „Við erum búin að leysa mjög mörg vandamál með þessari bók.“ Valli rostungur í sókn Auk jólalagabókarinnar og vöggu- vísnabókarinnar Sofðu rótt með Friðriki Dór, Hildi Völu og KK, er komin út bókin Rostungurinn Valli. „Hér erum við búin að spenna bog- ann allverulega. Þetta er sagan um Valla rostung sem kom til Íslands og braut smábáta við höfnina á Höfn í Hornafirði. Þetta er bók um ævintýri hans og þarna eru alvöru hvalahljóð sem fylgja. Börnin kynn- ast hvalahljóðum og hljóðum rost- unga og sela. Svo er hljóðbók í þessu líka,“ segir hann. Ef fólk vill skoða og hlusta í leiðinni er þetta komið saman í eina bók, það eru ekki mörg fordæmi fyrir þessu,“ segir Kristján Freyr forleggjari hjá Sögum. n Lausn fyrir foreldra sem vilja halda árslistunum töff Kristján Freyr er tónlistarmaður og forleggjari sem sér fyrir sér ýmsa möguleika í samþættingu bókar og tónlistar. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI ninarichter@frettabladid.is Felix Bergsson hugsar til Katar, aðspurður um helstu fréttamál vikunnar. „Að sjá Þjóðverja detta út kom manni í opna skjöldu,“ segir Felix. „Svo er allt dramað í kringum þessi mótmæli og umræðu um mannréttindamál og annað slíkt. Það er mikilvægt að þessi umræða sé tekin. Í rauninni er það í Katar eins og það var á Ítalíu fyrir þrjátíu árum. Það hefur varla verið hægt að veifa regnbogafánanum mikið þar á þeim tíma. Það gefur manni von um að hlutirnir geti breyst vegna þess að hugrakkt fólk lætur í sér heyra,“ segir hann. Varðandi gagnrýni á að fjölmiðlar sæki mótið í ljósi mannréttinda- brota á svæðinu segir hann: „Ég trúi líka aðeins á samtalið og að fenginni reynslu, það verður einhvers staðar að byrja,“ segir Felix sem hugsar einnig til Kína þessa vikuna. Ég hef miklar áhyggjur fyrir hönd þeirra sem hafa staðið fremst í mótmæl- unum þar. Kína er alræðisríki og hryllingur þegar kemur að mann- réttindum borgaranna,“ segir Felix. Hvað innlendu málin snertir nefnir Felix fimm ára setu Katrínar Jakobsdóttur á forsætisráðherrastól. „Katrín var í viðtali í vikunni þar sem hún talaði bara mjög fallega um stjórnmálastéttina. Það var áhuga- vert að heyra stjórnmálamann segja að hún gæti bara hugsað sér að vera áfram í stjórnmálum af því að henni fyndist stjórnmálafólk skemmtilegt og gott fólk sem var að vinna að hag þjóðarinnar af fyllstu einlægni. Það er óvenjulegt að heyra fólk tala svona,“ segir Felix Bergsson. n Vendingar í Katar og Katrín í fimm ár Felix Bergsson, leikari. n Frétt vikunnar Felix Bergsson 84 Lífið 3. desember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.