Fréttablaðið - 03.12.2022, Blaðsíða 40
Lögreglan
fer á vett-
vang í því
skyni að
handtaka
fólk því
þetta sé
orðið
hvimleitt.
Landsréttur staðfesti í nóvem-
ber dóm yfir Elínborgu Hörpu
Önundardóttur vegna brota
háns á lögreglu- og hegningar-
lögum. Atvikin áttu sér stað á
mótmælum. Lögmaður háns
segir dóminn og aðgerðir lög-
reglu til þess gerðar að fæla
fólk frá mótmælum. Þau stefna
á Mannréttindadómstól Evr-
ópu fáist ekki önnur úrlausn í
Hæstarétti.
Ég bjóst ekki við neinu af
dómstólum, út frá minni
reynslu og því sem ég
hef séð annars staðar,“
segir Elí, um niðurstöðu
Landsréttar í máli háns fyrir um
mánuði síðan. Þar var staðfestur
dómur héraðsdóms um tveggja
mánaða skilorðsbundinn dóm Elí
fyrir að hafa sparkað í lögreglu-
mann og fyrir að hafa brotið í þrí-
gang gegn 19. grein lögreglulaga
með því að óhlýðnast fyrirmælum
lögreglunnar á mótmælum sem
haldin voru við Alþingi og í inn-
gangi dómsmálaráðuneytisins
vegna fyrirhugaðrar brottvísunar
hælisleitenda. Það þriðja var þó
ekki á mótmælum heldur var háni
gefið að sök að hafa óhlýðnast
fyrirmælum lögreglu í Austurstræti
þar sem hán aðstoðaði mann vegna
veikinda hans.
„Við höfum verið að sjá ákveðið
þema þar sem dómstólar virðast
frekar standa með ríkisvaldinu en
einstaklingum. Þannig var ég ekki
endilega hissa á þessari niðurstöðu
en ég var þó hissa að dómur héraðs-
dóms hafi verið staðfestur að fulln-
ustu og ekki gerðar neinar athuga-
semdir. Ég hélt að sumu yrði hliðrað
til og ég myndi þannig fá refsingu,
en á sama tíma myndi dómstóllinn
sýna að hann væri alveg til í mót-
mæli, en kannski ekki of mikið af
þeim,“ segir Elí, sem telur að í dómi
Landsréttar hafi þröskuldurinn
Myndin er tekin í dómsmálaráðuneytinu þegar mótmælin fóru fram þar 5. apríl 2019. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Jón Þór Ólason, lögmaður Elí, og Elí Hörpu og Önundardóttir. Þau bíða þess nú að fá að vita hvort þau geti farið með mál Elí til Hæstaréttar FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Verður að vera raunveruleg ógn
Lovísa
Arnardóttir
lovisaa
@frettabladid.is
19. grein lögreglulaga:
19. gr. Skylda til að hlýða
fyrirmælum lögreglu.
Almenningi er skylt að hlýða
fyrirmælum sem lögreglan
gefur, svo sem vegna um-
ferðarstjórnar
eða til þess
að halda uppi
lögum og reglu á
almannafæri.
verið settur mjög neðarlega þegar
kemur að mótmælum og hvað megi
gera á þeim.
Meint spark
Í dómi Landsréttar segir að þrátt
fyrir að Elí hafi sparkað í lögreglu-
manninn þegar lögregla dró hán
af pappaspjöldum á mótmælum á
Austurvelli, þá sé ekki á neinn hátt
hægt að réttlæta þá háttsemi að
sparka í lögreglumann.
„Meinta sparkið sést ekki á
neinum myndböndum, lögreglu-
maðurinn fékk ekkert áverkavott-
orð og man ekki hvorn fótinn ég
á að hafa sparkað í. Öll vitni, fyrir
utan umræddan lögreglumann og
einn annan lögreglumann, sögðust
ekki hafa séð neitt spark,“ segir Elí.
„Við ákvörðun refsingar vegna
brotanna í dómsmálaráðuneyt-
inu og fyrir framan Alþingi, yrði á
hinn bóginn að líta til þess að fyrir
E vakti að standa vörð um réttindi
hælisleitenda og það gerði hún
með því að nýta á friðsaman hátt
stjórnarskrárvarinn rétt sinn til
40 Helgin 3. desember 2022 LAUGARDAGURFrÉttablaðið