Fréttablaðið - 03.12.2022, Page 67

Fréttablaðið - 03.12.2022, Page 67
kopavogur.is Vatnsendahvarf. Breyting á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040. Forkynning tillögu á vinnslustigi. Vakin er athygli á að nú stendur yfir í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 forkynning á tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 fyrir Vatnsendahvarf. Tillögunni fylgir m.a. umhverfisskýrsla sem unnin er sameiginlega fyrir tillögu að breytingu á aðalskipulagi og tillögu að deiliskipulagi Vatnsendahvarfs. Breytingar á aðalskipulagi eru gerðar í tengslum við vinnu deiliskipulags fyrir svæðið í samræmi við ábendingar og umsagnir sem hafa borist. Í tillögunni að aðalskipulagsbreytingu er afmörkun landnotkunarreita fyrir íbúðarsvæði (ÍB-6), opin svæði og samfélagsþjónustu breytt, fellt er út svæði fyrir verslun og þjónustu í útjaðri íbúðarsvæðisins og sú þjónusta sem þar var fyrirhuguð færð miðsvæðis inn í hverfið nálægt skóla og leikskóla, auk þess sem stað- setning minjasvæðis er leiðrétt. Skilgreiningin „tengibraut“ á Kambavegi að og frá hverfinu (ÍB-6) er felld niður. Fimmtudaginn 8. desember 2022 milli 15:00-17:00 verður opið hús á bæjarskrifstofum Kópavogs að Digra- nesvegi 1 þar sem ofangreind tillaga á vinnslustigi að breytingu á aðalskipulagi fyrir Vatnsendahvarf verður kynnt þeim sem þess óska. Tillagan er aðgengileg á vef Kópavogsbæjar www.kopavogur.is og í þjónustuveri Kópavogsbæjar að Digranesvegi 1 á opnunartíma. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Athugasemdir og ábendingar skulu hafa borist skriflega til skipulagsdeildar Umhverfissviðs, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi eða á netfangið skipulag@kopavogur.is eigi síðar en kl. 16:00 miðvikudaginn 11. janúar 2023. Skipulagsfulltrúinn í Kópavogi. Breyting á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 Þingeyjarsveit Auglýsing um deiliskipulag Fjósatungu í Fnjóskadal Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar samþykkti þann 30. nóvem- ber 2022 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi hluta jarðarinnar Fjósatungu í Fnjóskadal eins og 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 mælir fyrir um. Viðfangsefni deiliskipulagsins er m.a. að afmarka 44 lóðir fyrir frístundahús á um 38 ha svæði. Tillagan að breytingu mun liggja frammi á skrifstofum Þing- eyjarsveitar, Kjarna, 650 Laugum og Hlíðavegi 6, 660 Mývatn, frá og með mánudeginum 5. des 2022 með athugasemdarfresti til og með þriðjudeginum 17. janúar 2023. Þá eru upplýsingar einnig aðgengilegar á heimasíðu Þingeyjarsveitar undir skipu- lagsmál. Skila skal athugasemdum skriflega til skrifstofu Þingeyjar- sveitar, Hlíðarvegi 6, 660 Mývatn og/eða í tölvupósti á netfang- ið atli@thingeyjarsveit.is. Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna innan tilskilins frests teljast henni samþykkir. Atli Steinn Sveinbjörnsson Skipulagsfulltrúi Þingeyjarsveitar Borgartúni 26, 105 Reykjavík Sími 530 1400 www.rikiskaup.is Húsnæði fyrir löggæslu- og viðbragðsaðila Ríkiskaup f.h. Framkvæmdasýslunnar – Ríkiseigna óska eftir þátttakendum í forvali á arkitektahönnun vegna byggingar húsnæðis fyrir löggæslu- og viðbragðsaðila á höfuðborgar- svæðinu (HVH) að Kleppsgörðum 2. Þeir aðilar sem verkefnið nær yfir eru: • Landhelgisgæslan (LHG) • Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu (LRH) • Neyðarlínan (112) • Ríkislögreglustjóri (RLS) • Tollgæslan • Landsbjörg • Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins (SHS) – skrifstofur Forvalið er opið öllum hæfum þátttakendum. Að loknu forvali mun verkkaupi velja fimm fyrirtæki úr hópi hæfra þátttakenda til þátttöku í lokuðu samkeppnisútboði. Þau sem boðið verður að taka þátt í lokaða samkeppnisút- boðinu fara i gegnum þrjú þrep. Í fyrsta þrepi skila allir þátt- takendur inn hönnunartillögum. Matsnefnd velur tvær tillögur til áframhaldandi þátttöku. Í þrepi tvö uppfæra þátttakendur tillögur sínar eftir notendasamráð og umsögn matsnefndar ásamt ábendingum frá verktaka-verkfræðingateymum um hvað betur mætti fara m.t.t. kostnaðar og framkvæmda. Að loknu þrepi tvö velur matsnefnd vinningstillögu á grundvelli 70% vægis tillögu og 30% vægis tilboðs í arkitektahönnunina. Í þrepi þrjú hefst forhönnunin. Að því loknu fer fram gerð aðaluppdrátta og svo verkhönnun. Verkefnið: Ákveðið hefur verið að byggja nýjar höfuðstöðvar fyrir lög- gæslu- og viðbragðsaðila á höfuðborgarsvæðinu. Húsnæðið þarf að taka tillit til fjölmargra verkefna aðila og breytilegrar starfsemi þeirra. Niðurstaða þarfagreiningar verkefnisins gaf til kynna að aðstöðuþörf væri rúmlega 26.000 m². Er þá miðað við verkefnamiðað vinnuumhverfi sem skapar sveigjanleika til komandi framtíðar. Í húsnæðinu verður sameiginleg björg- unarmiðstöð, kennslusetur, matstofa, æfingsvæði og fleira. Forsendur verkefnisins eru eftirfarandi: • Viðbragðs- og þjónustustig löggæslu og viðbragðsaðila við almenning verði eflt • Húsnæðis- og aðstöðumál aðilanna leyst með hagkvæmum hætti • Byggt verður yfir verkefni, ekki aðila • Samvinna, samþætting, samlegð og þekkingarmiðlun milli aðila eflist • Verkefnamiðað vinnuumhverfi (VMV) • Sveigjanlegt húsnæði og aðstaða Útboð á síðari stigum verða lokuð öðrum en þeim sem tekið hafa þátt í forvalinu og uppfyllt allar kröfur þess. Haldin verður kynning fyrir væntanlega þátttakendur á Teams 6. desember kl. 13:00. Allar nánari upplýsingar um ferlið og útboðsskilmála er að finna gjaldfrjálst í útboðskerfi Ríkiskaupa, TendSign, vefslóðinni https://tendsign.is/ , útboðsnúmer 21730. Óski þátttakendur frekari upplýsinga má senda fyrirspurn í útboðskerfinu. FORVAL RARIK ohf. • www.rarik.is/forval RARIK óskar eftir jarðvinnuverktökum í forval: RARIK 22046 Forval fyrir strenglagnir 2023 Gögn er hægt að sækja án greiðslu á vef RARIK www.rarik.is/forval Skila þarf umbeðnum upplýsingum til Verkís á netfangið jo@verkis.is fyrir kl. 14:00, þriðjudaginn 20. desember 2022. FORVAL intellecta.is RÁÐNINGAR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.