Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.09.1939, Qupperneq 6

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.09.1939, Qupperneq 6
V A K A 2. árg. . Júli-sept. 1939 þess að færa birtu og yl í bónd- ans bæ og afnema með því eina helztu orsökina fyrir flóttanum úr sveitinni. Hverir og heitar uppsprettur eru að litlu leyti not- að, þó er lítils neytt af kartöflum og öðrum garðjurtum — og nokk- uð af því er innflutt. í stuttu máli: Atvinnuleysi og þröngur hagur þjóðarbúsins staf- ar fyrst og fremst af því, að land- ið er ekki numið. Framtíð þjóðar- innar liggur við, ef ekki verður hið bráðasta hafizt handa um stórfellt landnám. Opinbert fé er ekki fyrir hendi nema að litlu leyti til þess að hrinda þessum stórmálum í framkvæmd. Flestar þjóðir í heiminum verða að taka á sig þungbæra kvöð — herskyld- una — auk greiðslu á tollum og sköttum, til þess að leitast við að skapa sér öryggi og trygga fram- tíð, að svo miklu leyti, sem það er mannlegum mætti í sjálfsvald sett. íslendingar eru undanþegnir herskyldu og því margvíslega böli, sem fylgir í kjölfar hennar. En það hefir aldrei verið Ijósara en nú, að einstaklingarnir verða að taka á sig í þágu heildarinnar nýja kvöð, sem að sumu leyti má e. t. v. jafna til herskyldu. Allir íslendingar, háir og lágir, ríkir og fátækir, karlar og konur, verða að takast þá skyldu á hendur að nema landið. í þeim tilgangi ber að leiða í lög almenna þegn- skylduvinnu, sem nái til allra karla og kvenna á vissu aldurs- skeiði. t t t Það er kunnara en frá þurfi að segja, að hugmyndin um almenna þegnskyldu er ekki ný af nálinni meðal íslendinga. Nú eru liðin þrjátíu og sex ár síðan henni var fyrst hreyft á Alþingi og síðar var hún allmikið rædd í blöðum, tímaritum og á mannfundum. Það má því vel vera, að einhverjir á- líti, að frá þessu ráði hafi verið horfið eftir rannsókn og rökræð- ur, sem hafi leitt í ljós, að al- mennrar þegnskylduvinnu væri ekki þörf. En því fer fjarri, að þetta sé rétt ályktun. Þegar þegn- skyldunni var fyrst hreyft og á ár- unum þar á eftir, snerust öll stjórnmálaátök hér á landi um samband íslands við Danmörku. Innanlandsmál, sem ekki voru beinlínis aðkallandi, fengust ekki rædd eða athuguð. Nálega alla al- þingismennina skorti þá fram- sýni, sem tillaga Hermanns heit- ins Jónassonar var sprottin af. Aðeins einn þingmaður, að honum undanteknum, tók til máls um þingsályktunartillöguna. Það var Þórhallur Bjarnarson biskup, sem tók í streng með Hermanni. And- mælum var ekki hreyft. Utan þings var þessi hugmynd ekki rædd á næstu árum, svo að telj- andi sé. Á stríðsárunum hófust hinsvégar umræður um málið á þeim vettvangi, sem áður er frá greint. Margir lögðu þegnskyld- unni lið, en fátt varð um svör, sem mark var á takandi. Aðeins eitt vikublað var hugmyndinni andvígt. Af andmælunum lifir að- eins hin alkunna vísa: 164
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál
https://timarit.is/publication/1746

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.