Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.09.1939, Qupperneq 20

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.09.1939, Qupperneq 20
V A K A 2. árg. . Júlí-sept. 1939 mönnum hans. Árið 1935 féllu ýmsir dómar viðvíkjandi New Deal, er gengu á móti stjórninni, og afnámu mikinn hluta af lögunum, enda er meiri hluti dómaranna stjórnarandstæðingar. Með- an hæstiréttur er skipaður eins og hann er nú, er ómögulegt að breyta lögunum að ráði, en hinir afturhaldssömustu af dómurunum eru nú allir yfir 70 ára gamlir, og er því möguleiki til, að nýir komi í staðinn, áður en langt líður. Þar sem miklum hluta af New Deal var kollvarpað af hæstarétti, má það teljast mjög hæpið, að það beri að skoða valdatöku Roosevelts, sem nokkra bylt- ingu eins og hann sjálfur vill vera láta. En þó standa ýmis af þessum lögum ennþá óhögguð, svo sem tryggingalögin, bankalögin og lögin um réttindi verka- mannafélaganna, og má því með réttu segja að Roosevelt hafi beint pólitík Bandaríkjanna inn á nýjar brautir, og þótt aðgerðlr hans séu ekki sérlega rót- tækar eða leysi vandamálin til fulls, þá bjóst þó enginn við því einu ári áður, en að hann tók völdin, að neinar slíkar aðgerðir væru mögulegar. Áður en Roosevelt kom til valda, höfðu menn almennt ekki hugmynd um að hér væri um neinn sérstakan afburðamann að ræða. Menn kusu hann vegna þess að hann krafðist stórvægilegra aðgerða til að leysa úr vandræðunum, og menn vonuðu að hann mundi gera eitthvað, án þess þó að hafa sterka trú á honum. En eftir að hann tók völdin hefir álit hans stöðugt farið vaxandi vegna hinnar miklu atorku, sem hann hefir sýnt, eink. um þó vegna þess, að hann hafði hug og dug til að framkvæma aðgerðir, er áttu sinn mikla þátt í að bjarga landinu úr þeim vandræðum, er steðjuðu að því um það leyti, sem hann tók við stjórn- inni. Árið 1936 fóru fram forsetakosning- ar og kosningar til sambandsþingsins, og átti þjóðin nú að taka afstöðu til stjórnmálastefnu Roosevelts. Við þessar kosningar lýsti hann því yfir, að stefna sín væri sú sama og áður, og væri það ætlun sín að halda áfram með New 178 Deal. Við þessar kosningar voru lín- urnar milli flokkanna dregnar miklu skarpara upp en áður, því oft hefir verið erfitt að finna muninn á stefnu þeirra. Bak við andstöðuflokk Roosevelts, Re- publieana, stóðu flestir mestu auðkýf- ingar ríkjanna. Voru þeir hræddir við, að lagðir yrðu á þá hærri skattar og að ríkisvaldið mundi skerða frelsi þeirra sem atvinnurekenda. En miðstéttin og mikill hluti verkamanna studdi Roose- velt, sem vann glæsilegan sigur, þótt mótstöðumenn hans hefðu óþrjótandi fé og umráð yfir meiri hlutanum af öllum áróðurstækjunum. í kosningabaráttunni taldi Roosevelt sig vera fulltrúa fjöld- ans og að hann berðist fyrir því, að frelsa þjóðina undan áþján auðkýfing- anna (hinna ökonomisku royalista) eins og frelsishetjurnar fyrrum hefðu frelsað landið undan kúgun konungsvaldsins. Sína stefnu taldi hann þá einu, er stæði i samræmi við sögðulega þróun ríkj- anna. Kom það greinilega í ljós, að hann er enginn byltingamaður, en hefir á- kveðnar framfarahugsjónir og djúpan skilning á þjóðfélagsmálum. En fyrst og fremst er hann ákaflega slyngur stjórn- málamaður, sem alltaf ekur seglum eft- ir vindi og gengur ekki lengra en honum er óhætt. Síðan þessar kosningar fóru fram hefir Roosevelt orðið að hafa fremur hægt um sig, þar sem tímarnir eru allt aðrir en þegar hann kom til valda 1933. Þótt tala atvinnuleysingja skipti alltaf mörgum miljónum, þá er þó ennþá ó- mögulegt fyrir sambandsþingið og stjórnina að gera nokkrar verulegar um- bætur þeim til bjargar. Og óhugsandi er, að ríkið ráðist í það í náinni framtíð að taka undir sig fyrirtæki, sem rekin eru í þágu almennings. Bæði er and- staðan á móti því afar mikil, og svo kostar það ógrynni fjár að kaupa þau af eigendunum. Járnbrautirnar ein- ar eru t. d. virtar á 23 miljarða dollara. Það er engum efa bundið, að það er ætlun Roosevelts að breyta stjórnar- skránni og fá sambandsþinginu í hend- ur löggjafarvaldið á öllum sviðum og
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál
https://timarit.is/publication/1746

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.