Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.09.1939, Side 48

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.09.1939, Side 48
V A K A 2. árg. . Júlí-sept. 1939 framfæri almennings. Hann var borinn lemstraður frá glugganum á herbergi drykkjufélaga sinna. Gamli maðurinn tók að sjálf- sögðu meira en vel í þessa ráða- gerð okkar. Einu sinni, þegar ég kom inn í herbergið hans, bað hann mig að setjast á koffortið, en ekki þar, sem ég var vanur, á kistuna með dularfulla innihald- inu. Hann spurði mig síðan hvort ég vildi skoða leikföngin hans. Ég tók því með fögnuði og leit á þetta sem brellu hans til að styrkja mig í trúnni, því að oft hafði þess orðið vart í ráðagerð- um okkar, að traustið var hikandi þar, sem skoðun mín kom í ljós. Nú var hann að leiða mig að skuggsjá þeirri, sem daglega hafði birt honum lífið í sparifötum átt- hagatryggðar og vanafestu. Ég hafði mörgum sinnum horft á kvikmyndasýningar borgarlnn- ar í allri þeirra dýrð. En hvað var það í samanburði við allt það, sem birtist mér undan þessu fá- skrýdda kistuloki? Hvar var sálin í öllu því hrófatildri, sem tízkan hafði snapað saman um allar götur þessa heims, úr frumskóg- um, kaffihúsum, skotgröfum, knæpum og eyðimörkum. Allt var þetta persónulaust og staðlaust, flögrandi hrævareldur á götu ringlaðrar menningar. En plönt- urnar og steinarnir, búsáhöldin, moldin og vatnið á pelanum í helgidómi gamla mannsins — allt voru þetta persónulegar dásemd- ir, þrungnar af lífi og sál; það var maðurinn sjálfur í sparifötum 206 sinnar göfgustu speki. — Það var biðjandi jarmur lambsins í þess- um eyrnasnepli. Ullarlagðurinn var ímynd hinnar fóstrandi móð- ur. Það gat verið spurning, hvort þessi lokkur úr kýrhalanum var ekki fær um að seðja hungraðan barnsmaga. Skúfurinn úr faxinu á honum gamla Brún var nógu kröftugur til að reka burt púkann, sem olli mér tannpínunni, þegar ég hugsaði til konunnar minnar, sem átti það undir trausti gæð- ingsins, hvort hún fengi að sjá ljós þessa heims, í stað þess að draga móður sína niður í gröfina. Þar var meiri tryggð en allra kvikmyndastjarnanna samanlögð í svip þeim, sem kom fram í hugann við að handfjatla bind- ið, sem geymdi hárflyksuna af honum Snata gamla, sem vakti yfir túninu og varði það, meðan aðrir sváfu. Þarna var dá- lítil moldarlúka, tekin úr honum Krappamóa, þar sem útjaðar sléttunnar minnti á síðustu hand- tökin fyrir útlegðina. Hver getur borið um það, að söknuður Napó- leons hafi verið sárari og þrá hans dýpri til að heimta ríki sitt aftur. Og þarna var blágrýtishnullungur úr Skriðugilinu ofan við bæinn, spellvirkjanum, sem hvað eftir annað spúði sandi og möl yfir túnið hans, og kostaði hann svo mörg og erfið handtök við að hreinsa það burt. Þarna var dá- lítill peli með vatni úr lindinni, sem hann sótti vatnið í til notk- unar í fjósi og bæ. Það er ég viss um, að hið dýrasta vín hefði verið

x

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál
https://timarit.is/publication/1746

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.