Rökkur - 01.08.1930, Síða 17
RÖKKUR
63
landshernum Bretar. Nú er
þetta breytt. Undanfarin ár hef-
ir 40 Indverjum árlega verið
veittur aðgangur að yfirfor-
ingjaskólanum í Sandhurst á
Englandi. — Indland ber allan
kostnað af Indlandshernum, —
einnig breska Indlandshernum.
XI.
Saga Indlands fyrr á tímum
hefir ekki verið rannsökuð til
nokkurrar hlítar. Miklar sögu-
legar menjar eru í landinu og
hafa söguritararnir fræðst mik-
ið af þeim, en Indverjar hafa
ekki lagt mikla stund á sagna-
ritun. Hinsvegar skrifuðu grisk-
ir sagnaritarar í fornöld mikið
um Indland og síðar Móham-
niedanskir sagnaritarar. Talið
er, að fyrstu íbúar Indlands hafi
verið af dravidiska kynstofnin-
um, en þjóðflokkar af ariskum
stofni réðust inn í landið og
Unnu sigur á Dravidum. Var það
niörgum öldum fyrir Krists
burð. Aríarnir lögðu undir sig
mikla landsliluta og menning
þeirra breiddist út austur um
landið og langt suður á bóginn,
en ekki stofnuðu þeir eina, stóra
samfelda ríkislieild, heldur
mörg smáríki, sem stundum
urðu að lúta i lægra haldi
fyrir erlendum sigurvegurum,
t. d. Alexander mikla 327—26 f.
Kr. b. Stór ríki voru þó stofnuð
síðar, en þau fóru aftur í mola.
í byrjun 7. aldar stofnaði Har-
sha stórt ríki, en það fór í mola,
er hann lést 648. Um þessar
mundir hófust flutningar Mó-
Jiammeðstrúarmanna til Ind-
lands, fyrst í smáum stil, en
jukust jafnt og þétt, og voru
orðnir miklir um árið 1000.
Stofnuðu þeir stórt móhamme-
danskt ríki og var Dehli höfuð-
staður þess, en einnig það mol-
aðist í fjölda smáríkja. Árið
1398 óð Tyrkinn Timur eða Ta-
merlan inn í Indland. Einn af
niðjum hans, Baber (1526—30),
stofnaði mikið ríki í Norður-
Indlandi (Mogul-ríkið), sem á
timum Akbars (1556—1605)
varð mesta ríki, sem nokk-
urn tíma hefir verið í Indlandi,
en eftir fráfall Aurangzib (1658
—1707) fór það í mola. Smá-
ríkin áttu síðan i ófriði hvert
við annað og erlendir þjóðhöfð-
ingjar óðu inn í landið, t. d.
Nadir sha Persakonungur, sem
1739 tók Dehli herskildi. Og um
þessar mundir voru Evrópu-
menn farnir að koma til sög-
unnar þar eystra. — Vasco da
Gama fór sjóleiðis til Kalikut
1498 og fóru Portúgalsmenn þá
að flytjast þangað, en þeir urðu
að víkja fyrir Hollendingum, en
Hollendingar fyrir Frökkum og
Englendingum, sem lengi hörð-
ust um yfirráðin yfir Indlandi