Rökkur - 01.08.1930, Page 24

Rökkur - 01.08.1930, Page 24
70 R Ö K K U R um voru 7 fluttir á íslensku, 3 á norsku og 31 á ensku. Til þess aS gefa mönnum nánari hugmynd um þessa starfsemi Becks skal nokkurum orSum fariS um fyrirlestra þessa, til vi'öbótar því, sem þegar hefir veriö tekiö fram. Þ. 17. okt. flutti hann fyr- irlestur, „ísland —- land, þjóS og menning", viö háskólann í Grand Forks og endurtók hann síöar samkvæmt beiöni á ýmsum stöö- um. —■ Þann 22. okt. flutti hann erindi um „hiö þúsund ára gamla Alþingi íslands" í félagi kennara í hagfræði og þjóðfélagsfræði viö háskólann í Grand Forks, en síðar var erindi þetta endurtekið í Kotary Club í sömu borg. Þ. 4. des. flutti hann erindi um „heimilislíf og jólasiði á íslandi" í félagi kvenna þeirra, sem nám stunda í húsmæðradeild háskólans í Grand Forks, og þ. 10. des. erindi um „hlutdeild Islands í heimsbók- mentunum" í félagi tungumála- kennara við sama háskóla. Þ. 31. des. flutti hann erindi um íslenska menningu í félagi stúdenta, sem framhaldsnám stunda við háskól- ann. Þ. 14. jan. flutti hann erindi um Sæmundar-Eddu, þ. 14. febr. um lífsspeki norrænna manna, bæði í Grand Forks. Þ. 15. febr. flutti hann þorrablóts-erindi á Mountain, N. D„ sem hann kallaði „þúsund ára sólhvörf“ og rakti þar sögu Alþingis og íslensks sjálfstæðis. Þ. 24. apríl flutti hann erindi, sem hann kallaði „Vor- menn“, á sumarmálasamkomu að Garðar, N. D. og tók dæmin úr endurreisnarsögu íslands. Eru ís- lendingar fjölmennir á þessum slóðum. Seinni ræðuna endurtók hann samkvæmt beiði á sumar- málasamkomu \ Glenboro, Man., þ. 26. apríl. Ræður Becks á ensku hafa vakið mikla athygli. Hefi eg t. d. séð þeirra lofsamlega minnst í rit- stjórnargrein í blaðinu „Grand Foi-ks Herald", en það mun vera stærsta og útbreiddasta blað í North Dakota. Þá mun eg að nokkuru geta rit- starfa Becks. í ársfjórðungsritinu „The Quarterly Journal of the University of North Dakota“ birt- ist ítarleg ritgerð eftir hann um Alþingishátíðina. í febr.hefti tímaritsins „Scandin- avian Studies and Notes“ var prentuð ritgerð eftir hann um hina íslensku þýðingu á „Tilraun um manninn". Ritgerð Becks um Al- þingishátíðina hefir verið þýdd á sænsku og birt í blaðinu „Svenska Pressan“, senr út er gefið í Spok- ane, Wash. — Grein eftir Beck um norðurlandamáladeildina við North Dakota háskólann var birt í tímaritinu „Alumni Magazine", sem gefið er út við háskólann. —

x

Rökkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.