Rökkur - 01.08.1930, Síða 43

Rökkur - 01.08.1930, Síða 43
R Ö K K U R 89 þetta sama hefir mér líka veriö að detta í hug; sé það yðar vilji, þá látum okkur leggja af staÖ.“ ,Já,“ segir djákninn, „en þér, herra prestur, eruö mér fremri, verið á undan, eg kem á eftir.“ Presturinn fór þá á undan og steig upp í predikunarstólinn, en meistaraþjófurinn opnaöi þegar pokann. Presturinn skreiö inn í hann á undan, en djákninn á eftir. Meistaraþjófurinn reyrði þegar aö bragöi fyrir opiö, þreif svo í pok- ann miöjan og dró hann ofan stól- tröppurnar. Og þegar höfuð heimskingjanna beggja rákust í tröppurnar, kallaöi hann: „Nú er yfir fjöll að fara.“ Með líkum hætti dró hann þá um þorpið og þegar þeir fóru þar sem pollar voru, kallaði hann: „Nú erum viö aö fara gegnum vætuskýin.“ Og þegar hann loks- ins dró þá upp eftir hallartröpp- unum, kallaöi hann: „Nú erum við á tröppum himnaríkis og bráð- um komumst viö inn í forgarðinn.“ Þegar hann var kominn alla leið, þá ýtti hann pokanum inn í dúfna- búsið, og þegar dúfurnar tóku að flögra, sagði hann: „Heyrið þið hvernig englarnir fagna og slá vængjunum?“ Því næst skaut hann íyrir lok- unni og þaut burt. Morguninn eftir fór hann á fund greifans og sagði honum, að hann hefði einnig unnið þriðju þrautina og náð prestinum ásamt djáknan- um úr kirkjunni. „Hvar hefirðu látið þá?“ spurði höfðinginn. „Þeir liggja í poka í dúfnahús- inu og ímynda sér, að þeir séu í himnaríki.“ Greifinn fór þangað upp sjálfur og rak sig úr öllum skugga um það, að meistaraþjófurinn sagði ekki annað en hvað satt ,var. Þeg- ar hann hafði losað prestinn og djáknann úr pokaprísundinni, tók hann þannig til orða: „Þú ert erkiþjófur og hefir bor- ið sigur úr býtum. í þetta skifti sieppur þú með heilli há, en sjáðu svo um, að þú verðir brott úr landi mínu, því verðirðu á þeim slóðum aftur fundinn, þá máttu eiga það víst, að þú verður festur á gálga.“ Erkiþjófurinn kvaddi þá for- eldra sína og fór aftur út í víða veröld og hefir ekki spurst til hans síðan. Stgr. Th. þýddi. íbúatala Ástralíu. Þ. 31. mars þ. á. var íbúatala Ástraliu 6.429.801. Aukning frá 31. mars 1929 var 733.801 og fluttust þó ekki nema 4.293 menn til lands- ins á þessum tíma. í Ástralíu eru karlar 3.283.955 talsins, en kon- ur 3.145.846.

x

Rökkur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.