Rökkur - 01.08.1930, Side 51
R O K Ií U R
97
Bókasöfn í skipum.
Eftir Sigurgeir Friðriksson.
Alþýðubókasafn Reykjavíkur
var stofnað fyrir peninga, sem
fengust fyrir botnvörpuskip, er
seld; voru Frökkum á stríðsár-
unum. Vitanlega voru all-marg-
ir menn sviftir atvinnu með sölu
skipanna, og þá fyrst og fremst
sjómenn, er unnið höfðu á skip-
unum. Um það þýddi ekki að
sakast. Ekki veit sá, er þetta
ritar, hvað um það kann að hafa
verið hugsað, talað og jafnvel
skrifað, en sagt er að þáverandi
ræðismaður Frakka — André
Courmont -—- hafi komið inn í
skipakaupasamningana ákvæði
Um, að einhver lítill hluti and-
virðisins gengi ekki til seljend-
anna, heldur til einhverra þeirra
fyrirtækja, er almenningur
hefði bein not af. Ekki veit sá,
heldur, er þetta ritar, hve há
Upphæðin var. Meiri hlutinn
uiun hafa gengið til slysatrygg-
ingarsjóðs sjómanna og verka-
nianna og Sjúkrasamlags Reyk-
javíkur. Einhver góður maður
—• það virðist nú vera gleymt,
hver hann var —, lagði til, að
20 þús. kr. af upphæðinni væri
lagðar í sérstakan sjóð og ákveð-
ið að stofna fyrir hann bókasafn
til afnota fyrir almenning i
Reykjavík, og var það-samþykt
í bæjarstjórn. Fyrir þetta fé var
Alþýðubókasafn Reykjavíkur
stofnað árið 1923.
Nokkru eftir stofnun bóka-
safnsins, kom einn af stjórn-
endunum (Héðinn Valdimars-
son) fram með tillögu um, að
safnið setti smá bókasöfn i botn-
vörpuskipin og var samþykt að
gera tilraun um það. Slíka til-
raun, að setja bækur í fiskiskip,
var ekki kunnugt að nokkurt
bókasafn hefði gert. Vöknuðu
þá ýmsar spurningar, sem ekki
var auðvelt að svara að óreyndu.
Vitanlega höfðu sjómenn fulla
þörf bóka, ef þeir gátu notað
sér þær og vildu, en: Höfðu sjó-
menn á fiskiskipum nokkurn
tíma til að lesa bækur? Mundu
þeir, mitt í sæförum og harð-
ræðum, hirða um lestur bóka,
þótt tími væri til? Ef svo færi,
gat þá ekki lesturinn dregið at-
hygli þeirra frá vinnunni meira
en holt væri? Mundu ekki sjó-
menn í svaðilförum lesa þær
hækur einar, sem ekkert gagn
væri að lesa? Mundi vera unt
að halda nokkra bókasafns-
reglu í botnvörpuskipi ? Mundu
ekki bækurnar eyðileggjast og
hverfa strax í fyrsta skipinu?
Mundi nokkur fást til að taka
á sig áðal-ábyrgð á bókunum
o. s, frv.
Þetta var tilraun, sem eitt-
7