Rökkur - 01.08.1930, Page 67
R Ö K K U R
„Ennfremur hefir Nýjum kvöldvökum veriö send þvdd smásaga, sem
ohætt er að mæla meS við lesendur. Er hún eftir æfintýraskáldið heims-
fræga, sem mestar ástsældir hcfir lilotið allra höfunda, H. C. Anderseu,
■°g er það ærið nog til að mæla með henni. Hún heitir á íslensku Saga
frá Sandhólahygðinni. Þýðingin er höf. samhoðin, því hún er eftir Stein-
grím Thorsteinson.
N. Kvöldvökur.
Saga frá Sandhólabygðinni er nýútkomin, saga i æfintýrabúningi eftir
H. C. Andersen, í ísl. þýð. eftir Stgr. Th. Meira þarf ekki að scgja til að
roenn sjái, að snillingshendur hafa um fjallað.
Lögrétta.
Ummæli um söniu sögu: í raun og veru eru nöfn höf. og þýð. hin bestu
meðmæli, sem hægt er að gefa bókinni. En því má hæta við, að hún hef-
ir mörg hin bestu einkenni béggja þessara skálda. .Yfir henni hvilir þýð-
ur raunablær, en þótt hún sé raunasaga lýsir góðleiki höfundarins sér svo
vel i henni að maður er glaður við lesturinn. Þess mlá einnig geta, að það
hefir naumast verið nein tilviljun, að Steingrímur Thorsteinson valdi sér
það verkefni að túlka H. C. Andersen fyrir löndum sínum, þar hefir þa'ð
■sjálfsagt verið náinn skyldleiki sálnanna sem mestu réði.
Dagur.
Ummæli um Alpaskyttuna: Nöfn höf. og þýðanda munu bókamönnum
hæg trygging fyrir því, að vel sé til efnisins vandað.
Sagan gerist í Sviss og' lýsir einkar vel hinni mikilfenglegu náttúrufeg-
Urð svissnesku Alpanna, veðrabrigðum þar og áhættu hinnar hugdjöríu
Alpaskvttu, sem býður jómfrúnni og „Sundla“ birginn. Inn í þetta er ofið
hugljúfu ástaræfintýri þeirra Rúða og Rabettu. Alpaskyttan er bók, sem
allir, jafnt ungir sem gamlir, eiga að lesa sér til ánægju. Jafnframt því að
Vera hugnæmt æfintýri felur hún í sér djúpa lífsspeki.
Dagur.
Þýðingum Steingríms er óþarft að lýsa. Öllum íslendingum, sem læsír
«ru á bóknréntir og hafá mætur, á fögru máli, er ánægja af lestri þeirra.
Þessi saga er af ungri Alpaskyttu, sem lætur sér fátt fyrir brjósti brenna
og hugsar meir til frama en langlífis.
Alþýðublaöið.