Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1978, Page 12
10
fötunum, flýttu þau sér því næst að komast yfir sandhæðirnar, sem
voru tilsýndar eins og risavaxnar sandbylgjur og var því líkast, að
þær hefðu stöðvast skyndilega á rás sinni og ekki komist lengra.
Sandurinn var hvítleitur en sandreyrinn og hinir hvössu toppar
melgrassins gerðu samt nokkra litbreytingu, því það skar af við
hvítan sandinn. Einhverjir nágrannar bættust nú skyndilega við og
hjálpuðust þau nú öll að því að setja bátana hærra upp á sandinn;
veður tók að hvessa og vindurinn var sárkaldur, og þegar þau
gengu heimleiðis yfir sandhæðirnar, þá stóð sandrokið blandið
hrufóttum smásteinum beint í andlitið á þeim. öldurnar skautuðu
hvítu, en stormurinn kipti af þeim skautinu og þeysti langar leiðir
í freyðandi strokum.
Nú var komið kvöld og heyrðist sívaxandi vindhljóð, það ýldi og
þaut; og það var eins og í loftinu væru örvæntingarfullir andar og
fyltu það með kveini, og lét það enda hærra í eyrum en brimgnýr-
inn, þó að fiskimannshúsið stæði svo nálægt sjónum. Sandhríðin
buldi á gluggarúðunum og stundum rak á ringi eins og húsið ætlaði
um koll að keyra. Æði dimt var yfir, en í vændum, að tungl kæmi
upp um miðnætti.
Það birti til í lofti, en voðastormur geysaði yfir sjóinn djúpa og
dimma. Fiskimennirnir voru háttaðir fyrir löngu, en ekki var við-
lit að geta sofnað dúr í því óskapaveðri; þá var barið á glugga og
er lokið var upp dyrum heyrðist sagt fyrir utan: „Stórt skip er
strandað og situr fast á ysta rifinu!“
Óðara og í einu hendingskasti voru fiskimenn þotnir upp úr rúm-
um sinum og alklæddir.
Tunglið var komið í ljós og fullbjart til að sjá frá sér, ef nokkur
kostur hefði verið að hafa augun opin, en það var lítt mögulegt
vegna sandroksins, hvassviðrið var svo mikið, að ekki var stætt
og var með naumindum, að menn gæti skotist milli bylja yfir sand-
hæðirnar og flaug þar eins og fiður væri sölt froðan og löðrið úr
brimboðunum, sem veltust beljandi inn að ströndinni. Það þurfti
þaulvön augu til að geta fundið á augabragði skipið þar úti fyrir;
það var afbragðs fallegt skip tvímastrað; núna einmitt lyftist það
yfir rifið svo sem fjögur hundruð faðma frá vanalegu fjörumáli;
það var að reka inn að landi og steytti nú á næsta rifi og stóð þar