Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1978, Side 19

Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1978, Side 19
17 Gamli maðurinn, sem ók vagninum, kunni líka frá því að segja, að í tíð föður hans sæla, hefðu hestarnir orðið marga hildi að heyja við varga þessa, sem nú væru upprættir, og einu sinni hefði það verið, er hann kom út hingað snemma morguns, að þá stóð einn af hestunum og tróð undir sér úlf, sem hann hafði drepið, en hold alt var nagað af fótum hestsins. Vel sóttist þeim leiðin yfir hnökrótta heiðina og djúpan sand- inn, og helst til fljótt, að þeim fanst. Þau stöðvuðu við sorgarhúsið og var fult af ókunnugum úti og inni, og stóð þar vagn við vagn; hross og naut voru þar að bíta, en graslendið var magurt. Að baka til við bóndagarðinn gnæfðu stórir sandhólar í mikilli víðáttu eins og heima hjá honum út við Vesturhafið; hvernig gátu þeir verið komnir þangað, svo sem þrem mílum svaraði, upp í land, og það alt að einu háir og mikilfenglegir eins og hinir á sjávarströndinni. Það stóð svo á því, að vindurinn hafði lyft þeim og flutt þá úr stað; þeir áttu líka sína sögu. Sálmar voru sungnir og sömuleiðis úthelt tárum, og voru það einhver gömul hjón, sem grétu, að öðru leyti fanst Jörgen það ein- staklega ánægjulegt; kappnóg var af mat og drykk og bráðfeitur áll á borði; með honum hlýðir að taka sér brennivínsstaup. Það er til þess að kæfa álinn, eftir kenningu álabóndans, enda var það líka óspart gert. Jörgen var á sífeldum erli, bæði úti og inni, og á þriðja degi fanst honum sem hann væri farinn að kunna svo vel við sig, og það engu síður en í fiskimannshúsinu og í Sandhólabygðinni, þar sem hann hafði lifað umliðin æfiárin. Hérna á heiðinni var gæða- rneira. Það var nú ekki munur; hér var alt þakið í lyngblómum og krökt af krækiberjum og bláberjum, stórum og sætum, sem uxu í stórflekkjum. Það mátti merja þau út með fætinum, svo að lyngið flaut í rauðum leginum. Hérna var einn fornmannahaugurinn og þarna var annar. Reykj- arstólpar hófust upp í loftið og var sagt, að það væri heiðarbruni; það var fögur sjón og lýsti langt fram eftir kvöldinu. Nú kom fjórði dagurinn og var þá erfiveislan á enda. Þau áttu að fara heim frá land-sandhólunum til strand-sandhólanna: „Okkar sandhólar eru þó hinir réttu“, sagði fóstrinn, „þessir hérna eru einskis megnandi". 2
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Rökkur : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/1772

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.