Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1978, Síða 37

Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1978, Síða 37
35 framt járnsmiður og smásali. Var þetta til bráðabirgða, þangað til læknirinn frá Hjörring yrði sóttur. Jörgen var fársjúkur; hann hafði eitthvað bilast á heilanum og lá með æðisórum, organdi og grenjandi, þangað til á þriðja degi seig á hann eins og eitthvert doðamók; læknirinn sagði, að líf hans héngi aðeins á veikum þræði, og það væri það besta, sem menn gæti óskað og beðið honum til handa, að sá þráður mætti slitna. „Biðjum til drottins, að hann fái lausnina; hann verður aldrei heill maður!“ En lífið lét hann ekki lausan, þráðurinn vildi ekki slitna, en minnið slitnaði; öll sálarkraftanna bönd voru sundur skorin; það sem hræðilegast var, að lifandi líkami varð eftir, að líkami, sem átti fyrir sér að hressast, skyldi ganga aftur. Jörgen varð kyrr i húsum Brönne kaupmanns. „Hann hefir fengið dauðameinið sitt fyrir að bjarga barninu okkar á land“, sagði gamli maðurinn, „nú er hann okkar sonur“. Jörgen var kallaður fábjáni, en það var ekki rjettnefni; hann var eins og hljóðfæri, sem strengirnir eru slaknaðir á og orðnir hljóðlausir. — Það gat aðeins komið fyrir allra snöggvast í bili oða fáeinar mínútur, að þeir fengju spennukraftinn og þá gátu þeir hljómað frá sér — gömul sönglög hljómuðu, einstakir taktar — það runnu upp myndir og urðu að þoku — hann sat aftur star- andi og hugsunarlaus; það skulum við ætla, að þjáningarlaust hafi honum verið; augun hans svörtu mistu þá ljóma sinn, þau urðu áþekk svörtu gleri, sem andað er á. „Vesalings fábjáninn hann Jörgen“, sögðu menn. Það hafði verið hann, sem hafði verið borinn undir hjarta móður sinnar í þeim vændum, að hann fengi að njóta þess jarðlífs, sem átti að verða svo auðugt og sæluríkt að það væri ofmetnaður og hræðilegur hroki, þó ekki væri nema að óska sér lífs eftir þetta, hvað þá heldur að trúa á það. öllum hinum miklu sálargáfum hafði verið á glæ kastað. 1 hans hluta höfðu að eins fallið mæðudagar, sárar sorgir og vonbrigði. Hann hafði verið prýði-laukur, sem upp var kipt úr hans ríka jarðvegi og burt kastað í sandinn til að rotna þar niður; átti þetta, sem skapað var í guðs mynd, ekki betra skilið? Mundi þetta þá alt saman vera tómur tilviljanaleikur? Nei, guð alkær-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Rökkur : nýr flokkur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/1772

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.