Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1978, Side 74

Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1978, Side 74
72 unni hún Huldubrandi og treysti þó sakleysi sínu, enda höfðu þau aldrei játast ástum sín í millum; hún átti ekki heldur í annað hús að venda. Hafði fiskimaðurinn gamli fengið boð frá riddaranum um það, að Bertalda væri hjá honum, og skrifaði hann honum aptur næsta ólæsilegt bréf; það var svolátandi: „Eg er orðinn ekkjumaður, því kona mín elskuleg er dáin. Þykir mér raunar tómlegt að sitja alltaf aleinn í kofa mínum, en þó vil eg heldur að Bertalda verði kyrr hjá yður. Bara að hún ekki geri Úndínu minni neitt til meins, því þá skal mín bölvun bitna á henni“. Það var einhvern dag, er Huldubrandur var riðinn út, að Úndína kallaði saman hjú sín; lét hún sækja stóra hellu og skipaði þeim að byrgja brunninn, sem var í miðjum hallargarðinum. Færðust þau undan og sögðu að þá yrði ærið lángur vegur að sækja vatn fram í dalinn. Þá brosti Úndína með raunasvip og mælti: „Mig tekur sárt til ykkar, börn mín! en þó eg ætti sjálf að bera vatns- föturnar heim, þá verður að byrgja brunninn, því ekki tjáir annað“. Urðu hjúin þá fegin, að þau gátu gert húsmóður sinni svo mikið að skapi, og voru allar hendur á lopti til að velta hellunni; barst hún einsog sjálfkrafa milli þeirra, en rétt sem hún átti að síga ofan að brunninum, kemur Bertalda hlaupandi og býður þeim að hætta; sagðist hvergi fá annað eins vatn og úr þessum brunni og væri það sér til mestu hörundsbótar. En Úndína mótmælti henni og fór sínu fram. „Sjáið“, sagði Bertalda harmsfull, „sjáið hversu vatnið tárhreint ýfist og sortnar! því gremst að það verður byrgt fyrir blessaðri sólinni og andlitsfegurð mannanna, sem það var skapað til að spegla“. Enda var einsog ólga hlypi í vatnið niðri í brunninum og krakkaði undir; herti Úndína þá á hjúunum að hleypa hellunni fyrir, en þau höfðu gaman af því í einu að hlýða Úndínu og þrjózkast við Bertöldu. Þegar hellan var lögð yfir brunninn, laut Úndína ofan að henni hugsandi og fór um hana með fingrum sínum; það hefir tekið vel á, sem hún hafði í hendi sér, því þegar hún var farin og hitt fólkið leit á helluna, sáust á henni kynlegir stafir, sem ekki höfðu verið fyrr. Þegar riddarinn var kominn heim um kvöldið, kvartaði Bertalda grátandi undan háttalagi Úndínu. Hann leit til hennar með þykkju svip, en hún sagði með stillingu: „Eiginmaður minn og herra dæmir engan af þjónum sínum, svo að hann ekki heyri fyrst málstað hans,
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Rökkur : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/1772

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.