Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1978, Side 101

Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1978, Side 101
99 Svo sem að líkum lætur var það elskhuginn, sem fyrst lét þessar skoðanir í ljós, og hin ásthneigða Maria Gavrilovna var honum af hjarta samþykk. Nú gekk vetur í garð og þau gátu ekki hitzt úti í skóginum, en þau skrifuðust á tíðar en nokkru sinni. Pilturinn, Wladimir Nikol- aievitch, tjáði henni ást sína með fögrum orðum í hverju bréfi, og lagði að henni að gera sem hann bað, en hann hafði nú fengið þá flugu í kollinn, að hyggilegast væri fyrir þau að flýja með leynd, ganga í heilagt hjónaband, halda svo kyrru fyrir á einhverjum af- viknum stað um tíma, og koma svo heim og biðja foreldra Mariu fyrirgefningar. Mundu þau vafalaust hrífast að lokum af áræði þeirra og tryggð og vikna, vegna þess hve innilega þau iðruðust og taka þeim opnum örmum og segja: „Komið í faðm okkar, börnin góð!“ Maria Gavrilovna hugsaði um þetta fram og aftur lengi, lengi, og hún hafnaði hverri flóttatillögunni á fætur annari. En loks féllst hún á ráðagerð þessa: Kvöldið fyrir flóttann átti hún að kvarta um lasleika, hafna kvöld- verði og fara snemma að hátta vegna óþolandi höfuðverks. Þerna hennar átti að vera meðhjálpari þeirra. Þær áttu að fara út í garð- inn bakdyramegin, en handan við garðvegginn skyldi sleði hafður til taks. Maria og þernan ætluðu svo að aka til þorpskirkjunnar í Jadrino, sem er um það fimm mílur vegar frá Nenaradova. Og í Jadrino yrði Wladimir að sjálfsögðu að bíða komu þeirra. Mariu Gavrilovnu varð ekki svefnsamt daginn áður. Hún tók fatnað þann, sem hún ætlaði að hafa meðferðis, og gekk frá honum og skrifaði tvö bréf. Annað var til vinstúlku hennar, langt og ýtar- legt, en vinstúlka þessi var á líku reki og hún, viðkvæm og ást- hneigð. Hitt bréfið var til foreldra Mariu. Hún kvaddi þau mjög innilega, afsakaði framferði sitt með því að segja, að ofurvald ást- arinnar réði gerðum sínum, og fullvissaði þau að lokum um, að það yrði hamingjuríkasta stund lífs hennar, er hún gæti komið heim aftur, varpað sér á kné fyrir framan þau og beðið þau fyrir- gefningar. Þegar hún hafði innsiglað bæði bréfin, með innsigli, sem á voru tvö hjörtu með viðeigandi áletrun, hallaði hún sér út af. Það var komið undir morgun. Hún mókti annað veifið — var alltaf að
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Rökkur : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/1772

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.