Bændablaðið - 01.12.2022, Blaðsíða 26

Bændablaðið - 01.12.2022, Blaðsíða 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 1. desember 2022 LÍF&STARF Að sýna hross yfir 9,00 fyrir hæfileika er draumur flestra atvinnumanna og sýnenda kynbótahrossa. Hans Þór Hilmarsson upplifði þann draum á Landsmótinu í sumar þegar hann sýndi Sindra frá Hjarðartúni í 9,38 fyrir hæfileika, sem er jafnframt hæsta hæfileikaeinkunn sem gefin hefur verið íslenskum hesti í kynbótadómi frá upphafi. „Sindri er með einstakt geðslag og frábærar gangtegundir. Það sem er sérstakt við hann er kannski fyrst og fremst þetta fjaðurmagn og léttleiki sem hann hefur á tölti og brokki en samt með þetta rými sem hann býr yfir. Það er kannski það sem skilur hann frá mörgum öðrum góðum hestum sem maður hefur verið með,“ segir Hans en ef skoðaðar eru umsagnir Sindra fyrir eiginleikana í hæfileikadómi má sjá orðunum léttstígt, ferðmikið, takthreint og mýkt bregða ansi oft fyrir. Úthugsuð sýning Þegar hross sýna svo mikil afköst þarf að passa vel upp á þau og varast að fara ekki fram úr þeim. Að baki svona sýningum eru ófáar þjálfunarstundir og mikilvægt er að hesturinn sé líkamlega og andlega tilbúinn í verkefni sem þetta. „Í þessu tilviki var ég búinn að setja upp og taka nokkrar æfingar þar sem við fórum yfir hvernig ég ætlaði að stilla sýningunni upp. Hvaða gangtegundir hjálpuðu okkur yfir í næstu gangtegundir og alls konar þannig pælingar. Ég t.d. ákvað að byrja á töltinu og klára það af, bæði upp á fyrstu hughrif hjá dómurunum og svo líka að það er þægilegt að stilla hann inn á töltið. Ég var líka búinn að ákveða að taka skeiðið á eftir brokki, þar sem hann fær að vera lægri og koma með bakið upp og ég vissi líka að ég vildi koma fetinu inn fyrir skeiðið til að hann fengi aðeins andrými.“ Vallaraðstæður breyttust Allar þessar æfingar áttu eftir að skila þeim Hansa og Sindra stóru tölunum. Fyrir sýninguna á Landsmótinu tóku þeir félagar eina æfingu á vellinum og ákvað Hansi að ríða honum með léttari hlífar en hann hafði gert áður þar sem aðstæður á vellinum voru þannig. Daginn sem hann sýnir svo Sindra höfðu aðstæður þó breyst, það hafði mikið rignt og brautin var orðin mýkri. „Það var ekki rétt hjá mér að ríða honum á þessum hlífum. Ég fann það strax í fyrstu ferðinni þegar ég kom ríðandi inn á á tölti að hann var ekki eins góður og hann gæti verið. Ég vissi því að ég ætti inni fyrir yfirlitið og ætti auðveldlega að geta sótt hálfan punkt á tölti, en fyrir yfirlitið var hann með 9,0 fyrir tölt.“ Hans og Sindri bættu þó heldur betur í á yfirliti. Þeir sóttu þennan hálfa sem Hansa fannst vanta á töltið og hækkuðu einkunnirnar fyrir skeið og fegurð í reið. Þeir enduðu með þrjár tíur í farteskinu; 10 fyrir skeið, 10 fyrir samstarfsvilja og 10 fyrir brokk en þeir höfðu fengið þær einkunnir fyrir yfirlit. Vildi sækja hálfan punkt „Markmiðið á yfirlitinu var að sækja þennan hálfa punkt á tölti sem ég vissi að við áttum. Mig langaði síðan að reyna við skeið og fegurð í reið. Það var uppleggið á yfirlitinu. Ég átti ekkert endilega von á því að allar þessar dýrmætu einkunnir ættu eftir að falla. Ég átti alveg von og markmiðið var að komast yfir 9,0 fyrir hæfileika en ég átti ekki von á svona tölu. Maður er nú ekki alveg það ruglaður að gera sér vonir um að ríða í 9,30 og eitthvað,“ segir Hansi. Eftir sýninguna á yfirlitinu tók við smá bið eftir að lesnar voru upp hækkanir sem höfðu átt sér stað í hollinu þeirra. Það mátti skynja spennuþrungið andrúmsloftið en áhorfendabrekkan var á iði og þegar lesnar voru upp hækkanirnar brutust út mikil fagnaðarlæti enda var þetta sannkölluðu gæsahúðarsýning. Stefna á Landsmót 2024 „Mér leið mjög vel allan tímann sem ég sýndi hestinn. Ég hafði á tilfinningunni þegar ég reið úr braut eftir yfirlitið að eitthvað væri að fara að gerast. Andrúmsloftið eftir síðustu ferðina var bara þannig. Það helltist yfir mann hálfgerð geðshræring þegar tölurnar voru lesnar upp. Rugl augnablik sem maður er þakklátur að fá að upplifa.“ Hansi og Sindri stefna nú á keppnisbrautina og ætla sér að mæta firnasterkir til leiks í A flokkinn á Landsmóti hestamanna 2024. Dómur Sindra frá Hjarðartúni Sköpulag Hæfileikar Höfuð 8,5 Vel borin eyru - Skarpt/þurrt - Svipgott Tölt 9,5 Mjúkt - Léttstígt - Há fótlyfta - Góð skreflengd - Ferðmikið - Framhátt - Takthreint Háls/herðar/bógar 8 Meðal hálssetning - Langur - Klipin kverk - Góð yfirlína Brokk 10 Fjaðrandi - Léttstígt - Há fótlyfta - Skrefmikið - Svifmikið - Ferðmikið - Öruggt - Takthreint Bak og lend 8,5 Jöfn lend Skeið 10 Ferðmikið - Sniðgott - Öruggt - Taktgott - Jafnvægisgott Samræmi 8,5 Léttbyggt - Hlutfallarétt Greitt stökk 8,5 Ferðmikið Fótagerð 8 Þurrir fætur Hægt stökk 8 Réttleiki 8 Samstarfsvilji 10 Mikil framhugsun - Mikil þjálni - Yfirvegun - Vakandi - Samstarfsfús Hófar 8,5 Þykkir hælar - Vel lagaðir Fegurð í reið 9,5 Mikill fótaburður - Léttleiki - Framhátt - Mýkt Prúðleiki 8 Fet 7,5 Sköpulag 8,28 Hæfileikar 9,38 Hægt tölt 9 Há fótlyfta - Afar mjúkt Hæfileikar án skeiðs 9,26 Aðaleinkunn án skeiðs 8,92 Hulda Finnsdóttir hulda@bondi.is Hestamennska: Upplifði drauminn Hans Þór Hilmarsson upplifði þann draum á Landsmótinu í sumar þegar hann sýndi Sindra frá Hjarðartúni að fá 9,38 fyrir hæfileika, sem er jafnframt hæsta hæfileikaeinkunn sem gefin hefur verið íslenskum hesti í kynbótadómi frá upphafi. Mynd / Aðsend Aðaleikunn 8,99 Hans Þór tekur við viðurkenningu á Hrossarækt 2022. Með honum eru Sveinn Steinarsson, formaður deildar hrossabænda, og Heiðrún Ósk Eymundsdóttir, varaformaður. Mynd /GB1 bondi@byko.is Stöðluð stálgrindarhús Stærðir: 80m², 150m², 250m² og 350m² Stálgrindin er heitgalvaniseruð og er sérsmíðuð fyrir íslenskar aðstæður. Húsin standast mestu snjó-og vindálagskröfur sem gerðar eru í byggð á Íslandi og henta því sem geymslu-og vélaskemmur í öllum landshlutum. Húsin eru klædd 60mm PIR yleiningum á veggi og 80/125mm yleiningum á þök. Mögulegt er að velja liti á klæðningarnar. Húsunum fylgja allar nauðsynlegar teikningar til að fá byggingarleyfi ásamt teikningum af grunni og vinnuteikningum. Einnig fylgir keyrsluhurð, einn gluggi og tvær gönguhurðir. Reyklosunargluggar eru á þaki sem hleypa inn birtu. á hagstæðu verði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.