Bændablaðið - 01.12.2022, Blaðsíða 66
66 Bændablaðið | Fimmtudagur 1. desember 2022
UMHVERFISMÁL – TÍSKA
FUGLINN: HAFÖRN
Haförn, ótvíræður konungur íslenskra fugla. Stærsti og jafnframt sjaldgæfasti ránfugl landsins með yfir 2 metra vænghaf. Vængirnir eru breiðir, ferhyrndir og eru ystu flugfjaðrirnar vel aðskildar. Þetta gerir
þá auðgreinda á flugi, jafnvel úr mikilli fjarlægð þar sem þeir svífa þöndum vængjum í leit að bráð. Ernir verða ekki kynþroska fyrr en 4-5 ára gamlir og parast fyrir lífstíð. Falli annar makinn frá getur það tekið
mörg ár að finna annan maka. Varp og ungatími er nokkuð seinlegt ferli hjá erninum. Varpið hefst í apríl og verpa þeir oftast einu eggi en stundum tveimur eða jafnvel þremur. Oft kemst þó ekki nema 1 ungi á
legg og hjá sumum fuglum misferst varpið jafnvel alveg. Ungarnir eru 35-40 daga að klekjast úr. Fyrstu 5-6 vikurnar eru ungarnir alveg háðir því að foreldrarnir mati þá. Þeir verða síðan ekki fleygir fyrr en um 10
vikna gamlir. Íslenski haförninn var nánast útdauður um 1960 en þá voru ekki nema 20 pör eftir þrátt fyrir að hafa verið alfriðaður um 1913. Síðan þá hefur stofninn vaxið en vegna þess hversu seint þeir verða
kynþroska og fáir ungar komast á legg ár hvert er vöxturinn mjög hægur. Nú í dag er stofninn um 80-90 pör og á fjórða hundrað fuglar en stór hluti þeirra eru ungfuglar. Mynd og texti / Óskar Andri Víðisson
Það er nú þannig þegar líður að
jólunum að léttur spenningur
fer um mannskapinn. Finna
þarf út hvað eigi nú að vera í
matinn svo henti viðstöddum,
gjafaundirbúningur í algleymingi
auk stóru spurningarinnar hjá
kvenpeningnum, hvort eigi að
spandera í jóladress.
Sumar taka þann pól í hæðina
að eiga kjól sem einungis er
brúkaður um jólin. Í slíkum tilvikum
eldist flíkin auðvitað misvel, enda
á það sem þótti við hæfi árið 1983
ef til vill ekki við fjörutíu árum
síðar. Þá sérstaklega ekki ef sá er
henni klæðist hefur breyst mikið í
vaxtarlagi. En hvað er þá best að
hafa í huga ef fólk vill halda að sér
höndum í jólakjólatryllingnum og
kýs að eiga einungis einn kjól til
hátíðarbrigða?
A-línulaga kjóllinn
Jú – þarna kemur klassíkin inn í.
Fyrst skulum við fara yfir það sem
kallað er A-línulagað kjólasnið. Þá
þannig að breiddin að neðanverðu
er heldur meiri en að ofan og fer, ef
með sanni skal segja, öllu vaxtarlagi
allsæmilega – auk þess sem sniðið
eldist allvel. A.m.k. það seinna
sem fjallað er um hér síðar
í greininni. Sagan á bak
við A-línulagaðan kjól
kemur frá miðri síðustu
öld er meistari
Christian Dior hóf
markaðssetningu
á hinni frjálslegu
og nútímalegu
kvennatísku – þá
meðal annars á
nokkrum kjólum
með þessu sniði,
en það var þó ekki
fyrr en 1958 sem
Yves Saint Laurent
(arftaki Christian
Dior) kynnti heila
línu sem samanstóð
einungis af A-línu-
löguðum kjólum.
Eins og nafnið
gefur til kynna
er umræddur
kjóll svipaður í laginu
og bókstafurinn A. Ekki
eru þó allir sammála um
hvers konar snið sé um
að ræða og koma aðallega
tvö til greina. Hið fyrra er
þannig að að
kjóllinn skuli
vera þröngur niður að mjöðmum
en víkka svo út – en hið síðara er
einungis aðsniðið við axlir og fari
svo víkkandi niður. Dæmigerð lengd
A-línulaga kjóls er niður á mitt læri,
en lengri og styttri lengdir má ætla
sér – enda snýst sniðið um formið en
ekki lengdina. Svona dýrð má finna
í fataskápum sumra, endurnýtta
í verslunum nytjavarnings, á
vefsíðum, í tískuverslunum eða
annars staðar.
LBD svokallaður
Annað dæmi um klassískan kjól, sá
sem er án efa hvað notadrýgstur, er
sá litli svarti (the little black dress).
Þar mega sniðin vera eftir smekk
hvers og eins, en taka skal fram að
kjóllinn er vanalegast í styttra lagi.
Það er þó ekki nauðsyn, helst þarf
að gæta þess að hafa kjólinn sem
látlausastan. Bera
frekar áberandi
skartgripi, skó
eða fylgihluti
sem gætu þá
hentað tísku
hvers áratugar
fyrir sig.
Nema fyrir þá
sem hrifnastir eru af
einhverjum áratug.
Þá bara ... „you do
you“. (Sem íslenskast;
„gerið eins og yður hugnast best“)
– og púffermar, slóðar eða önnur
uppátæki geta fengið lausan
tauminn.
Fyrir þá sem vilja spandera
fyrir þessi jól og hafa ef til vill
ekki fundið þann eina rétta, má,
með þessa umfjöllun í huga, til
dæmis leita á netinu. Hægt er að
finna vintage Dior eða YSL á
ebay, verslanir Karen Millen eða
"&other stories" koma sterkar inn
er kemur að skemmtilegum kjólum
á viðráðanlegu verði og svo eru
það auðvitað töfrar sem geta leynst
í fataskápum ættingja, vina eða
velunnara ... því það er um að gera
að skiptast svolítið á og nýta sem
best. Taka skal fram að auðvitað má
líka missa sig í jólakjólagleðinni og
versla sér bleikan pallíettukjól eða ef
til vill grænköflótta aðsniðna dragt
fyrir þá sem kjósa síður kjólana.
Þetta verður hver og einn að velja.
Gangi ykkur vel. /SP
Örítið yfirlit jólatísku:
Hinn eini sanni
Fyrstu tveir kjólarnir fást í versluninni "& other stories" og hinir frá Karen Millen.
Þessa kjóla má finna á www.ebay.com sem
selur allt milli himins og jarðar. Báðir vintage
Dior – en klassískir og eldast vel.