Bændablaðið - 01.12.2022, Blaðsíða 34

Bændablaðið - 01.12.2022, Blaðsíða 34
34 Bændablaðið | Fimmtudagur 1. desember 2022 UTAN ÚR HEIMI Landbúnaðartæki: Framleiðsla á krefjandi tímum Jaap ten Have (t.v.) og Orsolya Krupp (t.h.), fulltrúar Kuhn, komu til Íslands fyrir skemmstu. Bændablaðið ræddi við þau um framleiðslu landbúnaðartækja í því flókna umhverfi sem markaðurinn glímir við núna. Mynd / ÁL Fyrir skemmstu komu tveir fulltrúar frá landbúnaðar- tækjaframleiðandanum Kuhn í heimsókn til Vélfangs sem fer með umboðið á Íslandi, í fyrsta sinn eftir að heimsfaraldrinum lauk. Annar þeirra, Jaap ten Have, er útflutningsstjóri fyrir verksmiðju Kuhn í Gelderop í Hollandi, en Orsolya Krupp er svæðisstjóri fyrirtækisins í nokkrum löndum, þ.m.t. Íslandi. Þau segja að undanförnum misserum hafi fylgt ýmsar áskoranir við framleiðslu og sölu á vélum. Kuhn er með tólf verksmiðjur og sérhæfir hver og ein sig í framleiðslu ákveðinna landbúnaðartækja. Áðurnefnd starfsstöð í Hollandi framleiðir m.a. rúllu- og pökkunarvélar. Þessar fabrikkur eru allar með útflutningsstjóra eins og Jaap, sem eru sérfræðingar í þeim vörum sem framleiddar eru á hverjum stað. Flestar verksmiðjur fyrirtækisins eru í Evrópu, en einnig er Kuhn með framleiðslu í Brasilíu og Norður-Ameríku. Eins og áður segir er Orsolya svæðisstjóri, með höfuðstöðvar í Saverne í Frakklandi. Hún fylgist með mörkuðum og sölunni í þeim löndum sem hún sér um og vinnur náið með útflutningsstjórum eins og Jaap. Að auki við að hafa Ísland á sinni könnu, er hún fulltrúi Kuhn í Finnlandi, Svíþjóð, Sviss, Lúxemborg, Slóvakíu og Tékklandi. Ókláraðar vélar söfnuðust upp Helstu áskoranir síðustu ára voru áföll eins og heimsfaraldur, stríð og hækkandi orkuverð. Jaap segir að helstu örðugleikar verksmiðjunnar Gelderop hafi verið skert aðgengi að íhlutum. Starfseminni var allan tímann haldið gangandi og söfnuðust því upp birgðir af tækjum sem ekki var hægt að leggja lokahönd á. Þegar nauðsynlegir partar bárust þurfti að sækja ókláruðu vélarnar og flytja aftur inn í verksmiðjuna sem hafi flækt alla ferla. Birgðahald var mjög flókið því sumir íhlutir héldu áfram að berast og því varð mikið ójafnvægi í lagerstöðu. Í venjulegu árferði forðast verksmiðjan að safna upp stórum lager af íhlutum, heldur eru pantanir skipulagðar þannig að hlutirnir komi um það leyti sem þeirra er þörf. Nú er ástandið orðið þannig að suma hluti þarf að panta með árs fyrirvara og verst sé ástandið á rafeinda- og tölvuhlutum. Jaap gerir ráð fyrir að ekki muni leysast úr þessum flækjum næsta árið, en vonar að birti til eftir það. Allt þetta gerði það að verkum að fyrirtækið gat ekki staðið við afhendingartíma og fullnægt eftirspurn, sem þrátt fyrir allt var mjög mikil. Verksmiðjur elta ekki orkuverð Nú hefur orkuverð í Evrópu risið upp úr öllu valdi og segir Orsolya að verksmiðjan í Saverne hafi fundið fyrir því. Þar eru þrír bræðslukatlar sem þurfa jafnmikla orku og 10.000 íbúar borgarinnar. Þar sem verksmiðjur fyrirtækisins séu mjög sérhæfðar í því sem þær gera er ekki hlaupið að því að flytja framleiðsluna þangað sem orkuverð er lægra. Fyrirtækið hefur því þurft að aðlaga sig breyttu umhverfi. Vegna þess hversu stór hluti framleiðslukostnaðarins orkuverðið er, er stöðugt verið að leita leiða til að spara afl. Kostnaður við gámaflutninga hefur aukist gífurlega og dregið hefur úr áreiðanleika. Orsolya segir að áður hafi verksmiðjurnar getað pantað tíu flutningavagna með skömmum fyrirvara og gengið að því vísu að minnst átta kæmu á tilsettum tíma. Nú sé ástandið hins vegar þannig að af tíu trukkum er ekki hægt að reikna með að fleiri en þrír komi þegar þeirra er von. Þannig að jafnvel þó svo að verksmiðjan sé tilbúin með sínar vörur, þá nær hún ekki að koma varningnum frá sér. Jaap nefnir í þessu samhengi að flutningur á venjulegum gámi frá Hollandi til Ástralíu hafi kostað nærri 3.000 evrum áður – nú er verðið komið upp í 10.000 evrur. Í september á síðasta ári var búið að fylla pöntunarbækur margra verksmiðja fyrir allt árið í ár. Núna eru pöntunarbækur næsta árs ekki fullar, en þau gera ráð fyrir að það gerist fljótlega. Mikilvægt sé því fyrir bændur að hugsa fram í tímann og panta tímanlega. „Ef þú ert búinn að missa af skipinu, þá kemur það næsta ekki fyrr en á næsta ári,“ segir Jaap. Aðspurð um hvernig þau sjái þróun landbúnaðartækja á næstu árum fyrir sér segja þau að markaðurinn sækist eftir auknum afköstum. Í þessu dæmi nefnir Jaap sölu dráttarvéla. Þróunin þar hefur verið sú að aflið eykst stöðugt. Hins vegar þegar horft er yfir heildarfjölda þeirra hestafla sem eru í notkun, þá helst það nokkuð stöðugt. Með öðrum orðum þá eru færri traktorar sem sinna sömu afköstum og áður. /ÁL Svíþjóð: Hvattir til að skipta úr lífrænni í hefðbundna framleiðslu Stjórn sænska mjólkur- afurðafélagsins Norrmejerier hefur hvatt lífræna bændur til að skipta yfir í hefðbundna mjólkurframleiðslu. Hin dönsku Mjólkurtíðindi greina frá því að neysla á staðbundnum vörum hafi aukist á kostnað lífrænnar framleiðslu. Þar með sé framboð á lífrænni mjólk nú meira en eftirspurnin. Haft er eftir Göran Olofsson, stjórnarformanns Norrmejerier, að fyrirtækið ætli að takmarka innlegg lífrænnar mjólkur, sem hefur þó verið að dragast saman á árinu. Mjólkurfyrirtæki greiða venjulega álag fyrir lífrænt innlegg en Norrmejerier hefur að undanförnu verið að selja þá lífrænu sem hefðbundna mjólk. Því sé félagið að hvetja bændur til að skipta yfir í hefðbundna framleiðslu. Norrmejerier er þriðja stærsta mjólkurafurðafélagið í Svíþjóð. Tæplega 50 af 330 mjólkurbirgjum félagsins framleiða lífræna mjólk að því er fram kemur í fregn Mælkeri tidende. /ghp Hjá Norrmejerier í Svíþjóð er framboð á lífrænni mjólk meira en eftirspurnin. Mynd / Teo Do Rio Sláturfélag Suðurlands Fosshálsi 1, Reykjavík - 575 6070 buvorur@ss.is | www.buvorur.is Rúlluplastið sem bændur treysta Fyrir frekari upplýsingar um rúlluplast er hægt að nota QR-kóðan hér. Tenospin og Tenoplus rúlluplast - Hagstætt verð til áramóta Orkideur frá Putalandi Met í plöntuheiminum geta verið margs konar. Hæsta tréð, stærsta blómið og elsta pottaplantan. Minnsta orkidean sem vitað er um í dag er af ættkvíslinni Campylocentrum og finnst í regnskógum Brasilíu. Þessi míniatúr orkidea fannst árið 2015 og fékk tegundarheitið insulata. Blóm orkideunnar mælist í fullum blóma 0,5 millimetrar og því einungis hægt að skoða það í smásjá. Reyndar var það svo að fyrst eftir að blómið fannst sýndist mönnum það vera sveppur. Önnur smá-orkidea af ættkvísl- inni Lepanthes var lengi vel talin sú minnsta og er upprunnin í regnskógum fjallanna í Gvatemala og vex þar sem ásæta á laufi plantna. Blóm hennar eru litlu stærri en blómin á C. insulare en þó nóg til að sannfæra flokkunarfræðinga að sú seinni sé minni. Áður en Lepanthes tegundin fannst taldist Platystele jungermannioides vera minnsta orkidean. Í dag er hún tiltölulega stór miðað við núverandi miníatúr methafa. Plantan vex sem ásæta á rótum stærri tegundum orkidea og finnst í þokuskógum Ekvador. Blóm P. jungermannioides mælist um tveir millimetrar í fullum blóma og því fjórum sinnum stærra en blóm C. insulare. /VH Blóm Campylocentrum insulare eru innan við 0,5 millimetrar að þvermáli. Mynd / Revistapesquisa
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.