Bændablaðið - 01.12.2022, Blaðsíða 58
58 Bændablaðið | Fimmtudagur 1. desember 2022
LESENDARÝNI
Þann 5. nóvember urðu Samtök
smáframleiðenda matvæla (SSFM)
þriggja ára. Þetta þriðja starfsár
hefur verið viðburðaríkt eins og
fyrstu tvö og samtökin haldið
áfram að vaxa og dafna.
Það sem hæst
bar á árinu var
að Beint frá
býli (BFB) varð
aðildarfélag að
SSFM og fengu
félagsmenn BFB
sem voru ekki
þegar félagsmenn
í SSFM þá fulla
aðild að SSFM
og undirrituð varð
framkvæmdastjóri beggja félaga.
Félagsmönnum með fulla
aðild hélt áfram að fjölga og eru
nú orðnir 215. Ríflega helmingur
er á lögbýlum, um fjórðungur á
höfuðborgarsvæðinu og svipaður
fjöldi í bæjarfélögum hringinn í
kringum landið. Vörur þeirra eru
eins fjölbreyttar og þær eru margar
og auðga matarflóru landsmanna svo
um munar.
Aukaaðilar eru á fimmta
tug, en aukaaðild er eins konar
styrktaraðild fyrir þá sem eru ekki
smáframleiðendur sjálfir en vilja
styðja samtökin. Í hinu ómetanlega
ráðgjafaráði sitja ríflega 40 öflugir
einstaklingar með reynslu og
þekkingu á sviði samtakanna.
Stefnumótandi mark mið og
aðgerðaáætlun
Hér á eftir verður farið yfir helstu
lykilverkefni samtakanna á árinu sem
tengdust stefnumótandi markmiðinu
um að hámarka ávinning af aðild.
Stefnumótandi markmiðin, öll
lykilverkefnin og link á ítarlega
aðgerðaáætlun samtakanna má finna
í almennu kynningunni á SSFM/BFB
á vef samtakanna: ssfm.is/skyrslur.
Einföldun regluverks
Við áttum tvo fundi með
matvælaráðherra á árinu þar
sem umræðupunktarnir voru
einföldun regluverks, að fulltrúar
matvælaframleiðenda ættu sæti í
stjórn Matvælasjóðs og beiðni um
að ráðherra geri samning við SSFM/
BFB um eflingu smáframleiðslu
matvæla, þar sem forgangsverkefnið
væri að vinna greiningu og skýrslu
með tillögum að einföldun
regluverks á sviði matvæla sem
ráðherra tók vel í.
Áhersla var lögð á að
ganga sem fyrst í að uppfæra
smáræðisreglugerðina svo hún
gefi matvælaframleiðendum sem
selja vörur í eigin hagnaðarskyni
undanþágu frá því að sækja um
starfsleyfi til heilbrigðiseftirlitsins
fyrir hvern matarmarkað sem þeir
taka þátt í, en sú vinna er í gangi hjá
ráðuneytinu.
Eins var hvatt til þess að
reglugerð sem gefur starfsemi sem
heyrir undir lög um hollustuhætti
og mengunarvarnir möguleika
til að skrá atvinnureksturinn í
miðlæga rafræna gátt í stað þess að
sækja um starfsleyfi, nái einnig til
matvælaframleiðenda og er það nú í
skoðun hjá ráðuneytinu.
Við hvöttum til þess að lokið
yrði sem fyrst við að einfalda og
samræma eftirlitskerfið og tryggja
að framkvæmd eftirlits sé sambærileg
um land allt. Við lögðum jafnframt
til að skipað yrði teymi fulltrúa
matvælaráðuneytisins og eftirlitsaðila
sem framleiðendur geti leitað til
tengt framkvæmd reglugerða og
eftirlits, ef þeir eru ósáttir við túlkun
eftirlitsmanns.
Við lögðum einnig áherslu á
mikilvægi þess að hafa þá sem munu
vinna eftir reglugerðunum og fulltrúa
þeirra með í ferlinu þegar reglugerðir
og leiðbeiningar með þeim eru
skrifaðar, eins og var gert í hinu
svokallaða heimaslátrunarmáli. Að
lokum fögnuðum við því að Berglind
Häsler, aðstoðarmaður ráðherra, tæki
sæti í stjórn Matvælasjóðs, enda
fyrrum félagsmaður og þekkir því
vel til.
Stefnumótun á sviði matvæla
SSFM sendu inn ítarlega umsögn
um greinargerð sem lýsir
áherslum og fyrirhuguðu verklagi
matvælaráðherra við stefnumótun á
sviði matvæla á kjörtímabilinu sem
finna má á vef samtakanna.
Lykiláherslur umsagnarinnar
endurspeglast í drögunum að
matvælastefnu sem ráðherra kynnti
á Matvælaþinginu í nóvember – sem
eru þó mjög almennt orðuð. Við
væntum þess að í aðgerðaáætlun
með stefnunni verði skýrar, tímasettar
og fjármagnaðar aðgerðir útlistaðar
sem innihalda þær mikilvægu og
brýnu tillögur sem við komum með
í umsögninni.
Auka þekkingu og þróa
verkfæri
Hæst bar Matsjáin sem var
samstarfsverkefni SSFM og
landshlutasamtaka sveitarfélaga um
land allt. Verkefnið var styrkt af
Matvælasjóði og tók RATA að sér
verkefnisstjórn. Matsjáin var 14 vikna
rafrænt námskeið sem samanstóð af
sjö lotum með heimafundum, fræðslu
og erindum, verkefnavinnu og ráðgjöf
og lauk með veglegri uppskeruhátíð
og matarmarkaði á Hótel Laugarbakka
í apríl. Um helmingur félagsmanna
tók þátt og var almenn ánægja með
verkefnið sem vilji er til að hafa
framhald af.
Gerð vefbókar um merkingar
matvæla, ásamt hugbúnaðarlausn sem
vinnur með ÍSGEM gagnagrunninum
við útreikning næringargildis út frá
uppskrift sem Matvælasjóður styrkti
og SSFM eru samstarfsaðilar Matís
í, var í fullri vinnslu á árinu en
markmiðið er að gefa félagsmönnum
færi á að prófa tilraunaútgáfu fyrir
lok árs.
Skapalónið (e: template) fyrir
gæðahandbók sem var kynnt
félagsmönnum í lok síðasta árs
og finna má á vef samtakanna
hefur nýst mörgum sem sýnir að
slík samstarfsverkefni geta gert
gæfumuninn.
Bætt kjör og fjölbreyttar
söluleiðir
Félagsmenn eru með sérstök
afsláttarkjör hjá á þriðja tug aðila.
Í ár var meðal annars gerður
afsláttarsamningur við Póstinn
sem gefur þeim smáu örlítið betri
möguleika í samkeppni við þá stóru.
Að hafa aðgang að fjölbreyttum
söluleiðum skiptir félagsmenn
máli og því hélt samstarfið við
Krónuna um Matarbúr áfram, en
í því er vörum félagsmanna stillt
upp á afmörkuðu svæði í stærstu
verslunum Krónunnar á tilteknum
tímabilum. Fjarðarkaup og Hagkaup
í samstarfi við Karrot fóru svipaða
leið í ár og gerðu smáframleiðendum
matvæla hátt undir höfði á vissum
tímabilum. Söluaðilum sem sérhæfa
sig í vörum smáframleiðenda hélt
áfram að fjölga og má helst nefna
vefinn Matland og verslunina Taste
of Iceland á Laugavegi.
Eftir tvenn jól án matarmarkaða
hafa þeir sjaldan verið fleiri og
hvetjum við neytendur til að
sækja þá, panta í gegnum eigin og
sameiginlega vefi smáframleiðenda.
Kynningarmál og almannatengsl
Reglur BFB um félagsmerkið og
upprunamerkið Frá fyrstu hendi voru
uppfærðar og félagsmenn sem eru
með beina aðild að BFB hvattir til að
nýta þau, enda gefa þau starfsemi og
vörum þeirra mikla sérstöðu.
Mikið púður var lagt í
undirbúning fyrir þátttöku í
Terra Madre Nordic, matarhátíð
smáframleiðenda á vegum Slow
Food Nordic í Stokkhólmi 1.-3.
september. Þar var matarmarkaður,
málþing, vinnustofur, fyrirlestrar,
svæðisfundir og síðast en ekki
síst matarhandverkskeppnin
Nordic Artisan Food Awards. Sjö
félagsmenn sendu vörur í keppnina
og hlutu hvorki meira né minna en
þrír þeirra verðlaun.
Í grein minni í síðasta
blaði var fjallað um vel gengni
smáframleiðenda á Land búnaða r-
sýningunni í Laugardalshöll þar sem
40 félagsmenn kynntu vörur sínar
á sameiginlegum bási SSFM/BFB
og víðar.
Ráðgjöf, stuðningur og gagnlegar
upplýsingar
Samtökin veita félagsmönnum
ráðgjöf og stuðning, miðla
gagnlegum upplýsingum til þeirra
og vekja athygli á málefnum sem
þá varða. Þau eru einnig gátt inn
til smáframleiðenda matvæla sem
þýðir að þeir sem þurfa að ná til
þeirra geta gert það í gegnum
póstlistann og lokaða Facebook
hópinn.
Verðskulduð athygli
SSFM/BFB munu á nýju ári halda
áfram að vinna að hagsmunamálum
smáframleiðenda matvæla, vera
málsvari þeirra og stuðla að
framförum í málefnum sem þá varða.
Matarfrumkvöðlar eru rokkstjörnur
sem fá verðskuldaða athygli þessi
misserin og munu án efa halda áfram
að eflast og fjölga á næstu árum.
Oddný Anna Björnsdóttir,
framkvæmdastjóri SSFM/BFB.
Félagsmenn SSFM / BFB orðnir vel á þriðja hundrað:
Samtök smáframleiðenda matvæla þriggja ára
- Hæst bar að Beint frá býli varð aðildarfélag síðastliðið vor
Lokaviðburður Matsjárinnar á Hótel Laugarbakka. Myndir / Aðsendar
Oddný Anna
Björnsdóttir
Matarbúrið í Krónunni Lindum,
nóvember 2022 (þurrvöruhlutinn).
Þorbjörg Ásbjörnsdóttir og Lára Guðnadóttir, Geitagott á
Landbúnaðarsýningunni.